Fréttablaðið - 17.06.2010, Blaðsíða 46
34 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Rapparinn Eminem hefur
selt fleiri en 80 milljónir
platna um allan heim. Hann
er enn þá gríðarlega vinsæll
og sendir frá sér nýja plötu
á morgun.
Strigakjafturinn Eminem sendir
frá sér sjöundu plötu sína á morg-
un. Platan átti upphaflega að vera
framhald á plötunni Relapse sem
kom út í fyrra og bar því vinnu-
titilinn Relapse 2 í fyrstu. Þegar
leið á vinnuferli plötunnar fannst
honum titillinn ekki passa og hann
gaf því plötunni nafnið Recovery,
eða Endurheimt.
Eminem er gríðarlega vinsæll
tónlistarmaður um allan heim
og ekkert bendir til þess að fer-
ill hans sé á niðurleið eftir fjór-
tán ár í bransanum. Hann hefur
selt meira en 80 milljón plötur um
allan heim og fjórar síðustu plöt-
ur hans hafa náð toppi bandaríska
Billboard-listans. Búast má við að
Recovery fari sömu leið þar sem
fyrsta smáskífulag plötunnar, Not
Afraid, var annað rapplag sög-
unnar til að rjúka beint á topp Bill-
board-lagalistans.
Eins og við mátti búast eru fjöl-
margir gestir á nýju plötunni.
Rihanna syngur með Eminem í
laginu Love the Way You Lie sem
er jafnframt önnur smáskífa plöt-
unnar. Dr. Dre hjálpaði Eminem
við plötuna og hin grjótharða Pink
syngur í laginu Won‘t Back Down.
atlifannar@frettabladid.is
>Plata vikunnar
Who Knew - Bits and Pieces
of a Major Spectacle
★★★★
„Lögin eru hvert öðru betra,
útsetningarnar eru áhrifaríkar
og hljóðfæraleikurinn tilþrifa-
mikill.“ - tj
Bonnaroo er ein af stærstu bandarísku tónlistarhátíðunum. Þessi fjög-
urra daga hátíð er haldin á 2.8 ferkílómetra bújörð í Manchester í Tenn-
essee í júní ár hvert. Þar eru fjögur svið, en framan við það stærsta
komast 100 þúsund áhorfendur. Bonnaroo leggur ekki jafn mikla
áherslu á ný og upprennandi nöfn eins og t.d. SXSW, en samt er þetta
ekkert gamlingjafestival. Skipuleggjendurnir reyna einfaldlega að ná
sem flestum af heitustu nöfnunum á ári hverju. Frábært festival og
alveg málið ef maður er staddur í Tenn-
essee eða nærliggjandi ríkjum í júní ...
Fyrir okkur hin þá er þetta líka góð hátíð
vegna þess að bandaríska ríkisútvarpið,
NPR tekur upp fjölmarga tónleika á Bonn-
aroo og hefur þá aðgengilega á vefsíðunni
sinni www.nrp.org. Í ár er dagskráin ekk-
ert slor.
Þarna eru tónleikar í fullri lengd og ágæt-
um hljómgæðum með LCD Soundsystem,
Flaming Lips, Reginu Spektor, Tori Amos,
The XX, She and him, The Gossip, Mum-
ford and Sons, Dead Weather, Noruh
Jones, Japandroids, The National, Tinar-
iwen, Baaba Maal og Kris Kristofferson
o.m.fl. Hreint ekki slæmt!
Þessir tónleikar voru komnir inn á síðuna einum til tveimur dögum eftir
að þeir fóru fram. Auk þess er á vefsíðu NPR að finna fullt af öðru tón-
listarefni. Myndarlegt safn af alls konar tónleikum, útvarpsþættir, óút-
gefnar plötur í forspilun o.fl. Og þetta efni er allt opið öllum heiminum,
ekki lokað fyrir erlendum IP-tölum eins og stór hluti efnis á vef BBC.
Okkar íslenska RÚV hefur verið nokkuð duglegt að hljóðrita tónleika
undanfarin ár. RÚV hefur staðið vaktina á Iceland Airwaves og tekið
upp fullt af öðrum tónleikum bæði með íslenskum og erlendum lista-
mönnum. Gallinn er samt sá að þessar upptökur eru bara sendar út einu
sinni, gjarnan löngu eftir sjálfa tónleikana og oftar en ekki fara þær
fram hjá manni. Þess væri óskandi að a.m.k. einhver hluti þessa dýr-
mæta efnis væri gerður aðgengilegur á vefsíðu RÚV þannig að maður
gæti leitað á einfaldan hátt og hlustað þegar manni hentaði!
Bonnaroo í beinni
■ I‘ll Be Missing You með Puff Daddy (í dag
þekktur sem Diddy), Faith Evans og 112
fór á topp bandaríska Billboard-listans 14.
júní 1997 og sat þar í 11 vikur.
■ Lagið er byggt á laginu Every Breath You
Take með hljómsveitinni Police frá
árinu 1983. Sting, söngvari Police,
fær allar höfundarréttargreiðslur
fyrir lagið.
■ I‘ll Be Missing You er tileinkað
rapparanum Notorious B.I.G. sem
var myrtur 9. mars árið 1997.
■ Lagið er í 84. sæti á lista Bill-
board yfir bestu lög allra tíma.
■ I‘ll Be Missing You er eitt af fáum
lögum sem fer beint á topp
Billboard-listans þegar það kemur út. Það
er einnig annað tveggja rapplaga sem hefur
náð þeim árangri. Hitt er Not Afraid með
Eminem sem fór á toppinn á þessu ári.
■ Vikurnar 11 sem lagið eyddi á toppnum
slógu met, sem Eminem sló síðan árið
2002 þegar lag hans Lose Yourself
eyddi 12 vikum á toppnum.
■ Lagið seldist í tugmilljónum ein-
taka og náði toppnum í 11 löndum.
■ Sean John Combs hefur verið
þekktur undir nokkrum nöfnum.
Meðal annars Puff Daddy, P. Diddy,
Diddy, Puffy og Puff. Loks er í dag
slúðrað um að hann kalli sig Ciroc
Obama.
TÍMAVÉLIN PUFF DADDY VOTTAR NOTORIOUS B.I.G. VIRÐINGU SÍNA
I‘ll Be Missing You á toppinn
EMINEM ENDURHEIMTUR
Hinn 14. september verður stór
dagur fyrir indírokk frá New
York. Ný plata frá hljómsveit-
inni Interpol kemur út þann dag,
eins og ný plata hljómsveitarinn-
ar Walkmen.
Plata Walkmen hefur feng-
ið nafnið Lisbon og fylgir eftir
hinni frábæru You & Me frá
árinu 2008. Platan var tekin upp
á síðustu tveimur árum og unnin
í Philadelphiu og Brooklyn. Þá
voru nokkur lög samin á ferða-
lagi hljómsveitarinnar til portú-
gölsku borgarinnar sem platan
dregur nafn sitt af.
Hamilton Leithauser sagði í
viðtali við Pitchfork í febrúar
að platan sé undir áhrifum frá
Elvis, þó svo að nýju upptökurn-
ar hljómi ekki þannig. „Hljóð-
færaleikurinn er mjög einfaldur,“
sagði hann. „Raddirnar eru mjög
háværar en trommurnar eru afar
mjúkar.“
Walkmen með nýja plötu
BEINT FRÁ NEW YORK Hljómsveitin Walkmen er frá New York eins og snillingarnir í
Interpol. Hljómsveitirnar gefa út plötu á sama degi í september.
1999
2000
2001
2004
2005
2006
2009
Eminem kvænist hinni alræmdu Kimberley Anne
Scott (Kim), en þau hittust í framhaldsskóla.
Móðir Eminems kærir hann fyrir meiðyrði og krefst 10
milljón dollara skaðabóta. Hún fékk um 1.600 dollara
í skaðabætur þegar dæmt var í málinu.
SKRAUTLEGT EINKALÍF EMINEMS
Eminem er handtekinn fyrir að taka upp
byssu í raftækjabúð og veifa henni.
Gaf út lag þar sem hann gagnrýndi
George Bush, þáverandi forseta Banda-
ríkjanna, harðlega.
Fór í meðferð við fíkn í svefnlyf.
Eminem og Kim gifta sig á ný, en skilja
sama ár.
Viðurkennir í viðtali að hafa hugleitt
sjálfsvíg þegar hann var djúpt sokkinn í
eiturlyfjaneyslu.
Fær skilorðsbundinn dóm fyrir ólöglegan
vopnaburð.
Eminem og Kim skilja í fyrsta í skipti.
dreifing: smekkleysa
> Í SPILARANUM
The Chemical Brothers - Further
Eminem - Recovery
For a Minor Reflection - Höldum í átt að óreiðu
Laddi - Bland í poka
LADDI FOR A MINOR REFLECTION