Fréttablaðið - 17.06.2010, Síða 48
36 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Kvikmyndin A Team er
byggð á samnefndum sjón-
varpsþáttum frá áttunda
áratugnum og á að vera
hasarmynd af bestu gerð.
Myndin fjallar um fjóra fyrrver-
andi hermenn í sérsveit banda-
ríska hersins sem eru nýkomnir
heim eftir að hafa sinnt skyldum
sínum í Írak. Þeir verða ranglega
ásakaðir um glæp sem þeir áttu
að hafa framið í hernum og taka
höndum saman við að sanna sak-
leysi sitt.
Liam Neeson, Bradley Cooper,
Quinton „Rampage“ Jackson og
Sharlton Copley leika fjórmenning-
ana og einnig bregður leikkonunni
Jessicu Biel fyrir sem liðþjálfa í
hernum. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem hún bregður sér í hlut-
verk hermanns á háum hælum.
Kvikmyndin hefur fengið mis-
jafna dóma og segir meðal annars
gagnrýnandi blaðsins The New
York Times að líklega hafi mynd-
in verið of dýr til að hægt væri að
eyða of miklu púðri í söguþráðinn
og áherslan hafi verið á hið sjón-
ræna, miklar sprengingar og læti,
til að lokka áhorfendur að. Fram-
leiðendur myndarinnar eru bræð-
urnir Ridley og Tony Scott sem
eiga margar smelli að baki eins
og American Gangster (2007) og
Gladiator (2000).
- áp
Sakleysið sannað með látum
A TEAM Fjórir hermenn þurfa að takast á við hermálayfirvöld Bandaríkjanna til að
sanna sakleysi sitt.
Leikarinn Robert Pattinson sló
í gegn í hlutverki vampírunnar
Edwards Cullen í Twilight-þrí-
leiknum. Fyrsta kvikmyndin kom
út árið 2008 og hefur Pattinson
síðan þá verið tilnefndur til fjölda
verðlauna auk þess sem hann
hefur haft í nógu að snúast í leik-
listinni. Leikarinn er aðeins tut-
tugu og fjögurra ára gamall og
óttast að frægðarsól sín fari dvín-
andi héðan í frá. „Ég hélt að ef of
margir góðir hlutir myndu ger-
ast, þá myndi maður deyja fyrir
þrítugt. Æðri máttarvöld gætu
verið að vara mann við að biðja
um of mikið, því það gæti ræst úr
því öllu,“ sagði leikarinn
sem vinnur nú hörð-
um höndum við tökur
á kvikmyndinni Water
for Elephants sem leik-
stýrt er af Frances
Lawrence.
Góðir hlutir
gerast hratt
SÁTTUR Robert Patt-
inson er á frama-
braut í leiklistinni.
> BEINT Á TOPPINN
Endurgerð hinnar klassísku kvik-
myndar Karate Kid fór beint á
toppinn fyrstu sýningarhelgina í
Bandaríkjunum. Kvikmyndin skartar
þeim Jackie Chan og Jaden Smith
í aðalhlutverkum, en Smith
þessi er sonur stórleikarans
Wills Smith. Karate Kid hafði
því betur í aðsóknarslagnum
við kvikmyndina The A-Team,
sem gerð var eftir sam-
nefndum sjónvarpsþáttum.
Leikarinn Tom Cruise for á kost-
um í hlutverki hins loðna, dóna-
lega plötuútgefanda Les Grossman
í gamanmyndinni Tropic Thunder
sem kom út árið 2008.
Tropic Thunder þótti ein besta
gamanmynd ársins 2008 og skart-
aði hún stórstjörnum á borð við
Ben Stiller og Robert Downey Jr.
í aðalhlutverkum.
Les Grossman kom nýverið
fram á MTV kvikmyndahátíð-
inni og dansaði þar við söng atriði
Jennifer Lopez við góðar undir-
tektir áhorfenda. Nú hafa kvik-
myndaframleiðendur íhugað að
gera heila kvikmynd um herra
Grossman og öll hans ævintýri.
Sumir vilja meina að myndin
verði skemmtileg blanda af mynd-
um Austin Powers og Anchorman
með Will Farrell í aðalhlutverki.
Ben Stiller mun framleiða mynd-
ina og hafa Cameron Diaz og Jamie
Foxx einnig verið orðuð við hana.
Það verður þó forvitnilegt hvort
hægt verði að teygja lopann í rúma
tvo tíma eða hvort brandarinn sé
þegar orðinn gamall.
Durgurinn Les á hvíta tjaldið
GAMANSAMUR Tom Cruise sló í gegn
sem Les Grossman í kvikmyndinni Tropic
Thunder.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sjónvarpsþættirnir sem kvikmyndin A Team er byggð á skarta
engum öðrum en leikaranum og glímukappanum
MR.T. Hann er meðal annars þekktur fyrir móhík-
anahárgreiðslu sína, stóra gulllitaða skartgripi og
töffaralega framkomu. Mr.T lék einnig í myndinni
Rocky 3 þar sem hann gerði setninguna „I pity
the fool“ ódauðlega.
I PITY THE FOOL!
„Ég væri svo til í það að leika mjög
vonda stelpu – það væri frábært!“
segir Jessica Biel leikkona.
Jessica leikur í myndinni A-
Team sem var nýlega frumsýnd
hér á landi. Hún viðurkennir að
hún sé orðin frekar örvænting-
arfull og vilji breyta til. Hún vill
prófa hlutverk sem eru meira örv-
andi og óvænt heldur en þau sem
hún hefur hingað til tekið að sér.
„Ekki bara vonda stelpu held-
ur kannski frekar andlega trufl-
aða stelpur eða jafnvel geðveika
stelpu. Eitthvað sem er virkilega
ögrandi og óvænt,“ segir Jessica.
Auk þess að vilja frekari ögrun
er fegurðardísin æst í að sýna tón-
listarhæfileika sína á hvíta tjald-
inu eða jafnvel á sviði. Haft er eftir
henni að hún hún vilji prófa blöndu
tónlistar og bíómyndar. Hún telur
að söngvamynd eða Broadway-sýn-
ing sé eitthvað fyrir hana.
Jessica er um þessar mundir að
leikstýra stuttmynd sem hún hefur
sjálf skrifað handritið að. Í fram-
haldi af því finnst henni hún tilbú-
in til að fara út í framleiðslu. „Mér
finnst viðskiptahliðin áhugaverð
ásamt því að ég elska að skrifa,
Þannig að ég hef mikinn áhuga á
öllu sköpunarferlinu bak við verk-
in,“ sagði Jessica í viðtali við blað-
ið Daily Telegraph í Ástralíu.
- ls
Jessicu Biel langar að
vera vonda stelpan
VONDA STELPAN Jessica hefur um þessar myndir hugann við einhverjar breytingar á
ferlinum.
Sértilboð Stökktu til
Costa del Sol
22. júní
Frá aðeins kr. 69.900 í 14 nætur
14 nátta ferð – ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu
sætunum 22. júní í 14 nætur til eins allra vinsælasta
sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol. Costa
del Sol býður allt það helsta sem maður getur óskað
sér í fríinu. Þú bókar fl ugsæti og gistingu og 4 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu þetta
einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla
áfangastað í sumarfríinu. Fjölbreytt önnur sértilboð
jafnframt í boði bæði 22. júní og 6. júlí.
Ath. takmarkaður fjöldi sæta og
gistingar í boði - verð getur hækkað
án fyrirvara.
Kr. 69.900 – 14 nátta ferð
Verð m.v. m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2–11 ára, í íbúð með 1 svefnherbergi í 14 nætur. Verð m.v. 2–3 í herbergi / stúdíó / íbúð kr. 74.900.
Sértilboð 22. júní.