Fréttablaðið - 17.06.2010, Page 50
38 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Tónlistarmógúlinn P. Diddy lang-
ar nú að eignast fótboltalið. Rapp-
arinn frægi þénar um 30 millj-
ónir dollara á ári og á nú þegar
sitt eigið tískuhús, ilmvatnslínu,
veitingastaði og vodkamerki.
Hann rennir nú hýru auga til fót-
boltaliða í leit að fjárfestingu en
hann var fyrir stuttu að pæla í að
kaupa enska liðið Crystal Palace,
sem er í fjárhagskröggum.
Félagarnir Gunni og Felix
gefa út barnaplötu til heið-
urs Ómari Ragnarssyni í
tilefni af stórafmæli hans.
Platan samanstendur af
þrettán lögum Ómars sem
félögunum fannst nauðsyn-
legt að kynna fyrir nýrri
kynslóð.
„Við erum óskaplega ánægðir með
plötuna. Ómar hefur glatt þjóðina
og þá börn sérstaklega í um fimm-
tíu ár. Hann var númer eitt á list-
anum þegar við Gunni leituðum að
okkar fyrirmynd þegar við byrj-
uðum með Stundina okkar. Því lá
það beint við að fá að heiðra hann
í kringum þennan stóra dag,“ segir
Felix Bergsson.
Félagarnir Felix og Gunnar
Helgason, tvíeykið Gunni og Felix,
ætla að heiðra Ómar Ragnarsson í
tilefni af sjötugsafmæli hans nú í
ár. Gera þeir það með því að senda
frá sér barnaplötu með vel völd-
um lögum af öllum þeim frábæru
barnalögum sem Ómar á. Diskur-
inn heitir Ligga ligga lá – Gunni
og Felix flytja lög Ómars Ragnars-
sonar og eru á honum þrettán lög.
„Ómar á lög eins og til dæmis
Hláturinn lengi lifi, Jói útherji,
Þrjú hjól undir bílnum og Ligga
ligga lá, sem fá mestu fýlupúka til
að brosa út í annað,“ segir Felix.
„Foreldrarnir þekkja þessi lög frá
því að þeir voru ungir og því tilval-
ið að fjölskyldan fái lög sem hún
geti sungið saman.“
Félagarnir vildu endurvekja lög
Ómars svo að börn dagsins í dag
fengju að njóta þeirra gullmola
sem hann hefur búið til.
Plötuna unnu þeir með góðvini
sínum, Jóni Ólafssyni. En Jón
hefur unnið með þeim félögun-
um í öll þau sextán ár sem þeirra
samstarf hefur varað. Einnig
koma þeir Hjörleifur Valsson,
Stefán Már Magnússon og Haukur
Gröndal að plötunni. Ómar sjálfur
kemur aðeins við sögu í einu lag-
anna þar sem hann leikur bæði
sjálfan sig og forsætisráðherrann
Jóhönnu Sigurðardóttir. „Það var
eins og að ná í páfann þegar við
reyndum að fá hann til að koma í
stúdíó,“ segir Felix. „Hann er allt-
af úti um allt með fulla dagskrá að
það var eiginlega ekki möguleiki að
fá hann til að koma. Hann er ótrú-
lega ofvirkur og ef hann væri tíu
ára væri hann á lyfjum. Hann er
svo stórkostlegur einstaklingur!“
Eins og þjóðin veit slógu þeir
félagar Gunni og Felix í gegn í
Stundinni okkar fyrir fimmtán
árum. Þeir hafa þó enn ekki hætt
að skemmta börnum.
linda@frettabladid.is
Heiðra Ómar
með barnaplötu
FÉLAGARNIR ÁSAMT ÓMARI Félagarnir Gunni og Felix heiðra Ómar í tilefni af sjötugs-
afmæli hans með barnaplötu með hans lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
plötur hefur
sextán ára sam-
starf Gunna og
Felix gefið af sér. HEIMILD: SENA
29
Bomban Megan Fox lenti í mikl-
um erfiðleikum í nýjustu mynd
sinni Jonah Hex. Þrátt fyrir að
hafa haft ánægju af að leika í
spennuatriðunum í myndinni
átti hún í mestu vandræðum með
gripið á skotvopnunum. „Það
var eitt atriði sem áhættuhóp-
urinn var búinn að
æfa fyrir í nokkrar
vikur. Síðan mætti
ég á svæðið og
gat ekki fram-
kvæmt það sem þeir
vildu því að ég er
með pínulitlar
barnahend-
ur,“ segir
Megan.
Leikkon-
an segir að
þetta hafi
þó ekki
verið það
eina sem
hafi verið
að trufla
hana í
atriðun-
um. Byss-
urnar
voru svo
þung-
ar og
stórar að
þetta tók
einnig mjög á
Megan.
Með of litlar
hendur
P.DIDDY Á nóg af peningum og vill nú
kaupa fótboltalið.
Diddy í boltabransann
Skötuhjúin Russell Brand og Katy Perry
hafa nú fengið sér alveg eins húðflúr.
Skemmtikrafturinn og tónlistarkonan
munu ganga í það heilaga í haust og búist
er við stjörnumprýddum gestalista. Setn-
ingin „Gakktu meðfram straumnum“ á
hinu helga indverska tungumáli sanskrít,
prýðir nú handleggi beggja. Russell
Brand sást fyrst skarta húðflúrinu á
forsíðu síðasta tölublaðs Rolling Stones
og svo var Perry mynduð með alveg eins
tattú nú í vikunni.
Brand og Perry trúlofuðu sig einmitt
á Indlandi eftir aðeins þriggja mánaða
samband og eru víst bæði mjög spennt
fyrir brúðkaupinu. Það verður líklega
öllu tjaldað til og mikið um dýrðir en
Russell Brand er víst búinn að afþakka
allar brúðargjafir og segir að þau
skötuhjúin þurfi ekki á neinu að halda
enda bæði í góðu starfi.
Annars geta skötuhjúin ekki kvartað
yfir því að hafa lítið að gera. Russell fer
með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Get
Him to the Greek sem var nýlega frum-
sýnd. Katy er á fullu í tónlistarbransan-
um og sendi nýlega frá sér myndband
við lagið California Girls. Myndbandið
hefur vakið mikla athygli, en það þykir
afar ögrandi.
Katy og Russell með alveg eins tattú
TURTILDÚFURNAR Katy Perry og Russel
Brand hafa innsiglað trúlofun sína með
alveg eins húðflúri.
>VILL EKKI BOND AFTUR
„Ég naut þess að leika Bond á sínum
tíma en ég sakna hans ekki. ég
hef engan áhuga á að taka að mér
hlutverk einkaspæjarans aftur,“
segir leikarinn Pierce Brosnan. Þrátt
fyrir þetta bætir Brosnan við að
hugsanlega hafi hann ekki líkams-
styrkinn sem til þarf en leik-
arinn er að nálgast sex-
tugsaldurinn.
Frábær handbók fyrir almenning um
lækningamátt og notkun íslenskra jurta.
Vissir þú að …
beitilyngste
er frábært gegn svefnleysi?
gleym-mér-ei
er góð á brunasár?
ilmreyr
nýtist vel gegn frjókornaofnæmi?
söl
virkar vel við timburmönnum?
Tími kominn
til að tína!
www.forlagid.is
Snjallt og svalt! Sefar augnþrota
Snjöll skyndilausn fyrir þrútin augu.
Hressir - ertir ekki
Svalandi stálkúlan hjálpar til við að eyða bólgu og baugum
undir augunum með léttu nuddi.
Frískandi All About Eyes Serum bólgueyðandi augnanudd
er kjörin skyndilausn ef þú vilt losna við að heyra:
„Ósköp ertu þreytuleg, elskan.“
Hafðu þetta netta nuddtæki í handtöskunni, alltaf tiltækt.
Fullt verð 4.869 kr.
Kynningarverð í Lyfju 3.990 kr.
Gildir 17.-19. júní