Fréttablaðið - 17.06.2010, Síða 54
42 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ívar Björnsson skaut
Fram á toppinn með marki af
dýrari týpunni. Hann skoraði stór-
kostlegt mark úr hjólhestaspyrnu í
2-1 sigrinum á Stjörnunni þar sem
Fram skaust á topp Pepsi-deildar-
innar.
„Strákarnir voru reyndar að
gera grín að mér að spyrnan væri
úr frekar lítilli hæð, ekki af tveim-
ur metrunum eins og við höfum
verið að leika okkur að taka á
æfingum,“ sagði Ívar kíminn en
hann tók boltann á kassann, vipp-
aði honum yfir fótinn á varnar-
manni sem ætlaði að hreinsa frá
áður en hann spyrnti knettinum í
netið með bakfallsspyrnu.
„Þetta gengur vel hjá mér núna
en svo getur maður orðið skúrk-
ur á skömmum tíma. Þetta er á
meðan þetta er. Ég er að toppa á
réttum tíma,“ segir Ívar.
Fram hefur ekki verið í topp-
sæti efstu deildar síðan eftir 7.
umferðina árið 1992. Liðið gerði
jafntefli í næsta leik það ár og tap-
aði sætinu til ÍA sem lét það aldrei
af hendi og varð Íslandsmeistari.
Fram endaði í fimmta sæti það ár.
„Ég er ekkert að horfa neitt sér-
staklega á neinar tölur eða töl-
fræði,“ segir Ívar.
Eðlilega er stemningin hjá félag-
inu með besta móti. „Skiljanlega
er hún það. Gengið helst í hendur
við stemninguna,“ segir Ívar en
að hans mati er það samheldnin í
hópnum sem er að skila sínu.
„Við höfum verið lengi saman,
við lentum í þriðja sæti 2008 og
fjórða sæti í fyrra auk þess sem
við komumst í bikarúrslitin. Hóp-
urinn er þéttur og þegar menn
fara eða meiðast koma aðrir í stað-
inn. Jón Guðni Fjóluson er gott
dæmi, hann byrjaði á bekknum á
síðasta tímabili en er núna kominn
í landsliðið,“ segir Ívar.
Þorvaldur Örlygsson þjálfari
hefur séð á eftir mönnum eins og
Reyni Leóssyni, Auðuni Helga-
syni og Paul McShane en hefur
verið sniðugur í leikmannamál-
um. „Hann fær menn sem passa
inn í liðið, ekki endilega stór nöfn.
Þetta er enda hópíþrótt.“
Framarar fóru ekki inn í mótið
með stórar vonir eða miklar vænt-
ingar. „Við ákváðum að hafa engar
rosalegar væntingar en ef við
lítum á úrslitin í mótunum fyrir
Íslandsmótið þá höfum við bara
tapað einum leik, fyrir KR, og svo
fyrir Blikum í úrslitaleik Lengju-
bikarsins í vítaspyrnukeppni.
Þegar lið tapa ekki leikjum hlýt-
ur þeim að ganga vel.“
En er komin pressa á Framara?
„Er ekki alltaf pressa á topplið-
inu,“ sagði Ívar og hló við. „Deild-
in er gríðarlega jöfn eins og taflan
sýnir. Það eru allir að taka stig af
öllum og það er stutt á milli hlát-
urs og gráts í þessu. Deildin er
langhlaup en ekki spretthlaup,“
sagði Ívar.
hjalti@frettabladid.is
Er að toppa á réttum tíma
Ívar Björnsson er leikmaður 7. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Frétta-
blaðsins. Ívar skoraði magnað mark í 2-1 sigrinum á Stjörnunni sem kom Safa-
mýrarfélaginu í fyrsta skiptið í efsta sæti úrvalsdeildarinnar í heil átján ár.
FIMM MÖRK Ívar er markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar með fimm mörk í sjö
leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Guðmundur Benediktsson hefur
glætt Pepsi-deild karla nýju lífi með klæða-
burði sínum. Guðmundur mætir iðulega í sínu
fínasta pússi á hliðarlínuna hjá Selfossi og setur
gott fordæmi fyrir aðra þjálfara.
„Þjálfaraúlpan er bara ekki að gera neitt
fyrir mig. Þær eru líka yfirleitt frekar stórar
og ég er nú ekki nein himnalengja. Þær verða
því yfirleitt bara hálfgerður frakki á mér,“ segir
Guðmundur.
En af hverju klæðir hann sig
upp á leikdögum? „Hver leik-
ur á að vera hátíð. Maður er í
íþróttagalla á öllum æfingum og
mér finnst þetta bara eðli-
legt. Maður á að klæða sig
upp. Það er einsleitt ef
allir varamenn og aðrir
á bekknum eru í æfinga-
göllum, og svo þjálfarinn
líka,“ segir Guðmundur
og bætir við að klæða-
burðurinn sé aukaatriði
miðað við leikinn sjálfan.
Hann vonast til að fleiri taki sig til fyrir-
myndar en Ólafur Kristjánsson, Bliki, er reynd-
ar virkilega snyrtilegur líka. „Ólafur er snyrti-
pinni og skynsamur maður. Ég held að það sé
bara að skila sér.“
Sérstaka athygli vakti svokallað Guardiola-
vesti sem þjálfari Barcelona hefur gert frægt.
„Það er meira nauðsynlegt hérna á Íslandi, það
er ekki nógu heitt til að vera bara á skyrtunni,“
sagði Guðmundur.
„Það er líka alveg ljóst að ef dómara dettur í
hug að troða mér í eitthvað vesti, þá tryllist ég
og kæri það bara,“ sagði Guðmundur en Willum
Þór Þórssyni og Gunnlaugi Jónssyni þjálf-
ara Vals hefur verið hent í vesti á leikjum.
„Það er alveg út í hött og eitthvað sem
ég skil engan veginn. Ég hef horft á og lýst
fleiri hundrað leikjum og það skiptir engu
máli hvaða deild það er eða Heimsmeistara-
mót, þetta truflar ekki nokkurn einasta aðstoð-
ardómara. Nema á Íslandi. Það getur ekki verið
að Ísland sé eina landið í heimi sem hefur rétt
til að gera þetta. Þjálfarar á Íslandi eru ekkert
á öðrum stað en þjálfarar annars staðar,“ sagði
Guðmundur ákveðinn. - hþh
Guðmundur Benediktsson er best klæddi þjálfari Pepsi-deildarinnar:
Hver leikur á að vera hátíð
FLOTTUR Guðmundur er með allt á
hreinu, allt frá beltissylgjunni til frakk-
ans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Bjarni Fritzson segir
að tvö tilboð frá Danmörku séu
sinn síðasti möguleiki á því
að fara út í atvinnumennsku.
„Maður er að renna út á sölu-
degi,“ segir Bjarni.
Danska félagið Nordsjælland
hringir í Bjarna oft í viku þessa
dagana. „Þeir vilja ólmir fá mig
til sín en ég er ekkert sérlega
bjartsýnn. Eins og svo mörg
önnur dönsk félög eiga þeir í fjár-
hagsvandræðum en ef þeir geta
boðið mér atvinnumannasamning
væri rosalega gaman að semja
við félagið,“ segir Bjarni sem er
einnig eftirsóttur af öðru félagi í
Danmörku.
Hann hefur áður sagt að hann
ætli ekki að semja við hvaða félag
sem er en hann hafði ákveð-
ið að skrifa undir hjá íslensku
félagi áður en Nordsjælland hóf
að hringja nánast daglega. Hann
vill einnig fá almennileg laun fari
hann út. „Ég get ekki látið börn-
in mín lifa undir fátækramörk-
um bara af því ég er í einhverju
handboltaflippi,“ segir Bjarni
léttur. - hþh
Bjarni Fritzson:
Dagleg símtöl
Nordsjælland
EFTIRSÓTTUR Bjarni var markahæsti
leikmaður N1-deildarinnar á síðasta
tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lið umferðarinnar:
Leikkerfið er 4-3-3
Markmaður:
Albert Sævarsson (ÍBV)
Varnarmenn:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (Breiðablik)
Guðmundur Mete (Haukar)
Jón Guðni Fjóluson (Fram)
Hjörtur Logi Valgarðsson (FH)
Miðjumenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV)
Sigurbjörn Hreiðarsson (Valur)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Sóknarmenn:
Atli Guðnason (FH)
Ívar Björnsson (Fram)
Gilles Mbang Ondo (Grindavík)
PEP GUARDIOLA Þjálfari
Barcelona er hinn spænski
Guðmundur Benediktsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Rúmlega helmingi fleiri
mörk voru skoruð í fyrstu sjö
umferðum Pepsi-deildar karla
en skoruð voru í fyrstu umferð
heimsmeistaramótsins í Suður-
Afríku.
Bestu lið heims skoruðu 25
mörk í sextán fyrstu leikjunum,
tæp 1,6 mörk að meðaltali í leik.
Í 42 leikjum Pepsi-deildar-
innar í fyrstu sjö umferðunum
voru 135 mörk skoruð, rúm-
lega 3,2 mörk að meðaltali í
hverjum leik. Í fimmtu umferð
Pepsi-deildarinnar voru skoruð
24 mörk og 23 mörk í sjöttu
umferðinni. Einn markalaus
leikur hefur verið í sumar, leik-
ur KR og Keflavíkur. - hþh
Ekkert markaregn á HM:
Helmingi fleiri
mörk á Íslandi
FÁ MÖRK Þeim bestu gengur illa að
skora í Suður-Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Vuvuzela-lúðrarnir
hafa vakið óskipta athygli á
HM í knattspyrnu. Áhorfendur
hafa heyrt stöðugt suð lúðranna
í gegnum sjónvarpið og mörg-
um þykir nóg um. Lúðrarnir eru
komnir til Ísland og verða til sölu
í Turninum á Lækjartorgi í dag.
Þeir bera meira að segja íslenska
fánann í tilefni þjóðhátíðardags-
ins.
Spurningin er hvort lúðrarnir
fá svo að njóta sín í Pepsi-deild-
inni út sumarið. - hþh
Þjóðhátíðarstemning í dag:
Vuvuzela lúðr-
ar til sölu í dag
VINSÆLIR Lúðrarnir eru vinsælir í Suður-
Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
> Þrjú félög vilja fá Hermann
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hermanns Hreiðars-
sonar, staðfesti við vefmiðilinn Fótbolti.net í gærkvöldi
að þrjú félög, tvö ensk og eitt utan Englands, hafa sýnt
Hermanni áhuga. Hermann hefur spilað
með Portsmouth frá árinu 2007 og félagið
vill halda honum en samningur hans
rann út í sumar. Hermann er orðinn
35 ára en hann sleit hásin í leik á
móti Tottenham í mars og verður frá
keppni fyrstu mánuði næsta tímabils.
Hermann hefur spilað í Englandi öll
þrettán ár sín sem atvinnumaður.
Sigursteinn Gíslason og lærisveinar hans í Leikni eru með tveggja stiga
forskot á toppi 1. deildar karla þegar sex umferðir eru búnar af mótinu.
Leiknir hefur aldrei endað ofar en í 6. sæti í b-deild.
„Þetta er kannski framar björtustu vonum hjá einhverjum en við
vitum alveg hvað við getum. Við erum líka á jörðinni enn þá því
þetta er bara rétt að byrja. Við njótum augnabliksins á meðan
það er og okkur leiðist ekkert að vera í þessari stöðu,“ segir
Sigursteinn en hann játar að Leiknir sé búið að stimpla sig
vel með þessari byrjun: „Þetta fær önnur lið til að taka okkur
alvarlega og átta sig á því að við erum ekki alltaf bara litla
liðið í Breiðholtinu.“
Sigursteinn hefur skýringu á breyttu gengi liðsins.
„Það var hugarfarsbreyting hjá öllum í Leikni, bæði
hjá leikmönnum og stjórn. Menn voru tilbúnir
að leggja aðeins meira á sig, leikmennirnir fóru
að æfa betur og stjórnin fór að vinna þetta fag-
mannlegra í kringum liðið,“ segir Sigursteinn.
Leiknir hefur unnið 5 af 6 leikjum og aðeins fengið á sig 3 mörk í
þessum sex leikjum. „Þetta hefur fallið með okkur. Í fyrra værum við
búnir að fá á okkur tíu mörk núna með sams konar spilamennsku. Í
fyrra féll ekkert með okkur en núna er þetta aðeins meira að falla
með okkur,“ segir Sigursteinn en Leiknisliðið er nær eingöngu
skipað Leiknisstrákum og hefur ekki mikið breyst frá því í fyrra.
„Það vantar ekkert upp á Leiknishjartað hjá þessum strákum, ég
get lofað þér því. Það eru ekki miklar breytingar á leikmönnum
frá undanförnum árum og þetta er kjarninn sem hefur verið þarna.
Þetta er kjarni sem er góður og menn þurftu bara að átta sig á því
að það kostar fórnir að ná árangri,“ segir Sigursteinn.
Fram undan er toppslagur á móti nágrönnunum í ÍR sem eru í 2.
sætinu. „Það er mikil spenna hjá leikmönnum fyrir Breiðholtslagn-
um á föstudaginn en ég segi bara að þetta er bara einn leikur
af 22. Það eru aðeins þrjú stig undir í þessum ÍR-leik en ef þú
myndir spyrja strákana þá myndu þeir örugglega svara allt
öðruvísi.“
SIGURSTEINN GÍSLASON, ÞJÁLFARI LEIKNIS: MEÐ LIÐIÐ Í EFSTA SÆTI 1. DEILDARINNAR EFTIR SEX LEIKI
Erum ekki alltaf bara litla liðið í Breiðholtinu