Fréttablaðið - 17.06.2010, Page 58
46 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
Holan er eitthvað svo stór í dag!
Einar Gunnarsson PGA golfkennari Stykkishólmi
EI
N
FA
LT
M
EÐ
E
IN
A
R
I
Guðmundur Ágúst Kristj-
ánsson, ungur og efnilegur
kylfingur, gerði sér lítið
fyrir og lék Korpúlfsstaða-
völl á 63 höggum sem er
met. Hann byrjaði að sveifla
kylfu tveggja ára og lék
fyrst á mótaröð fullorðinna
þegar hann var fjórtán ára.
Það vakti mikla athygli í golfheim-
inum á Íslandi þegar það fréttist
að Guðmundur Ágúst Kristjánsson,
sautján ára kylfingur í Golfklúbbi
Reykjavíkur, hefði leikið Korpu-
völlinn á 63 höggum af gulum
teigum og sett nýtt vallarmet.
„Ég er vanur að leika á hvítum
teigum,“ segir Guðmundur Ágúst
í samtali við Fréttablaðið. „Það er
miklu auðveldara að leika á gulum
því það styttir brautirnar mikið
og auðveldar að komast inn á flöt í
réttum höggafjölda (regulation).“
Spurður hvað hann hafi hitt marg-
ar flatir í réttum höggafjölda er
svarið stutt „átján“ sem þýðir að
hann hitti allar flatirnar. 100 pró-
sent árangur. Til gamans má geta
þess að kylfingar á bandarísku
mótaröðinni hitta að meðaltali 65
prósent allra flata.
Guðmundur Ágúst segist hafa
byrjað í golfi kornungur.
„Golfið er fjölskyldusportið. Það
er til mynd af mér tveggja ára að
sveifla kylfu en ég byrjaði í GR
þegar ég var átta ára og ellefu ára
byrjaði ég að keppa.“
Guðmundur Ágúst lék fyrst í
meistaraflokki á íslensku móta-
röðinni þegar hann var fjórtán
ára. Síðan þá hefur hann tekið
þátt í sífellt fleiri mótum og varð
hann til að mynda í sjöunda sæti
á Íslandsmótinu í höggleik sem
haldið var í Grafarholtinu í fyrra
og Ólafur Loftsson vann með eft-
irminnilegum hætti.
Máltækið segir að æfingin skapi
meistarann og það er ekki að heyra
annað en að Guðmundur Ágúst fari
eftir því.
„Á veturna æfi ég sex sinnum
í viku í svona tvo til þrjá tíma í
senn. Á sumrin æfi ég aftur á móti
alla daga nema þegar ég er alveg
dauðþreyttur eða veikur.“
Aðspurður segir hann að járna-
spilið sé helsti styrkleikinn en
aftur á móti þurfi hann að bæta
ýmislegt, sérstaklega þó stutta
spilið í kringum flatirnar.
Guðmundur Ágúst stefnir leynt
og ljóst að því að verða atvinnu-
maður í golfi. Það mun samt ekki
verða gert á kostnað menntun-
arinnar. Hann stundar nú nám í
Menntaskólanum við Sund en að
því loknu hyggst hann halda til
Bandaríkjanna í háskólanám.
„Ég er rétt að byrja að skoða
hvort ég fái ekki skólastyrk út á
golfið. Ef það tekst þá hugsa ég
að ég skelli mér bara í verkfræði
enda er ég á eðlisfræðikjörsviði í
MS. Hvað maður gerir síðan eftir
háskólanámið er erfitt að segja
enda langt þangað til. Eins og stað-
an er í dag ætla ég samt að reyna
að komast á evrópsku mótaröðina
eða þá Nationwide-mótaröðina í
Bandaríkjunum.“
trausti@frettabladid.is
Sautján ára kylfingur setti
ótrúlegt met á Korpunni
FALLEG SVEIFLA Guðmundur Ágúst segir að Korpan og Grafarholtið séu í sérstöku uppáhaldi en þó finnist honum Þorláksvöllur í
Þorlákshöfn líka vera alvöruvöllur. MYND/HELGA
Stjörnugolfmótið fer fram í
sjötta sinn 23. júní næstkomandi
á Urriðavelli í Garðabæ. Ágóð-
inn af mótinu rennur óskiptur til
Kaffistofu Samhjálpar.
Undanfarin ár hefur ágóðinn
af Stjörnugolfi runnið til Barna-
spítala Hringsins, Umhyggju og
MND félagsins.
Fyrirtæki geta keypt sig inn í
mótið með tveggja manna lið og
spilað er eftir Texas Scramble
fyrirkomulagi. - shá
Stjörnugolf 2010:
Frægir ætla að
golfa til góðs
HELGA MÖLLER Mikil áhugakona um
golfíþróttina og er ein þeirra sem hafa
tekið þátt í Stjörnugolfi undanfarin ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
voru höggin sem Alfreð Brynjar Kristinsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, not-
aði til að setja nýtt vallarmet af hvítum teigum á Leirdalsvelli í Eimskipamótaröðinni um
síðustu helgi. Hann skrifaði hins vegar undir of lágt skorkort og var vísað frá keppni.
3
golfogveidi@frettabladid.is
6766
Svavar Berg Magnússon, kylfing-
ur úr Golfklúbbi Ólafsfjarðar, fór
holu í höggi á 3. braut á Skeggja-
brekkuvelli á mánudaginn var.
Þriðja brautin er skráð 155 metrar
af gulum teig.
Arngrímur Benjamínsson, úr
Nesklúbbnum, náði einnig drauma-
högginu á Nesvellinum á mánudag-
inn. Hann fór holu í höggi á ann-
arri brautinni, sem er 108 metra
löng af gulum teig. - kh
Fjölgar í Einherjaklúbbnum:
Tveir fóru
holu í höggi
Eimskipamótaröðin 2010 - staðan
Karlar
1 Kristján Þór Einarsson GKJ 2152.50
2 Sigmundur Einar Másson GKG 1681.88
3 Hlynur Geir Hjartarson GK 1629.38
4 Björgvin Sigurbergsson GK 1500.00
5 Sigurþór Jónsson GK 1500.00
6 Tryggvi Pétursson GR 1344.38
7 Pétur Freyr Pétursson GR 1312.50
8 Rúnar Arnórsson GK 1216.88
9 Axel Bóasson GK 1173.75
10 Guðmundur Ágúst Kristján. GR 1072.50
Konur
1 Valdís Þóra Jónsdóttir GL 3000.00
2 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 1732.50
3 Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 1702.50
4 Ingunn Gunnarsdóttir GKG 1575.00
5 Jódís Bóasdóttir GK 1425.00
6 Ingunn Einarsdóttir GKG 1275.00
7 Þórdís Geirsdóttir GK 1271.25
8 Signý Arnórsdóttir GK 1200.00
9 Berglind Björnsdóttir GR 1065.00
10 Ragna Björk Ólafsdóttir GK 952.50
VALDÍS ÞÓRA
JÓNSDÓTTIR
KRISTJÁN ÞÓR
EINARSSON
Kannast þú við að standa yfir pútti og hugsa: „þetta pútt
fer örugglega framhjá!“ eða „þetta verður ábyggilega
of stutt“? Margir kylfingar eiga í erfiðleikum með að
bægja frá neikvæðum hugsunum þegar kemur að því
að pútta. Til að koma í veg fyrir það er gott að huga að
nokkrum þáttum þegar pútt eru æfð, hvort heldur er á
æfingaflötinni eða á golfvellinum. Á meðan þú æfir pútt
skaltu, auk tækniatriðanna, æfa þig í að hugsa rétt. Með
réttri hugsun líður manni betur og þá verða púttin betri.
Tileinkið ykkur jákvæðar hugsanir á meðan þið standið
yfir púttunum til dæmis „ég er að miða hárrétt“ eða
„þetta pútt getur ekki klikkað … holan er eitthvað svo
stór í dag“.
Þá skaltu líka muna eftir góðum púttum hjá þér, bæði
frá æfingaflötinni og af golfvellinum, og rifja þau stöðugt
upp í huganum. Mundu líka eftir því að segja einhverj-
um (sjálfum þér, golffélaganum, maka þínum eða
einhverjum sem vill hlusta á spennandi golfsögur) frá
glæsilegu púttunum þínum. Þannig byggir þú smátt og
smátt upp sjálfstraust sem bætir árangur þinn í púttum.
högg er því enn vallarmetið af hvítum
teigum sem Axel Bóasson úr Golf-
klúbbnum Keili setti fyrir rétt rúmri viku.
Skorkort Guðmundar
Braut Gulur Par Forgjöf Skor
1. 360 4 6 4
2. 442 5 10 3
3. 179 3 2 3
4. 381 4 4 4
5. 286 4 8 4
6. 128 3 18 3
7. 414 5 14 3
8. 316 4 12 3
9. 142 3 16 3
Út 2648 35 30
10. 301 4 9 4
11. 419 5 11 4
12. 304 4 5 4
13. 189 3 7 3
14. 286 4 15 3
15. 495 5 1 5
16. 147 3 17 3
17. 322 4 3 4
18. 316 4 13 3
Inn 2779 36 33
Út 2648 35 30
Alls 5427 71 63
Eitt helsta vandamál á golfvöllum á Íslandi er hversu leikur er hægur. Fyrir
þessu eru margar ástæður en Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem annast hefur
eftirlit, vallarvörslu og dómgæslu hjá GR, ráðleggur kylfingum eftirfarandi til
að stytta biðina á vellinum:
Fyrst af öllu er hraður leikur betri leikur – flestum sem spila golf gengur
betur ef leikið er hratt og með góðum takti.
1. Leikmenn ættu alltaf að vera tilbúnir þegar þeir eiga að slá. Vera tilbúnir
með bolta, tí og kylfu þegar kemur að þeim að slá teighögg. Undirbúa
högg á leið að boltanum og vera tilbúin á flöt þegar kemur að þeim.
2. Hafa í huga þegar komið er á flöt hvar næsti teigur er
og skilja kerruna eftir þeim megin flatarinnar þar sem
styst er á næsta teig.
3. Takið boltann upp þegar ljóst er að þið getið ekki
fengið punkt lengur.
4. Fylgjast vel með hópnum fyrir framan og reynið að
dragast ekki aftur úr honum. Algengur misskilning-
ur er að fylgjast með þeim sem koma á eftir.
5. Nota tímann þegar aðrir í leikhópnum eru
að pútta til að gera við för eftir niðurkomu
boltans á flöt.
6. Yfirgefa flötina um leið og allir hafa
klárað – leikmenn geta fært skorið á
skorkortið á næsta teig meðan aðrir eru
að leika í leikhópnum.
Hollráð Hinna
Hvernig má hraða leik ?