Fréttablaðið - 21.06.2010, Page 4
4 21. júní 2010 MÁNUDAGUR
Steinunn Stefánsdóttir var höfundur
leiðara Fréttablaðsins síðastliðinn
laugardag en merking hans féll niður.
ÁRÉTTING
Meðalbiðtími eftir hjartaaðgerð er
einn til tveir mánuðir, ekki fimm ár,
eins og ranghermt var í fyrirsögn í
laugardagsblaði Fréttablaðsins.
Lónkot í Skagafirði var merkt á
vitlausum stað inn á Íslandskort
sem fylgdi grein í laugardagsblaðið
Fréttablaðsins. Hið rétta er að Lónkot
liggur miðja vegu milli Sauðárkróks
og Siglufjarðar, 12 kílómetra norður af
Hofsósi í Skagafirði.
LEIÐRÉTT
KREPPAN Seðlabankastjóri Írlands
segir fátt sameiginlegt með
orsökum kreppunnar á Íslandi
og Írlandi. Í ítarlegri skýrslu um
orsakir írsku kreppunnar, sem
hann sendi frá sér fyrir fáein-
um vikum, segir hann hegðun
íslensku bankanna hafa verið
afar frábrugðna því sem tíðkað-
ist á Írlandi.
„Rannsóknarnefnd Alþingis
greinir frá ótrúlega háum upp-
hæðum lána innanbúðarmanna
í bönkunum til sjálfra sín; hjá
Glitni, Kaupþingi og Landsbanka
var mesta áhættan vegna lána
aðaleigenda bankanna. Þótt lán
til framkvæmdastjóra í einum
írskum banka hafi vakið athygli,
þá var það miklu minna í snið-
um,“ segir í skýrslunni. „Í reynd
höfðu bankarnir sameiginlega
fjármagnað alltof hátt hlutfall af
eiginfé eigenda sinna,“ segir hann
um íslensku bankana.
Í skýrslunni segir einnig að
lán til fasteignakaupa hafi átt
lítinn þátt í kreppunni á Íslandi.
Íslenska bankakerfið hafi orðið
fyrir litlum áhrifum af þeim
markaðsvandræðum, sem banda-
rísku undirmálslánin leiddu af
sér.
Fyrst og fremst hafi það verið
heimatilbúin verðbóla sem lagði
íslenska bankakerfið í rúst.
Þannig hafi tvítugfaldur vöxtur
þriggja stærstu íslensku bank-
anna á sjö árum verið miklu meiri
en vöxtur þess banka á Írlandi
sem hraðast óx, sem var Anglo
Irish Bank.
Gylfi Magnússon, efnahags-
og viðskiptaráðherra, segist vel
geta tekið undir niðurstöður írska
seðlabankastjórans um hegðun
íslensku bankanna.
„Þetta er einmitt eitt af því sem
mest stingur í augu, hversu mikið
bankarnir lánuðu beint og óbeint
til eigenda sinna. Þetta var óhjá-
kvæmilega eitt af því sem mestu
skipti um að þeir féllu og er auð-
vitað afar ámælisvert, þó ekki sé
dýpra tekið í árinni. Þetta er líka
eitt af því sem væntanlega verður
kannað af þeim sem fara yfir það
hvort lög hafa verið brotin með
tilliti til refsingar.“
Gylfi segist reyndar hafa kynnt
sér annað rit um írsku kreppuna,
sem heitir Bankster og er eftir tvo
írska blaðamenn.
„Sú lýsing sem þar var á írska
fjármálakerfinu og írska undrinu
fannst mér mjög keimlík því sem
við erum að upplifa hér. Þeirra
akkilesarhæll var hins vegar sá
að þeir lánuðu svo mikið til alls
konar byggingaframkvæmda og
fasteignakaupa. Nú sitja þeir uppi
með þvílík ógrynni af óseljanleg-
um fasteignum, að þótt við eigum
við vandamál af því tagi að stríða
er það langt frá því að vera sam-
bærilegt.“
gudsteinn@frettabladid.is
Ólík hegðun banka
á Írlandi og Íslandi
Seðlabankastjóri Írlands ber saman orsakir bankakreppunnar á Íslandi og
Írlandi. Hegðun eigenda bankanna hér á landi hafi þar mestu ráðið. Gylfi
Magnússon ráðherra segist geta tekið undir það, en margt hafi þó verið líkt.
SVARTI SAUÐURINN Á ÍRLANDI Írski bankinn Anglo-Irish Bank tapaði 12,7 milljón
evrum á síðasta ári, meira en nokkurt írskt fyrirtæki til þessa. NORDICPHOTOS/AFP
VEIÐI Nýr borgarstjóri Reykjavíkur, Jón
Gnarr, vígði laxveiði sumarsins í Elliðaánum
klukkan sjö í gærmorgun þegar hann renndi
fyrir fyrsta laxinn. Fulltrúi Stangveiðifé-
lags Reykjavíkur aðstoðaði Jón við að landa
sex punda hæng, sem beit á hjá borgarstjóra á
innan við fimm mínútum.
Jón hafði fyrir veiðina lýst því yfir, í opin-
berri dagbók sinni á Netinu, að hann væri sein-
heppinn veiðimaður og aðeins einu sinni farið
í laxveiði áður. Veiðin gekk þó vonum framar
og í gærdag lýsti Jón yfir ánægju með ferðina
í sömu dagbók: „Gaman en soldið kalt. Kominn
með kvöldmatinn.“ Óvenju mikið þykir hafa
gengið af laxi í árnar í byrjun júní.
- jma
Jón Gnarr, nýr borgarstjóri Reykjavíkur, opnaði fyrir laxveiði í Elliðaánum í gærmorgun:
Landaði sex punda hæng eftir fimm mínútur
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
23°
22°
18°
22°
15°
17°
17°
22°
21°
23°
31°
33°
18°
18°
19°
15°Á MORGUN
Strekkingur með S-
strönd, annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
Strekkingur með SA-
strönd, annars hægari.
12
14 13
7
13
13 14
14
12
10
12
12
12
11
13
11
13
12
16
11
8
4
3
4
2
3 3
4
3
2
3
1
MILT VEÐUR
Veður verður milt
á landinu í dag.
Bjartast verður
væntanlega á suð-
austurhorni lands-
ins og þar verður
einnig hlýjast. Á
morgun má búast
við dálítilli vætu
víða en á miðviku-
dag birtir líklega til
um landið vestan-
og norðanvert.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
DÝRALÍF Leðurblaka kom með
flutningaskipinu Helgafelli til
Vestmannaeyja á föstudag. Leður-
blakan er nú geymd á Fiskasafn-
inu í Vestmannaeyjum.
„Fjölmargir hafa lagt leið sína
hingað alla helgina til að skoða
leðurblökuna,“ upplýsir Georg
Skæringsson, verk- og tækni-
stjóri Fiskasafnsins. Georg segir
að reynt verði að halda leðurblök-
unni á lífi eins lengi og hægt er.
Inntur eftir því í hvaða ástandi
leðurblakan sé segir Georg: „Ég
veit það ekki. Hún sefur og sefur
á daginn og er voðalega róleg.
Hún lætur ekki mannfjöldann
trufla sig.“ - mmf
Óvæntur gestur í Eyjum:
Leðurblaka
með Helgafelli
LIFANDI LEÐURBLAKA Leðurblakan
sefur róleg á daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
BRETLAND Howard Martin, bresk-
ur læknir, hefur játað að hafa
bundið enda á líf 18 sjúklinga
sinna, með of stórum morfín-
skammti. Sonur hans var í hópi
hinna látnu.
Howard Martin var árið 2005
sýknaður af því að hafa myrt
þrjá sjúklinga sína en nýlega
játaði hann í viðtali við breskt
dagblað að hafa valdið dauða
sjúklinga sinna og ber því við að
hann hafi gert það af „kristilegri
meðaumkun“. Þeir hafi þjáðst og
hann iðrist einskis. Sjúklingarn-
ir voru að hans sögn dauðvona
en breska læknaráðið, sem hefur
fordæmt gerðir Martins, segir
ekki sannað að sjúklingarnir
hafi í öllum tilfellum liðið kvalir
og í einu tilfelli hefði sjúklingur
getað náð fullum bata. Ákæru-
valdið íhugar að taka upp málið
að nýju gegn Martin. - jma
Batt enda á líf sjúklinga:
Gaf banvænan
morfínskammt
MENNTUN Stærsta útskrift Háskól-
ans í Reykjavík hingað til fór
fram á laugardag. Alls útskrif-
aðist 501 nemandi frá skólanum.
Hópurinn samanstóð af 272 körl-
um og 229 konum.
Ari Kristinn Jónsson, rektor
Háskólans í Reykjavík, gerði
niðurskurð til háskóla lands-
ins meðal annars að umtalsefni
í ræðu sinni til útskriftarnema.
Hann sagði að háskólamenntun
og nýsköpun væru þeir þættir
sem helst stuðluðu að verðmæta-
sköpun og hagvexti. Með því að
draga úr framboði háskólamennt-
unar væri verið að hægja á við-
reisn efnahagslífsins. - mmf
Útskrifað frá HR:
Stærsta útskrift
Háskólans í
Reykjavík
GÓÐ BYRJUN Jón Gnarr landaði
tveimur löxum, sex punda hæng
og fjögurra punda hrygnu, í Elliða-
ánum í gærmorgun.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍEL
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 18.06.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,0577
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,63 127,23
187,54 188,46
156,56 157,44
21,041 21,165
19,881 19,999
16,383 16,479
1,3973 1,4055
186,79 187,91
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR