Fréttablaðið - 21.06.2010, Síða 5

Fréttablaðið - 21.06.2010, Síða 5
Hýsum „gersemar heimsins“ Látum verkin tala – eflum Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að stórefla starfsemi sína með því að setja á laggirnar alþjóðlega tungumálamiðstöð þar sem leikir og lærðir geta fræðst á lifandi og skapandi hátt um erlend tungumál og skyggnst inn í ólíka menningarheima. Til að skapa þessu tímamótaverkefni viðeigandi ramma er í undirbúningi að reisa hús fyrir alla starfsemi stofnun- arinnar, m.a. rannsóknir og kennslu í erlendum tungumálum. Vigdísi Finnbogadóttur er þetta verkefni afar hugleikið og hún hefur sjálf lagt mikið af mörkum við undirbúning þess. Vigdís hefur ætíð talað einarðlega fyrir mikilvægi tungumálakunnáttu og menningarþekkingar. Við viljum taka undir orð hennar um leið og við heiðrum mikilvægt framlag hennar til tungumála. Í tilefni af stórafmæli Vigdísar og því að 30 ár eru liðin frá sögulegu forsetakjöri hennar hafa margir orðið til að leggja byggingar verkefninu lið og er vonast til að takast megi að fullfjármagna það á þessu afmælisári. Fram til 29. júní stendur yfir þjóðarátak, þar sem öllum – einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum – gefst tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Sýnum hug okkar í verki Göngum til liðs við Vigdísi svo þetta metnaðarfulla verkefni megi verða að veruleika. Styrktarsímanúmer: 903 1030 1.000 kr. 903 3030 3.000 kr. 903 5030 5.000 kr. Hægt er að greiða með greiðslukorti á vigdis.hi.is eða leggja inn á reikningsnúmer byggingarsjóðs: 0137-26-000476, kt. 600169-2039. Tilgreina þarf í skýringu: 137567. Nánari upplýsingar um verkefnið og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur eru á www.vigdis.hi.is Tungumál heimsins eru gersemar. Vigdís Finnbogadóttir Þekking á erlendum tungumálum er fámennri þjóð með eigin tungu og menningu bráð nauðsyn. Hún er lykill að auknum skilningi og víðari sýn á heiminn í veröld þar sem allt og allir koma okkur við í síauknum mæli. Tungumál heimsins þarf að skilja svo samskipti geti farið farsællega fram. Bandalag háskólamanna – Bandalag íslenskra listamanna – Barnaheill – Blindrafélagið – Exedera – Ferðamálastofa – Félag heyrnarlausra Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga – Félag kvenna í atvinnurekstri – Félag leiðsögumanna – Edda öndvegissetur – Kennarasamband Íslands Krabbameinsfélag Íslands – Kvenfélagasamband Íslands – Kvenréttindafélag Íslands – Landvernd ríkisins – Leikfélag Reykjavíkur – Móðurmál Rótarý á Íslandi – Samhjálp kvenna – Samtök atvinnulífsins – Samtök kvenna af erlendum uppruna – Skógræktarfélag Íslands Skotturnar, kvennafrí – STÍL, samtök tungumálakennara – Útflutningsráð Íslands – Verkfræðingafélag Íslands – Yrkja – Zontasamband Íslands. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.