Fréttablaðið - 21.06.2010, Page 12

Fréttablaðið - 21.06.2010, Page 12
12 21. júní 2010 MÁNUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Breytt lög um fjármálafyrirtæki Umtalsverðar breytingar á lögum um fjármála- fyrirtæki voru samþykktar á Alþingi. Gera má ráð fyrir að lögin breyti starfsum- hverfi íslenskra fjármála- fyrirtækja mikið í kjölfarið. Meðal breytinga er að Fjár- málaeftirlitinu (FME) eru gefnar auknar valdheimild- ir, settar eru ýmsar skorður við lánveitingum fjármála- stofnana og reglur um stór- ar áhættuskuldbindingar eru þrengdar. Ný lög um fjármálafyrirtæki voru samþykkt á Alþingi síðasta laugar- dag en um er að ræða umtalsverð- ar breytingar frá fyrri lögum. Lagafrumvarpið var lagt fram af Gylfa Magnússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, en var samið af nefnd sem skipuð var af Björg- vini G. Sigurðssyni, þáverandi við- skiptaráðherra, í kjölfar banka- hrunsins haustið 2008. Beindust augu manna að því hvort eitthvað í innlendu reglu- verki kynni að hafa brugðist eða hvort bæta mætti virkni þess, ekki síst með það að markmiði að komið yrði í veg fyrir að sambærilegir erfiðleikar endurtækju sig, að því er fram kemur í athugasemdum við frumvarpið. Var hugað sérstaklega að því hvort tilefni væri til að endurskoða ákvæði um lán og viðskipti starfs- manna fjármálafyrirtækja við slík fyrirtæki. Jafnframt var stuðst við skýrslu um lagaumhverfi og fram- kvæmd fjármálaeftirlits á Íslandi sem finnski bankaeftirlitsmaður- inn Kaarlo Jännäri samdi fyrir ríkisstjórn Íslands og skilaði í mars 2009. „Ég held að þetta sé mjög stórt skref fram á við og að við getum á grundvelli þessara laga treyst því að við séum komin með nokkuð góða umgjörð um fjármálakerf- ið. Hún er þó ekki endanleg, það er ýmislegt sem á eftir að skoða og það verður gert,“ sagði Gylfi Magnússon og bætti því við að þessar breytingar væru í stórum dráttum í samræmi við það sem hefði verið að gerast erlendis. Spurður hverjar hann teldi mik- ilvægustu breytingarnar svaraði Gylfi: „Það sem skiptir mestu máli eru þær skorður sem settar eru við lánveitingum banka, sérstak- lega lán með veði í eigin bréfum eða bréfum annarra fjármálafyr- irtækja og lán eða önnur fyrir- greiðsla til tengdra aðila.“ Gylfi sagðist reikna með því að frekari breytingar yrðu gerðar á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja á haustþingi. Jafnframt yrðu lög um Seðlabankann og FME skoðuð. magnusl@frettabladid.is Umtalsverðar breytingar á lög- um um fjármálafyrirtæki Ein af niðurstöðum rannsóknar- nefndar Alþingis var að brýn þörf væri á að skýra lagagrundvöll um innra eftirlit fjármálafyrirtækja. Í nýjum lögum er skerpt á reglum um innri endurskoðun í fjármálafyr- irtækjum. Fjármálafyrirtæki, önnur en verðbréfamiðlanir og rafeyrisfyr- irtæki, skulu nú hafa starfandi end- urskoðunardeild sem annast innri endurskoðun. Skal deildin gera FME grein fyrir niðurstöðum kannana sinna eigi sjaldnar en árlega. Fjöldi starfsmanna skal endur- spegla stærð fyrirtækisins og settar eru reglur um menntun og reynslu yfirmanns slíkrar deildar. Að auki getur FME nú sett reglur um framkvæmd áhættustýringar og stöðu þeirra sem framkvæma hana. Framkvæmd áhættustýringar í gömlu bönkunum var líka gagnrýnd í rannsóknarskýrslu Alþingis. Meiri kröfur til stjórnarmanna Ákveðnar breytingar eru gerðar á hæfisskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í fjármálafyr- irtækjum. Meðal nýmæla mega stjórnarmenn og framkvæmdastjóri fjármálafyrirtækis ekki hafa hlotið dóm vegna brota á samkeppnis- lögum eða sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi, þar á meðal lögum um fjármálafyrirtæki. Lögð eru til þrengri og skýrari ákvæði um fjárhagsstöðu, mennt- un, starfsreynslu og starfsferil en áður, en jafnframt er gert ráð fyrir að bæði stjórnarmenn og framkvæmdastjórar fari í sérstakt hæfismat hjá FME. Innra eftirlit aukið Þeim ákvæðum þar sem FME fær heimildir til að leggja mat á rekstur eða hegðun eftirlitsskylds aðila er fjölgað en þetta var ein af tillögunum sem birtust í skýrslu Kaarlo Jännäri. Meðal nýrra heimilda FME eru: ■ FME er heimilt að takmarka starfsemi einstakra starfs- stöðva fjármálafyrirtækja telji það sérstaka ástæðu til. Því er enn fremur heimilt að setja starfsstöðvum sérstök skilyrði fyrir áframhaldandi starfsemi. ■ FME getur sett reglur um framkvæmd áhættustýring- ar, stöðu þeirra sem framkvæma áhættustýringu, og um eftirlitskerfi vegna áhættuþátta í starfsemi slíkra fyrirtækja. ■ FME er heimilt að krefja fjármálafyrirtæki um upplýs- ingar um skuldbindingar sínar telji það að lántökur einstaks aðila geti haft kerfislæg áhrif. ■ FME leggur mat á hvort sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhluta (það er beina eða óbeina hlutdeild í félagi sem nemur 10 prósentum eða meira) sé hæfur til að eiga eignarhlutann. ■ Leiki vafi á því hver sé eða verði raunverulegur eigandi virks eignarhluta skal FME telja viðkomandi óhæfan til þess að fara með eignarhlutann. ■ FME skal setja reglur um hvað teljast eðlilegir við- skiptahættir. ■ Heimildir FME til að leggja stjórnvaldssektir á þá sem gerast brotlegir gegn lögum um fjármálafyrirtæki eru auknar. Auknar heimildir Fjármálaeftirlitsins Bann við lánum með veði í eigin bréfum Fjármálafyrirtækjum er nú óheimilt að veita lán sem eru tryggð með veði í hlutabréfum eða stofnfjárbréfum útgefnum af þeim sjálfum. Sama gildir um aðra samninga sé undirliggjandi áhætta á eigin bréf. Slíkar lánveitingar voru algengar í íslensku bönkunum og þá sérstaklega Kaupþingi árin fyrir bankahrunið, að því er fram kemur í rannsóknarskýrslu Alþingis, og veiktu getu fjármálakerfisins til þess að standa af sér áföll. Dæmi þess voru fjölmörg að eignarhaldsfélög fengu lán til hlutabréfa- kaupa með veðum í bréfunum sem skyldu keypt. Slíkar lánveitingar hafa í för með sér að ef bréfin lækka í verði tapar eigandi félagsins engu en ef þau hækka græðir hann. Áhætta lántakandans er því engin en bankans mikil. Reglur um stórar áhættur þrengdar Reglur um stórar áhættuskuldbindingar eru skýrðar og þrengdar. Áhætta vegna eins viðskiptamanns eða hóps tengdra viðskiptamanna má framvegis ekki fara fram úr 25 prósentum af eiginfjárgrunni fjármálafyrirtækis. Sé lánveiting vegna móður- eða dótturfélags fjármálafyrir- tækis skulu mörkin vera 20 prósent. FME getur hins vegar tilgreint lægri hlutföll fyrir einstök fyrirtæki. Leiki vafi á því hverjir teljist til hóps tengdra aðila er fjármálafyrirtæki skylt að tengja aðilana saman nema viðkomandi fjármálafyrirtæki geti sýnt fram á hið gagn- stæða. Samanlagt má stór áhætta fyrirtækis ekki fara yfir 800 prósent af eiginfjárgrunni en með stórri áhættu er átt við áhættu sem nemur 10 prósentum eða meira af eiginfjár- grunni. Lán til starfsmanna takmörkuð Fjármálafyrirtækjum er nú óheimilt að veita lán eða aðra fyrirgreiðslu til stjórnarmanns, lykilstarfsmanns eða þess sem á virkan eignarhlut í því nema gegn traustum tryggingum. Það sama gildir um aðila í nánum tengsl- um við framangreinda. FME er falið víðtækara eftirlit en áður með slíkum viðskiptum. Enn fremur er samningur fjármálafyrirtækis um lán, ábyrgðir, kauprétt eða sambærileg viðskipti við fram- kvæmdastjóra nú háður samþykki stjórnar viðkomandi fyrirtækis. Ákvörðun stjórnar skal bókuð og tilkynnt FME. Það sama gildir um viðskipti við þá sem eru í nánum tengslum við framkvæmdastjóra fjármálafyrir- tækis. Reglur um hvatakerfi og kaupauka FME skal setja reglur um kauprétti og kaupaukagreiðsl- ur fjármálafyrirtækja. Fjármálafyrirtækjum er áfram heimilt að veita slík hlunnindi en taka skal tillit til heild- arafkomu fjármálafyrirtækis yfir lengri tíma, undirliggj- andi áhættu og fjármagnskostnaðar. Áunnin réttindi starfsmanna samkvæmt kaupaukakerfi skulu færð til gjalda á hverju ári og sérstaklega gerð grein fyrir þeim í skýringum með ársreikningi. Fjármálafyrirtæki er nú óheimilt að gera starfsloka- samning við framkvæmdastjóra eða annan lykilstarfs- mann nema hagnaður hafi verið af rekstri fyrirtækisins samfellt síðustu þrjú ár af starfstíma hans. Starfslokasamningar skulu vera í formi beinna launagreiðslna og ekki vara lengur en í tólf mánuði eftir starfslok. Dregið úr áhættu fyrirtækja BREYTT STARFSUMHVERFI Starfsumhverfi fjármálafyrirtækja á Íslandi breytist umtalsvert með nýjum lögum. FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ Þeim ákvæðum er fjölgað þar sem FME fær heimildir til að leggja mat á rekstur eða hegðun fjármálafyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég held að þetta sé mjög stórt skref fram á við og að við getum á grundvelli þessara laga treyst því að við séum komin með nokkuð góða umgjörð um fjármálakerfið. GYLFI MAGNÚSSON EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.