Fréttablaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 18
21. júní 2010 MÁNUDAGUR2
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALAN HAFIN!
Laugavegi 178 - Sími: 551 2070
Sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Lokað á laugardögum
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
teg. DECO - glæsilegur,
létt fylltur í D,DD,E,F,FF,G
skálum á 8.850 kr.
NÝTT
GLÆSILEGT • YNDISLEGT
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is
www.raudakrosshusid.is |
Opið virka daga kl. 12-17
Dagskrá vikunnar
Rauðakrosshúsið
Ókeypis
Mánudagur 31. maí
Skip án skipstjóra - Settu þér markmið og fylgdu þeim eftir. kl.12:30 -13:30
EFT og djúpslökun - Umbreyttu heftandi viðhorfum með EFT tækninni.
Umsjón: Viðar Aðalsteinsson, EFT sérfræðingur. kl.14:30-16:30
Þriðjudagur 1. júní
Qi–Gong kl. 12-13 Gönguhópur kl. 13-14 Íslenskuhópur kl. 13-14
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) kl. 14-16
Miðvikudagur 2. júní
Tölvuaðstoð kl. 13.30-15.30 Briddsklúbbur kl.14-16
Lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur kl. 14-16
カツ丼 (Katsudon) ogチキン丼 (Chikin-don) - Fáðu að smakka og
lærðu að búa til japanskan hversdagsmat af Toshiki Toma. kl.12:30 -13:30
Möguleikar internetsins fyrir þig - Hvernig getur þú markaðssett þig
eða áhugamálið á netinu? Umsjón: Ólafur Þór Ólafsson. kl.15:30-16:30
Fimmtudagur 3. júní
Saumasmiðjan kl. 13-15 Jóga kl. 15-16
Gönguhópur kl. 12.30-13.30 Hláturjóga kl. 15:30 -16:30
Hvernig stöndumst við álag - Hvers vegna snögg reiðumst við eða pirrum
okkur yfir smámunum í daglegu lífi? Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur. kl.12:30-14
Meðvirkni - Ráðgjafar Lausnarinnar fjalla um meðvirkni og afleiðingar hennar
á fjölskyldulífið. kl.14-15
Föstudagur 4. júní
Prjónahópur kl. 13-15 Skákklúbbur kl. 15:30-17
Ekta ítalskar kjötbollur - Lærðu að gera alvöru ítalskar kjötbollur og fáðu
smakk í lokin. Umsjón: Aurelio Ferro, arkítekt og matgæðingur. kl.12:15 - 13:15
Föndur, skrapp myndaalbúm og kort - Hafðu skæri með. kl.12-14
Heilsu- og hreyfingarhópur - Vertu með í skemmtilegum og fjöl-
breyttum hópi sem hjálpar þér að halda þér við efnið. kl.14-15
Skiptifatamarkaðurinn fer í sumarfrí - Síðasti markaðurinn fyrir
sumarið! kl. 16-18
Arkitektinn og húsgagnahönn-
uðurinn Óli Jóhann Ásmundsson
opnaði Gallerí ÓJÁ á Laugavegi
178 fyrir skemmstu en þar er að
finna frumleg húsgögn af ýmsu
tagi. „Ég byrjaði að hanna fyrir
fimmtán árum og hef gert það
svona í og með síðan. Ég varð sjö-
tugur fyrir nokkru og ákvað að
opna gallerí í stað þess að setjast
í helgan stein.“
Óli Jóhann talar um að húsgagna-
hönnuðir skiptist í tvo hópa. „Þeir
eru ýmist nýskapandi eða túlkandi.
Þeir sem eru túlkandi eiga yfir-
leitt auðveldara með að selja vör-
urnar sínar enda kannast fólk við
svipmótið en húsgögn sem tilheyra
hinum hópnum eru yfirleitt nokk-
uð framandi.“ Óli Jóhann fellur án
vafa í flokk hinna nýskapandi enda
verða húsgögnin hans seint talin
ófrumleg.
Fyrsta verk Óla Jóhanns var
stóllinn Delta sem vakti nokkra
athygli. Hann er á lömum og er
þeim kostum búinn að það er hægt
að fella hann saman. „Árni Páll
Jóhannsson, sem hannaði sýning-
arskálann á heimssýningunni í
Hannover árið 2000, tók hann með
sér út og í kjölfarið fékk hann opn-
uumfjöllun í þýska hönnunartíma-
ritinu Moebel Interior Design. Það
varð til þess að hann vakti athygli
hér heima sem leiddi til þess að
ég hélt sýningu í Hönnunarsafni
Íslands árið 2002. Ég hef síðan
verið að bæta við húsgögnum hægt
og bítandi og hélt aðra sýningu á
Kjarvalsstöðum árið 2007.“
Meðal annarra verka Óla
Jóhanns má nefna stólinn Loka.
Hann er líka hægt að fella saman
og er til sýnis á söfnum í Ósló, Berl-
ín og Vilníus. „Ég er svo alltaf með
fleiri hugmyndir í höfðinu en það er
spurning hvort þeim verði komið í
framkvæmd.“ vera@frettabladid.is
Fer ekki troðnar slóðir
Óli Jóhann Ásmundsson opnaði húsgagnagallerí á Laugavegi fyrir skemmstu en þar er að finna húsgögn
sem hann hefur gert á síðustu árum. Mörg eru þannig úr garði gerð að hægt er að fella þau saman.
Delta-stólarnir hafa vakið talsverða
athygli.
Meditor heitir þessi stóll sem lagar sig
vel að líkamanum.
Skápurinn er laus við allar skrúfur eins og önnur húsgögn Óla Jóhanns og er því lítið
mál að taka hann í sundur og setja aftur saman. FRÉTTABLAÐIÐÖ/VILHELM
SMÁHLUTIR hafa mikið að segja og oft má gerbreyta her-
bergi bara með því að skipta þeim út. Alls konar flöskur, sápur
og burstar geta til dæmis gert mikið fyrir baðherbergið.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447