Fréttablaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 29
híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 3
Gömlum viðarhúsgögnum er
vel hægt að forða frá því að
fara á haugana eins og með-
fylgjandi myndir sanna. Hér er
að finna tvær leiðir til að koma
þeim í fyrra horf.
Viðarhúsgögn sem standa úti frá
vori og fram á haust þarfnast við-
halds á nokkurra ára fresti. Tvær
leiðir eru til að koma þeim í fyrra
horf. Annars vegar er hægt að
slípa viðinn upp og bera síðan á.
Hins vegar má nota efni til að fjar-
lægja gamalt lakk áður en nýtt er
borið yfir.
Þeir Hlynur Magnússon og
Arnar Már Þorsteinsson hjá Húsa-
smiðjunni kunna réttu tökin og
komu gömlu borði og stól í stand.
„Ég ákvað að slípa borðið enda
var það frekar illa farið. Ég not-
aði til þess svokallaðan skrið-
dreka og fór yfir allt með sand-
pappír númer sextíu sem er sér-
staklega grófur. Á kantana notaði
ég síðan lausan pappír og fór svo
yfir allt með pappír númer hundr-
að,“ segir Hlynur. Eftir að hafa
burstað sag og drullu af borðinu
var hann búinn að gera borðið til-
búið fyrir olíuna og þá tók Arnar
Már við. „Galdurinn er að löðra
borðið í olíu og bera sífellt nýja
umferð á blautt yfirborðið. Það
er síðan látið standa um stund og
yfirleitt ýrast litlar trefjaagnir upp
í timbrinu. Þeim er náð niður með
því að slípa viðinn á meðan hann
er ennþá blautur með fínum vatns-
pappír en þannig næst eggslétt
áferð. Umframolían er síðan fjar-
lægð með bómullarklút og borðið
látið þorna í um það bil sólarhring.
Að því loknu er gott að fara aftur
yfir með fínum pappír til að fjar-
lægja mögulegar trefjar, olíubera
á ný og þurrka að lokum umfram-
olíuna af,“ segir Arnar.
Hann beitti svo öðrum aðferðum
við að lappa upp á stólinn. „Fyrst
bleytti ég hann upp með vatni og
bar svo á hann sterkan pallahreinsi
sem hreinsar uppsöfnuð óhrein-
indi. Ég notaði til þess grófan pens-
il og gætti þess að vera með hanska
enda um ætandi efni að ræða.“ Efn-
inu er leyft að virka í fimmtán mín-
útur og það svo fjarlægt með vatni.
Þá er bleikiefni borið á og því leyft
að virka jafn lengi. Það er svo
spúlað af og stóllinn látinn þorna
í sólarhring. Þá er olían borin á og
sífellt farnar nýjar umferðir ofan
í blautan viðinn. Umframolían er
síðan þurrkuð af og ættu húsgögnin
að duga næstu árin. - ve
Notað verður nýtt
Húsgögnin hafa heldur betur tekið breyt-
ingum og ættu að nýtast vel í sumar.
Mikilvægt er að bleyta viðinn fyrir
meðhöndlun svo efnin vinni aðeins á
yfirborðinu.Kominn tími á viðhald.
Arnar fjarlægir umframolíu með bómullarklút.
Galdurinn er að löðra borðið í olíu og fara
sífellt nýja umferð á blautt yfirborið.
Hlynur notar lausan pappír á kantana.
Hlynur byrjar á því að slípa borðið upp
með skriðdreka og notar til þess grófan
pappír. Skriðdrekann má ýmist kaupa
eða leigja í Húsasmiðjunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1
2
3 5
4
Eins og nýr.
1
Til að ná niður litlum trefjaögnum
sem ýrast upp er farið yfir lakkið með
vatnspappír númer 200 en þannig fæst
eggslétt áferð.
3
2