Fréttablaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 32
6 •
GLAMÚRFYRIRSÆTA M
STERKAR SKOÐANIR
Silíkonbrjóst, nærfatamyndatökur, fegurðarsamkeppnir og femínismi. Bryndís Gyða Grímsdóttir, 19 ára
fyrirsæta með meiru, er með skoðanir á þessu öllu og hefur vakið eftirtekt fyrir hispurslaus skrif sín sem
Pressupenni á Pressan.is. Þar deilir hún sinni reynslu af silíkonaðgerð, sem hún mælir hiklaust með,
og umdeildu atviki sem hún lenti í í fegurðarsamkeppni í Þýskalandi. Pistlarnir eru allt frá stefnu-
mótaráðleggingum til mataruppskrifta og því greinilegt að Bryndísi er margt til lista lagt.
Bryndís Gyða er uppalin á Höfn í Hornafirði
en er að eigin sögn of mikið borgarbarn
fyrir sveitina. Elst af þremur systkinum og á
foreldra sem vilja helst hafa hana í bómull.
Þrátt fyrir ungan aldur stefnir Bryndís hátt
og er staðráðin í að láta alla sína drauma
rætast, og þeir eru fleiri en einn.
„Ég er týpískur tvíburi (stjörnumerkið) og
verð alltaf að hafa eitthvað í pípunum. Ég
er alltaf að gera eitthvað nýtt og skipta um
umhverfi,“ segir Bryndís og er meðal annars
að fara í einkaþjálfaraskólann í haust. Útlit,
tíska og heilsa eiga hug hennar allan en einna
helst vill hún starfa í fjölmiðlum og sinna
tónlistinni sinni en hún hefur mjög gaman
af því að syngja. Og leika. „Ég stefni á að
fara á fullt í að leika og syngja á næstunni.
Ég er búin að finna pródúser sem vill vinna
með mér og við sjáum hvað kemur út úr því.“
Bryndís segist einnig gjarna vilja prófa að
vinna í sjónvarpi. „Ég mundi alveg vilja vera
með minn eigin þátt um tísku og alls konar
sniðugt fólk. Ég er með fullt af hugmyndum
um hvernig þátt ég vil gera og er til dæmis
með eitt spennandi verkefni í bígerð sem
fer vonandi af stað í haust.“
Bryndís hóf nám við Fjölbrautaskólann
í Ármúla þegar hún flutti til Reykjavík-
ur en hætti á síðasta ári til að fara út að
keppa í fegurðarsamkeppnum. „Ég tel að
það sem ég vil gera í framtíðinni sé meira
tengt listum og ætla að bíða aðeins með
stúdentsprófið.“
Þegar hún er ekki að sinna fyrirsætu-
störfum eða skrifa pistla á netið vinnur
Bryndís á heimili fyrir langveika. Hún eyðir
því hversdeginum milli mjög ólíkra heima
og segir það að vinna með veiku fólki haldi
sér á jörðinni.
Femínismi og silíkon
Bryndís sóttist sjálf eftir því að verða pressu-
penni og telur sig hafa margt fram að færa
við unga jafnt sem aldna. „Ég þarf ekki
að hafa mikið fyrir því að skrifa og hef
skoðanir á öllu.“ Innihald pistlanna hennar
er mjög fjölbreytt. Hún ráðleggur fólki um
allt milli himins og jarðar á milli þess sem
hún viðrar sínar eigin skoðanir á málefnum
líðandi stundar. „Ég hef alltaf haft sterkar
skoðanir á öllu og er ekki hrædd við að
segja hvað mér finnst. Stundum þarf ég
að halda aftur af mér þegar ég er að skrifa
og passa mig. Maður getur nú ekki sagt allt
sem maður vill.“
Innihald pistlanna er allt frá tísku að
pólitík. „Ég hef miklar skoðanir á pólitík
og finnst margt rangt í gangi í íslenskum
stjórnmálum. Til dæmis finnst mér Sóley
Tómasdóttir varpa skugga á flokkinn sem
hún er í og á femínisma yfirhöfuð. Það hata
sko ekki allir femínistar karla. Það er leiðin-
legt þegar gott málefni eins og femínismi
er eyðilagt af svona fólki,“ segir Bryndís og
bætir við að hún vilji efla kvenréttindi en að
það eigi líka að vera í lagi að raka sig undir
höndunum og setja á sig maskara. „Er ég
femínisti? Ég veit það ekki, jú jú, eru ekki
allar konur femínistar?“
Bryndís skrifaði færslu um hennar eigin
reynslu af silíkon brjóstastækkun sem hún
fór í 18 ára gömul. Mamma hennar og pabbi
voru á móti aðgerðinni en strax fjórum
dögum eftir 18 ára afmælisdaginn bókaði
Bryndís tíma í brjóstastækkun. „Ég ákvað
að skrifa pistil um þetta til að fá fólk til að
skilja mína ákvörðun og sjá kannski aðra
hlið á svona aðgerðum. Ég var mjög feimin
að klæða mig úr bikinítoppnum í sundi og
þetta var farið að há mér. Ég gerði þetta
bara fyrir mig og engan annan,“ segir Bryndís
og meinar að silíkonaðgerðin hafi breytt
miklu fyrir hana og sjálfsöryggið.
Bryndís ráðleggur fólki hvernig best er
að mála sig, gera á sér hárið og halda sér
í formi í færslunum sínum. „Ég er bara
sjálflærð í þessu en stefni á nám í förðun
bráðlega. Ég hef alveg svakalega mikinn
áhuga á öllu sem tengist útliti og er mjög
oft beðin um að farða og ráðleggja fólki í
kringum mig varðandi útlit. Ég hef fengið
mikið hrós fyrir það.“
Einnig sest hún í stól sambandsráðgjafa
og ráðleggur fólki um samskipti kynjanna.
„Ég tek bara vandamál sem vinir mínir og
ég sjálf erum að eiga við og reyni að leysa
þau í pistlunum mínum. Til dæmis skrifaði
ég fyrir nokkru um hvernig stelpur eiga ekki
að haga sér við stráka. Strákar vilja elta og
stelpur eiga ekki að vera of ákafar.“
Eftir að Bryndís byrjaði að skrifa á
netið hefur pósthólfið hennar fyllst af
bréfum og spurningum varðandi allt milli
himins og jarðar. Hún segist svara öllum
þeim póstum sem hún fái og vonar að sem
flestir geti notið góðs af.
Með bein í nefinu
Bryndís viðurkennir að hún er glamúrfyrir-
sæta og veigrar sér ekki við að sitja fyrir á
nærfötum. „Ég hef ekkert á móti því að koma
fram á nærfötum og sé engan mun á því og
vera í bikiní í sundi. Þetta hylur alveg jafn
mikið. Ég skil ekki alveg af hverju fólk er á
móti nærfatafyrirsætum en fer svo í sund.
Það er alveg það sama fyrir mér.“
Þó svo að Bryndís hafi ekki tekið þátt
í fegurðarsamkeppni Íslands hefur hún
tekið þátt í tveimur fegurðarsamkeppnum
á erlendri grundu. „Mér var boðin þátttaka
í Ungfrú Ísland en ég hafði einfaldlega ekki
tíma og ég veit ekki hvort ég mun gera það
í framtíðinni.“ Henni bauðst þátttaka í Miss
Civilization of the World í Tyrklandi og Top
Model of the World í Þýskalandi í gegnum
umboðsmann í Stokkhólmi. „Hann hafði séð
myndir af mér á netinu og hafði samband.
Ég hef mikinn áhuga á að ferðast og leit á
þetta sem tækifæri fyrir mig að sjá heiminn.“
Bryndís segir að stelpur verði samt að passa
sig og maður verði að athuga allt vel áður
en haldið er út á vit ævintýranna. „Það eru
margir svindlarar í þessum bransa.“
Bryndís varð einmitt vitni að dökku hliðinni
á þessum keppnum í Þýskalandi en einn af
dómurunum í fegurðarsamkeppninni lofaði
henni úrslitasæti í skiptum fyrir að hún
kæmi með honum upp á herbergi. Bryndís
afþakkaði pent og var ekki skemmt yfir
upplifuninni. „Ég held að ég sé ekki þessi
fegurðarsamkeppnistýpa. Ég nenni ekki
að brosa bara og vera sæt eins og margar
af þessum stelpum. Ég var ein af fáum
sem þorðu að segja eitthvað og kvarta við
aðstandendur keppnanna ef mér mislíkaði
eitthvað,“ segir Bryndís og viðurkennir að
hún sé með bein í nefinu og láti ekki vaða yfir
sig. Hún vill þó ekki loka á frekari þátttöku
innan fegurðargeirans en er núna með nóg í
gangi. Til dæmis spennandi verkefni í Dúbaí
sem hún er að íhuga. „Dúbaí er náttúrulega
land sem er sko eins og Ísland í góðærinu
sinnum 100. Þar er allt að gerast núna og
ég fengið mörg tilboð þaðan, til dæmis að
gera æfingamyndband, tónlistarmyndband
og fyrirsætustörf. Ég er núna búin að taka
þátt í tveimur keppnum á þessu ári og það
er frekar mikið, en það er aldrei að vita hvað
gerist ef gott tækifæri býðst.“
„ÉG HEF EKKERT Á MÓTI ÞVÍ AÐ KOMA FRAM Á NÆRFÖTUM OG SÉ ENGAN MUN Á ÞVÍ AÐ VERA Í
BIKÍNI Í SUNDI. ÞETTA HYLUR ALVEG JAFN MIKIÐ. ÉG SKIL EKKI ALVEG AFHVERJU FÓLK ER Á MÓTI
NÆRFATAFYRIRSÆTUM EN FER SVO Í SUND. ÞAÐ ER ALVEG ÞAÐ SAMA FYRIR MÉR.“
HVAÐ ÞURFA STRÁKAR AÐ
GERA TIL AÐ NÆLA SÉR Í
DRAUMADÍSINA?
Komdu fram við stelpuna þína
eins og prinsessu. Láttu hana vita
það að þú sért hrifinn af henni og
bjóddu henni að gera eitthvað
öðruvísi en það vanalega. Kynntu
hana fyrir nýjum hlutum og hugs-
aðu út fyrir kassann.
Til dæmis fara í göngutúr, gefa
öndunum brauð eða fara í river raft-
ing. Stelpur elska stráka sem þær
geta lært eitthvað nýtt af. Það er
mjög gefandi og gaman að vera
með svoleiðis strákum.
ÓFEIMIN Bryndís Gyð
engan mun á því að si
bikiní og nærfötum, e
fatnaðurinn það sama
ORÐ: Álfrún Pálsdóttir
MYNDIR: Stefán Karlsson
FÖT: Spúútnik