Fréttablaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 6
6 26. júní 2010 LAUGARDAGUR
Pottar og pönnur í miklu úrvali
Fjölbreytt úrval af pottum og pönnum
fyrir allar gerðir eldavéla.
Allt að 50 lítra pottar.
Góð gæði og frábært verð.
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
15% afsláttur til föstudags
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Innifalið: Flug með sköttum, gisting á 4* hóteli
með ríkulegum morgunverði í fimm nætur og
íslensk fararstjórn.
Sumarferð til Berlínar
Verð á mann í tvíbýli:
109.800 kr.Fararstjóri: Eirik Sördal
Borgarferð
22. –27. júlí 2010
TRÚ Biskup Íslands hvetur fólk til
að horfa fram á veginn og taka
höndum saman um stofnunina
hjónabandið, í ljósi þess að Alþingi
hefur nú breytt hjúskaparlögum og
leyft hjónaband samkynhneigðra.
Hann biðst fyrirgefningar
vegna orða um hjónaband sam-
kynhneigðra, sem hann lét falla
árið 2006.
Þá sagði hann að ef hjónaband-
ið yrði ekki lengur skilgreint sem
hjónaband karls og konu væri eitt-
hvað nýtt orðið til og hið sígilda
hjónaband „afnumið“. Hugtakinu
væri þar með hent á sorphaug-
ana.
„Orð mín í hita leiksins hafa
valdið sárum og ég biðst fyrirgefn-
ingar á því,“ segir séra Karl Sigur-
björnsson. Mikið vatn hafi runnið
til sjávar síðan.
„Þetta var tilvísun í að verið
væri að gjörbreyta stofnun sem á
sér mjög fornar rætur og skilgrein-
ingu. Það var út af fyrir sig óheppi-
lega orðað, eins og ýmsar athuga-
semdir sem falla í hita leiksins,“
segir biskup. Of mikið hafi verið
gert úr þessum orðum sínum.
Spurður hvort hann hafi skipt
um skoðun og telji ekki lengur að
hjónabandið bíði hnekki við það
að samkynhneigðir taki þátt í því,
segir Karl að sitt sýnist hverjum
um niðurstöðu Alþingis.
„Ýmsir, þar á meðal ég, vildu
halda í hefðina. Ég var oft í vafa
um hvað væri rétt og rangt í þess-
um efnum,“ segir hann. Á endanum
hafi Karl „tekið afstöðu með hefð-
inni“. Hann hafi talið það skyldu
sína.
„En íslenskt samfélag vildi það
ekki, heldur vildi breyta þessari
hefð og þessari skilgreiningu,“
segir biskup.
Biður samkynhneigt
fólk um fyrirgefningu
Biskup Íslands biðst fyrirgefningar á orðum sínum um áhrif þess að leyfa
hjónaband samkynhneigðra. Hann hafi ekki ætlað sér að særa samkynhneigða.
Biskup hafi „tekið afstöðu með hefðinni“ en íslenskt samfélag vilji breytingar.
SÉRA KARL SIGURBJÖRNSSON Biskup Íslands hvetur fólk til að horfa fram á
veginn og taka höndum saman um stofnunina hjónabandið.
Þjóðkirkjan hefur lokið við drög að nýju hjónavígsluformi og sent til
presta Þjóðkirkjunnar vítt um landið. Það tekur mið af nýjum hjúskapar-
lögum, sem leyfa hjónaband samkynhneigðra.
Samkvæmt drögunum fer prestur með eftirfarandi orð í upphafi athafnar:
„Undursamleg eru verk þín Drottinn Guð vor. Undursamlega skapaðir þú
manninn í þinni mynd, þú skapaðir hann í Guðs mynd.“ Hér getur prestur
valið hvort hann bætir við „Þú skapaðir hann karl og konu“.
Í forminu er tekið tillit til allra kynja: „Frammi fyrir Guðs augliti komum við
saman þegar þið NN og NN játist ævitryggðum og eruð gefin/ gefnar/ gefn-
ir/ saman í hjónaband.“ Einnig: „Saman eigið þið að standa við hlið hvort
annars / hvor annarrar / hvor annars / í tryggð og trúfesti“.
Sígildir lestrar svo sem þar sem segir: „Hafið þér eigi lesið, að skaparinn
gjörði þau frá upphafi karl og konu“, eru enn í boði, en velja má um aðra
lestra líka, svo sem úr Rómverjabréfi þar sem Drottins börn eru hvött til að
vera „ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika“.
Hvernig er nýja hjónavígsluformið?
Karl leggur áherslu á að hann
hafi með orðum sínum ekki ætlað
að særa samkynhneigða. Af og frá
sé að hann hafi viljað standa gegn
þeim í réttindabaráttu þeirra.
„En nú er komin niðurstaða og
skiptir miklu máli að við tökum
höndum saman um að styðja við
hjónabandið og fjölskyldurnar
í landinu. Þetta er elsta stofnun
mannlegs samfélags og það skipt-
ir miklu máli að fólk vill festa ráð
sitt og standa við sínar dýrmæt-
ustu skuldbindingar. Það er aðal-
málið,“ segir biskup.
klemens@frettabladid.is
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs-
aldri hefur verið dæmdur í
tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir
handrukkun. Fórnarlambið, sem
var stórslasað eftir líkamsárás-
ina, neitaði að bera vitni fyrir
dómi af ótta við það sem gæti hent
stæði hann við fyrri frásögn sína í
málinu. Handrukkarinn var engu
síður dæmdur á grunni skýrslu
sem fórnarlambið hafði gefið hjá
lögreglu, vætti tveggja lögreglu-
manna sem komu á vettvang, svo
og vettvangs- og læknisrannsókn
og fleiri gagna.
Það var fimmtudaginn 29. jan-
úar á síðasta ári sem tilkynning
barst til lögreglu um að ráðist
hefði verið á mann í Mosfellsbæ.
Þar reyndist vera tæplega þrítug-
ur maður mikið meiddur á höfði.
Hann kvað tvo menn hafa ruðst
inn til sín. Hefði annar þeirra
sparkað ítrekað í sig, lúbarið sig
með hnúajárni og barsmíðarnar
borist um allt hús. Fórnarlambið
sagði manninn hafa komið til að
innheimta fíkniefnaskuld, rúm-
lega 100 þúsund krónur.
Við læknisskoðun kom í ljós að
sá sem ráðist var á var nefbrotinn,
kinnbeinsbrotinn, fingurbrotinn
og fékk sprungu í höfuðkúpu. Þá
brotnuðu fjórar tennur í honum,
auk þess sem sauma þurfti skurði
í andliti hans.
Í niðurstöðu dómsins kom fram
að árásin á manninn hefði verið
sérlega hrottaleg og ófyr-
irleitin. Árásarmaður-
inn hefði fengið
kunningja til
að veita sér
falska fjar-
vistarsönn-
un sem síðan
var dregin til
baka og reynt
með öðrum hætti að hafa áhrif á
úrslit málsins.
Farsími hans hefði verið stað-
settur í Mosfellsbæ, þótt hann
þættist hafa verið annars staðar
á þeim tíma. Framburður hans
hefði verið hverfull og
ótrúverðugur.
- jss
Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi þótt fórnarlamb þyrði ekki að bera vitni fyrir dómi:
Handrukkari stórslasaði mann með hnúajárni
HNÚAJÁRN
Maðurinn not-
aði hnúajárn
við „innheimt-
una“.
ORKUMÁL Nýr stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur verður
tímabundið í fullu starfi. Þetta var
samþykkt á aðalfundi Orkuveit-
unnar í gær. Kjör hans munu mið-
ast við kjör sviðsstjóra hjá borg-
inni án fríðinda.
Jón Gnarr borgarstjóri lagði
fram áherslur borgarinnar í
rekstri OR á fundinum. Í fyrsta
lagi verði auðlindir nýttar með
þeim hætti að ekki sé gengið á
framtíðarmöguleika til nýtingar
þeirra. Í öðru lagi einkennist allar
ákvarðanir um nýtingu auðlinda
og nýtingin sjálf af ást og virðingu
fyrir umhverfinu og í þriðja lagi
að borgarbúar njóti öruggrar þjón-
ustu frá traustum aðilum og geti
gengið að upplýsingum um störf og
stöðu orkufyrirtækja í eigu borg-
arinnar.
Þá sagði borgarstjórinn að vega-
nesti til nýrrar stjórnar væri að
hún einbeiti sér sérstaklega að
fjármögnun fyrirtækisins, skil-
greini væntanlega úttekt á rekstri
þess með það markmið að skýra
stöðu mála og draga fram áskor-
anir og möguleika í stöðunni.
Auk Haraldar Flosa Tryggva-
sonar stjórnarformanns munu
Helga Jónsdóttir, Aðalsteinn Leifs-
son, Kjartan Magnússon, Sóley
Tómasdóttir og Hrönn Ríkarðs-
dóttir skipa stjórn Orkuveitunnar.
Áheyrnarfulltrúi frá Borgarbyggð
verður Björn Bjarki Þorsteinsson.
- þeb
Aðalfundur Orkuveitunnar samþykkti nýjan starfandi stjórnarformann:
Tímabundið í fullu starfi
BORGARSTJÓRI Jón Gnarr segir vega-
nesti nýrrar stjórnar OR að einbeita
sér að fjármögnun fyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Er réttlætanlegt að hafa
starfandi stjórnarformann í
Orkuveitu Reykjavíkur?
Já 25,2%
Nei 74,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgist þú með fundum stjórn-
málaflokkanna um helgina?
Segðu þína skoðun á vísir.is
KJÖRKASSINN