Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 12
28. júní 2010 MÁNUDAGUR
Kanilsnúðar
Íslenskur gæðabakstur - Tilbúinn í ofninn
FR
YS
TI
VA
RA
Tekur aðeins 7 mínútur
að hella upp á 2,2 lítra
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Wilter Nyabate er ken-
ísk baráttukona sem hefur
undanfarin ár barist gegn
því að fólk í fátækrahverf-
um í höfuðborg landsins
sé flutt nauðugt af heimil-
um sínum. Hún var hér á
landi á vegum Amnesty til
að kynna átakið Stand up
united, sem á íslensku heit-
ir Vertu með í vörninni …
gegn mannréttindabrotum.
Þetta er alþjóðleg herferð
Amnesty sem var hrund-
ið af stað í tilefni af heims-
meistaramótinu í knatt-
spyrnu og ætlað að vekja
athygli á mannréttindabrot-
um víðs vegar um heiminn.
Keníska ríkisstjórnin lofaði fyrir
nokkru að bæta úr aðstæðum og
húsnæðismálum í fátækrahverf-
unum í Naíróbí, höfuðborg Kenía.
Helmingur íbúa borgarinnar búa í
slíkum hverfum, þar á meðal Wilt-
er, sem býr ásamt tveimur börnum
sínum í stærsta fátækrahverfinu.
Ýmislegt jákvætt hefur gerst
eftir að ríkisstjórnin hóf átak sitt,
en því fylgir einnig margt slæmt.
Fjöldi fólks í hverfinu sem Wilt-
er býr í hefur verið flutt nauðugt
úr húsum sínum og þau jöfnuð við
jörðu.
„Þeir koma um miðjar nætur.
Það sjást bara jarðýtur og þú heyr-
ir grát í börnum og mæðrum sem
kalla á hjálp. Þetta er sálfræðileg
pynting, þær taka auðvitað börnin
með sér út og þá verða allar eigur
þeirra eftir. Það er enginn fyrir-
vari og allt er eyðilagt. Þegar fólk
kemur svo heim aftur til að byrja
upp á nýtt á það ekkert. Þú færð
engar bætur fyrir það sem þú
missir.“
Komið hefur verið upp kerfi
meðal íbúanna í hverfinu til að
bregðast við þessu. „Þegar við
heyrum að verið er að bera fólk út
þá látum við það berast og látum
fjölmiðla á svæðinu líka vita. Við
mætum og fjölmiðlarnir líka, það
vekur athygli og stjórnvöld sjá að
við vitum alveg hvað við erum að
gera.“
Erfiðar aðstæður í hverfunum
Lífið í fátækrahverfunum er streð,
og þar eru erfiðar aðstæður. „Þú
þarft að borga fyrir alla grunn-
þjónustu, eins og vatn, á hverjum
degi í litlum skömmtum. Þú verð-
ur að borga fyrir alla læknisþjón-
ustu, og margir í þessum hverf-
um hafa ekki efni á því. Fólk er
með HIV eða alnæmi og fær lyf,
en getur ekki tekið þau því það
hefur ekki efni á nægum mat. Ef
lyfin eru tekin án matar þá veldur
það svima og vanlíðan, svo sumir
hætta að taka lyfin.“ Fólk eins og
Wilter borgar þó skatta. „Okkar
skattar eru háir. Fólkið sem fær
undir 50 dollara á mánuði borg-
ar skatta – en allir þingmenn hafa
skattfrjálsar tekjur. Þeir eru með
um tvær milljónir íslenskra króna
á mánuði, en borga enga skatta.
Á meðan svo er þá verða fátæk-
ir alltaf fátækir, og ríkir alltaf
ríkir.“
Þrýstingur að utan
Eitt af því sem Wilter og sam-
starfsfélagar hennar berjast fyrir
er að keníska ríkisstjórnin komi
á gagnsæjum reglum um hvern-
ig staðið skuli að þessum málum.
„Fólkið fær ekki upplýsingar um
hvað sé að gerast og það fær ekki
tíma til að segja sína skoðun.“ Íbú-
arnir í hverfinu óttast að þó að ætl-
unin sé að byggja betra húsnæði á
svæðinu muni það alls ekki standa
núverandi íbúum til boða, til þess
verði það of dýrt. „Húsin eru
gerð fyrir fólkið sem býr þarna
en þau eru alltof dýr. Það er svo
erfitt að eignast hús, flest fólkið
úr fátækrahverfunum mun ekki
græða á þessu verkefni.“
Ákveðið var að tengja baráttuna
fyrir mannréttindum við heims-
meistaramótið til að vekja sem
mesta athygli. „Stór hluti heims-
ins er að fylgjast með og þetta
var leið til að ná til þeirra og gera
þeim grein fyrir því hvað er að
eiga sér stað. Þetta er að eiga sér
stað víðs vegar um heiminn og það
er réttur fólks að vera ekki borið
út af heimilum sínum.“
„Nú eru stjórnvöld að reyna að
koma á reglum um þetta. Alþjóða-
samtök hafa verið að taka þátt í
því. Við þurfum líka þrýsting
að utan til þess að þetta verði
gert. Ríkisstjórn Íslands getur
til dæmis þrýst á ríkisstjórnina
í Kenía að virða mannréttindi og
hætta þessu.“
Fótbolti dregur athygli
að mannréttindabrotum
FRÉTTAVIÐTAL: Keníska baráttukonan Wilter Nyabate
Þórunn Elísabet
Bogadóttir
thorunn@frettabladid.is
WILTER NYABATE Wilter hefur barist gegn mannréttindabrotunum í hverfi sínu
lengi. Hún hélt fyrirlestur um baráttuna í Naíróbí í Reykjavík í síðustu viku á vegum
Amnesty. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Um tvær milljónir manna búa í fátækrahverfum í Naíróbí, höfuðborg
Kenía. Þessar tvær milljónir eru helmingur allra íbúa borgarinnar, en
þær búa á aðeins fimm prósentum lands í borginni. Í hverfunum er lítill
aðgangur að grunnþjónustu eins og hreinu vatni, klósettum, heilsugæslu
og skólum.
Wilter Nyabate býr í Austur-Soweto, sem er hluti af Kibera, stærsta
fátækrahverfi borgarinnar. Ríkisstjórnin í Kenía hefur hrundið af stað átaki
til að bæta húsnæðismál í hverfinu. Wilter er hluti af samtökum sem berst
fyrir mannréttindum fólksins í hverfinu og því að hætt verði að flytja íbúa
þaðan á brott.
Fátækrahverfin í Naíróbí