Fréttablaðið - 29.06.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Gabríel Gauti Einarsson, fjór-
tán ára, er mikill áhugamaður
um knattspyrnu og fylgist eins
og fleiri spenntur með framvindu
mála í heimsmeistarakeppninni í
fótbolta sem fer fram í Suður-Afr-
íku.
„Ég reyni að horfa á eins marga
fótboltaleiki og ég get, þar sem
mér finnst þetta ótrúlega spenn-
andi,“ segir Gabríel en viðurkenn-
ir að sér hafi þótt svekkjandi að sjá
lið Englendinga falla úr keppni.
„Ég hélt með enska liðinu en spila-
mennskan þeirra var bara svolítið
leiðinleg, því miður,“ segir hann og
skrifar það alfarið á ítalska þjálf-
arann Fabio Capello. „Hann hvet-
ur liðið aldrei áfram og mér finnst
hann fúll. Hann brosir kannski á
ársfresti. Kannski hefði bara verið
betra að fá Englending til að þjálfa
liðið.“
Gabríel segist lengi hafa fylgst
með enska boltanum og af þeim
sökum hafi hann ákveðið að halda
með liði Englendinga á HM. „Ég
fór bara að horfa á enska boltann
um leið og ég uppgötvaði fótbolta.“
Hann segist vera gallharður aðdá-
andi Manchester United líkt og
faðir sinn og bræður. „Nema
reyndar yngsti bróðir minn. Hann
er tveggja ára og hefur ekki hunds-
vit á fótbolta,“ útskýrir hann og
hlær og bætir við að Wayne Roon-
ey, leikmaður Manchester United,
sé í uppáhaldi. „Hann er svo vinnu-
samur, er alltaf á ferðinni og skor-
ar mikið.“
Eftir að Englendingar urðu úr
leik hefur Gabríel tekið ástfóstri
við argentíska liðið, sem honum
finnst sigurstranglegt. „Þetta er
frábært lið; Messi einn sá besti í
heimi, Tévez flottur og Higuaín
frábær. Maradonna er þarna líka;
ég held ekkert sérstaklega upp á
hann, en hann er fyndinn. Það er
örugglega gaman að vera í þess-
um hópi, mikil gleði,“ segir Gabrí-
el, sem ætlar að fylgjast spenntur
með allt til enda en úrslitin í HM
ráðast 11. júlí. roald@frettabladid.is
Fílar fótboltann í tætlur
Gabríel Gauti Einarsson, fjórtán ára, hefur undanfarnar vikur fylgst með heimsmeistarakeppninni í fót-
bolta í Suður-Afríku og spáir því að landslið Argentínu eiga eftir að ná langt og jafnvel sigra.
Gabríel Gauti Einarsson, til vinstri, er mikill áhugamaður um fótbolta. Hér bregður hann á leik ásamt vini sínum Sigurði Bjartmari
Magnússyni, fjórtán ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DJASS UNDIR FJÖLLUM Árleg djasshátíð í Skógum undir
Eyjafjöllum, verður haldin í sjöunda sinn laugardaginn 3. júlí
næstkomandi. Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson eru meðal
þeirra sem koma fram.
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mánud. – föstud.
frá kl 11 – 18
Lokað á laugardögum
Enn meiri verðlækkun
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
289.9
00 kr
Base
l 2H2
Verð
frá
2.900
krPúða
r í úr
vali
verð
frá
MiðvikudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447