Fréttablaðið - 06.07.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI6. júlí 2010 — 156. tölublað — 10. árgangur
ÞRIÐJUDAGUR
skoðun 12
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
2.900 kr
Púðar í ú
rvali
verð frá
99.900 kr
Verð áðu
r
170.900
kr
Model 101 - stærð: 210x160Takmarkað magn -5 mismunandi ákláði
„Þetta er alveg frábær tilfinning,
þrjú yndisleg ár sem eru að baki,“
segir Linda Líf Margrétardóttir,
sem útskrifaðist úr námi í heild-rænum náttúrulækningum við
Heilsumeistaraskólann í síðustu viku.
Linda var í hópi fyrstuse ú
„Ég hef alltaf verið áhugasöm
um þessi fræði, þannig að þegar ég
frétti síðan af þessu námi í gegn-um vinkonu mína ákvað ég bara að
láta slag standa,“ segir Linda sem
hóf nám við skólann á stofnáriog hefur l
óvart í náminu; þetta var allt bara
svo eðlilegt fyrir mér,“ segir Linda
og getur þess að henni virðist sem
Íslendingar séu almennt nokkuðopnir fyrir náttú
Augun eru kort líkamans
Fyrsti árgangur nemenda útskrifaðist úr Heilsumeistaraskólanum í síðustu viku. Linda Líf Margrétardóttir,
fótaaðgerða- og snyrtifræðingur, var meðal útskriftarnema en hún ætlar að leggja náttúrulækningar fyrir sig.
Linda Líf Margrétardóttir á og rekur snyrti- og fótaaðgerðastofuna Líf. Eftir 30 ár í þeim geira hefur hún áhuga á að snúa sér að
náttúrulækningum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MARÍULAX er heiti notað yfir fyrsta laxinn sem veiðimaður fær í veiðiferð, líklegast dregið af orðinu maríufiskur sem er fyrsti fiskur sem veiðimaður veiðir á ævinni.
Verk Einars í nýju ljósi
Listasafn Einars Jónssonar
býður almenningi að tjá sig
um verk listamannsins.
tímamót 14
Fréttablaðið er með 180%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
77,5%
27,7%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára.
Könnun Capacent í febrúar til apríl 2010.
HEILSA Mikill uppgangur er í
strandblaki um þessar mund-
ir. „Við erum að slá þátttöku-
met á hverju móti. Það má segja
að fjöldi liða hafi tvöfaldast í
sumar,“ segir Karl Sigurðsson,
formaður strandblaksnefndar
Blaksambands Íslands.
Karl segir að allir strandblak-
vellir séu fullir öll kvöld. Honum
hafa borist margar fyrirspurn-
ir um gerð strandblakvalla víðs
vegar um landið.
Að sögn Karls er verið að tala
um að búa til strandblakvelli á
sextán stöðum á landinu í sumar.
„Þá verða yfir þrjátíu vellir á
landinu eftir sumarið.“
Karl rekur auknar vinsældir
strandblaks til þess hversu ódýr
íþróttin sé.
„Það þarf ekkert að kaupa dýra
hlaupaskó heldur fer fólk bara
úr sokkum og skóm og út í sand.
Það eina sem þarf er einn bolti,“
segir Karl Sigurðsson.
- mmf / sjá Allt
Ný íþróttagrein ryður sér til rúms og þátttökumet eru slegin á hverju móti:
Strandblakvellir fullir öll kvöld
Eftir Hróarskeldu
Sólstafir og FM Belfast
komu fram á Hróarskeldu
og fengu misjafna dóma.
fólk 18
FÓLK „Við erum rosalega sáttir
við þetta,“ segir Atli Sigursveins-
son, gítarleikari rokksveitarinn-
ar Endless Dark, sem samið hefur
við enska tónleikafyrirtækið X-
Ray Touring.
Samningurinn er mikilvægur
fyrir Endless Dark því fyrirtækið
er á meðal þeirra stærstu í Evr-
ópu og hefur stór nöfn á borð við
Coldplay, Eminem, Green Day,
Snow Patrol, Nick Cave og Queens
of the Stone Age á sínum snærum.
Endless Dark er bókuð á tónlist-
arhátíðina Sonisphere í Englandi
31. júlí. Þar stíga Iron Maiden,
Rammstein og Placebo einnig á
svið. - fb / sjá síðu 22
Hljómsveitin Endless Dark:
Samningur við
evrópskan risa
VAXANDI A-ÁTT síðdegis með
vætu sunnan til í fyrstu, annars
hægur vindur framan af degi og
úrkomulítið en talsverð rigning SA-
lands í kvöld. Hiti 10-18 stig.
VEÐUR 4
14
12
12
12
12
MÖGNUÐ TILÞRIF Karl Roth var líflegur í boltanum í gær og býr sig hér undir grjótharða tæklingu á mótherja sínum. Árni
Kristjánsson, Runólfur Ólafsson og Sigrún Helga Lund, eini kvenmaðurinn í hópnum, eru í viðbragðsstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ORKUMÁL „Þetta kann að hafa þau
áhrif að allt Torfajökulssvæð-
ið standi utan rammaáætlunar-
innar. Þá erum við að tala um
einn þriðja af öllum nýtanlegum
jarðhita sem eftir er í landinu að
mati Orkustofnunar,“ segir Gúst-
af Adolf Skúlason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samorku.
Textabreyting á frumvarpi
iðnaðarráðherra um verndar- og
nýtingaráætlun vegna virkjunar
fallvatna og háhitasvæða útilok-
ar nýtingu á friðlýstum svæðum
nema tiltekið sé í friðlýsingar-
skilmálum að virkjunarfram-
kvæmdir séu heimilar á viðkom-
andi svæði. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er textabreyting-
in runnin undan rifjum Vinstri
grænna og var sett sem skilyrði
fyrir því að málið yrði afgreitt
út úr þingflokkum stjórnarflokk-
anna.
Frumvarpið var kynnt í rík-
isstjórn í desember en var ekki
lagt fyrir þingið fyrr en um miðj-
an júní. Þá mælti Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra
fyrir málinu í fjarvistum iðnað-
arráðherra. Engar umræður urðu
um frumvarpið og málið afgreitt
til iðnaðarnefndar og annarrar
umræðu.
Gústaf Adolf segir að Samorka
muni gera athugasemd við texta-
breytinguna enda sé verið að
breyta leikreglum eftir á. „Verk-
efnisstjórnin er búin að vinna miss-
erum saman út frá öðrum forsend-
um. Nú er fjöldi svæða ekki lengur
með og vart annað að sjá en þetta
lýsi vantrausti á vinnu verkefnis-
stjórnarinnar.“ Allur gangur er á
því hvernig friðlýsingarskilmál-
um er háttað á ólíkum svæðum.
„Þarna erum við að koma til
móts við aðila sem töldu þetta
betra fyrirkomulag, þó að ég sé
annarrar skoðunar,“ segir Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. „Við
vorum að mæta áhyggjum um að
friðlýst svæði yrðu sett inn í nýt-
ingarflokk. Þetta breytir ekki
miklu þannig séð, nema að þessi
svæði fara ekki í verndarflokkinn
og færri svæði flokkuð sem slík
fyrir vikið.“
Svandís Svavarsdóttir umhverfis-
ráðherra segir málið snúast um
það að friðlýst svæði, og þau sem
þegar eru innan þjóðgarða, komi
ekki til álita við rammaáætlun.
„Nýtingarsýnin hefur yfirskyggt
aðra sýn á landnotkun á Íslandi.
Við verðum að hafa það hugfast
að þessi lög sem hér um ræðir
verða ekki sett yfir önnur lög um
náttúruvernd.“ - shá / sjá síðu 8
Breyting útilokar orkukosti
Torfajökulssvæðið gæti fallið utan rammaáætlunar um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjana. Þar er
um þriðjung nýtanlegrar jarðvarmaorku að finna. Ástæðan er textabreyting á umdeildu lagafrumvarpi.
Við verðum að hafa
það hugfast að þessi
lög sem hér um ræðir verða
ekki sett yfir önnur lög um
náttúruvernd.
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR
UMHVERFISRÁÐHERRA
ÍÞRÓTTIR „Hann er alveg hörmu-
legur,“ segir myndlistarmaður-
inn Karl Roth um fótboltavöllinn
– ef völl skyldi kalla – við hlið
æfingasvæðis KR-inga að Star-
haga. „Það er agalegt hvað borg-
in sinnir þessum velli illa. Þetta
er lífshættulegt, grjótið stendur
upp úr þessu. En KR-ingarnir
leyfa okkur ekki að nota æfinga-
völlinn sinn þannig að þarna
erum við,“ bætir hann við.
Karl er prímus-mótorinn í um
þrjátíu manna hópi sem tekst á í
fótboltaskónum klukkan 17.17 á
hverjum mánudegi á sumrin. En
af hverju klukkan 17.17? „Það
er bara svo auðvelt að muna
það,“ svarar Karl. Meðal ann-
arra þátttakenda eru leikstjór-
inn Hilmar Oddsson og Runólf-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB.
Aðeins ein kona er í hópnum
en hún stendur körlunum á
sporði og vel það, og fíflar þá
upp úr skónum í hverri sókn að
sögn þátttakenda. - sh
Eina konan fíflar karlana:
Hittast alltaf
klukkan 17.17Blikar á toppinn
Breiðablik skaust á topp
Pepsi-deildar karla með
sigri á Selfossi.
íþróttir 17