Fréttablaðið - 08.07.2010, Side 2
2 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
„Einar, eruð þið á nálum?“
„Já, er maður það ekki alltaf þegar
maður gerir eitthvað nýtt af nálinni.“
Einar Karl Gunnarsson er einn stofnenda
útvarpsstöðvarinnar Nálarinnar sem
fer í loftið á næstu dögum. Í viðtali við
Fréttablaðið í gær sagði hann að stofnun
útvarpsstöðvar væri töluverð áhætta á
þessum síðustu og verstu tímum en að
hann vonaðist til þess að þetta gengi vel.
VIÐSKIPTI Stjórnendur Deutsche
Bank í Þýskalandi eru sagðir við
það að ná samningum við Novator,
félag Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, um uppgjör skulda Nova-
tors við bankann sem tilkomnar
eru vegna yfirtöku félagsins á Act-
avis í ágúst fyrir þremur árum.
Fréttastofa Reuters hefur eftir
heimildamönnum að líklega verði
stór hluti skulda Novators færður
niður. Á móti muni arður og annað
fjárstreymi sem áður hafi runnið
úr Actavis til Novators fara eftir-
leiðis til Deutsche Bank. Það sama
eigi við um andvirði af hugsan-
legri sölu Actavis. Enginn
tengdur Novator vildi tjá
sig formlega um viðræð-
urnar og efni þeirra.
Deutsche Bank lánaði
Novator 4,7 milljarða
evra, jafnvirði
um 740 milljarða
króna á núvirði,
vegna yfirtökunn-
ar á Actavis og
er þetta mesta
áhættuskuld-
binding hans.
Eftir því sem
næst verður
komist er um kúlulán að ræða
með sex prósenta vöxtum með
veði í bréfunum sjálfum líkt og
tíðkaðist í skuldsettum yfirtök-
um. Þá spilar inn í að gjalddagi
lánsins er nú í júlí. Ekki er
vitað til þess að samið
hafi verið um lengri
greiðslufrest eða
aðrar breytingar á
lánafyrirkomulag-
inu. - jab
Stutt í uppgjör á milli Deutsche Bank og Björgólfs Thors um skuldirnar:
Bankinn fær arð frá Actavis
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON
SVEITASTJÓRNMÁL Alls sóttu 44 um
stöðu framkvæmdastjóra bæjar-
félagsins Árborgar, 35 karlar og 9
konur. Margir þjóðþekktir Íslend-
ingar sóttu um stöðuna, þar á
meðal Gunnar Birgisson, fyrrver-
andi alþingismaður og bæjarstjóri
í Kópavogi, Inga Jóna Þórðardótt-
ir fyrrverandi borgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna og eiginkona Geirs
H. Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, Sigurður Þ. Ragnarsson,
veðurfræðingur, Ásgerður Jóna
Flosadóttir framkvæmdastjóri
Fjölskylduhjálpar Íslands og Einar
Vilhjálmsson spjótkastari.
Eftir sveitarstjórnarkosningarn-
ar í maí ákvað bæjarstjórn Árborg-
ar að ráða framkvæmdastjóra
fyrir sveitarfélagið í stað þess að
velja hann úr röðum bæjarfulltrúa.
Listi umsækjenda birtur á heima-
síðu bæjarfélagsins í gær.
Inga Jóna Þórðardóttir, við-
skiptafræðingur og fyrrum odd-
viti sjálfstæðismanna í Reykjavík,
er ein af níu konum sem sækjast
eftir stöðunni. Hún segir mikla og
skemmtilega möguleika í Árborg.
Ástæðuna fyrir miklum minni-
hluta kvenna á umsækjendalist-
anum telur hún vera að konur séu
hugsanlega frekar bundnar heim-
ilisfesti heldur en karlmenn.
„Konur búa yfir
alveg sama metn-
aði og karlar, en
þær geti kannski
síður flutt sig um
set og eiga erfiðara
með að breyta til,“
segir Inga Jóna.
Sigurður Þ. Ragn-
arsson veðurfræðingur og einn af
umsækjendum, segir Árborg vera
mjög ákjósanlegan stað að búa
á og hann þekki innviðina mjög
vel. Hann telur ferska vinda vera
að blása um stjórnmálin á Íslandi
þessa dagana og vill spreyta sig í
þeim.
„Ég er ættaður frá svæðinu og
bjó þarna um árabil. Ég þekki
kerfið vel og hef áhuga á því að
gjóa augunum aftur heim,“ segir
Sigurður. Hann segir höfuðborg-
ina vera að þenjast í allar áttir og
mikilvægt sé að huga að þessum
svæðum. Aðspurður
hvort að veðr-
ið sé gott í
Árborg,
segir hann að þetta sé eitt veð-
ursælasta svæði á landinu og því
verði einnig að halda á lofti.
Gunnar Ingi Birgisson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðismanna og fyrr-
verandi bæjarstjóri í Kópavogi, er
einnig á lista umsækjenda og segir
í samtali við Vísi að hann sé tilbú-
inn að flytja frá Kópavogi, fái hann
stöðuna. Hann telur reynslu sína í
stjórnmálum nýtast vel í starfið og
er sammála Ingu Jónu og Sigurði
um margvíslega möguleika svæð-
isins. sunna@frettabladid.is
Reynsluboltar sækja
í bæjarstjórastólinn
Alls bárust 44 umsóknir um stöðu bæjarstjóra Árborgar. Inga Jóna Þórðardóttir,
fyrrverandi borgarfulltrúi sjálfstæðismanna í Reykjavík, og Gunnar I. Birgis-
son, áður bæjarstjóri í Kópavogi, meðal margra þjóðþekktra umsækjenda.
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í átta mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Þar af eru sex mánuðir skilorðs-
bundnir.
Maðurinn var sakfelldur fyrir
fimm þjófnaðarbrot, eina tilraun
til þjófnaðar og fyrir að hafa tví-
vegis gerst sekur um nytjastuld
og eignaspjöll. Hann stal meðal
annars sláttutraktor við tjald-
svæði á Akureyri og ýtti honum
loks ofan í tjörn. Maðurinn á að
baki talsverðan sakaferil og rauf
skilorð með brotum sínum. - jss
Síbrotamaður dæmdur:
Stal traktor og
ýtti í tjörn
ATVINNUMÁL Títan fjárfestinga-
félag ásamt núverandi hluthöf-
um og lykilstarfsmönnum hafa
fjárfest í Thor Data Center fyrir
um 400 milljónir. Títan fjárfest-
ingafélag mun eiga ríflega þriðj-
ungshlut í Thor eftir hlutafjár-
aukninguna. Thor hóf nýlega
gagnavörslu fyrir norska hugbún-
aðarfyrirtækið Opera Software í
gagnaveri sínu í Hafnarfirði.
Fyrirtækið hefur tryggt sér
3,2 megawatta raforku frá HS
Orku á Suðurnesjum og ákvæði
eru í samningnum um allt að 19,2
megawött ef þörf krefur.
Skúli Mogensen eigandi og
stjórnarformaður Títans og Bald-
ur Baldursson framkvæmdastjóri
félagsins munu taka sæti í stjórn
Thor . - shá
Thor Data Center:
Fjárfest fyrir
400 milljónir
BRETLAND Hæstiréttur í Bretlandi
hefur úrskurðað að tveir samkyn-
hneigðir menn sem leituðu hælis
í landinu eigi rétt á að fá mál sín
tekin fyrir.
Aðrir dómstólar hafa hafnað
beiðnum mannanna á þeim for-
sendum að þeir gætu lifað ágætu
lífi í heimalöndum sínum með því
að leyna kynhneigð sinni. Annar
mannanna er frá Kamerún en
hinn er frá Íran. Báðir hafa orðið
fyrir árásum auk þess sem sá
íranski var rekinn úr skóla þegar
upp komst um kynhneigð hans.
Hæstiréttur sagði ekki sam-
ræmast grundvallarmannréttind-
um að láta fólk leyna kynhneigð
sinni. - þeb
Hafði áður verið hafnað:
Mega sækja um
hæli í Bretlandi
ÍSRAEL Félagið Ísland-Palestína vill
að íslenskar verslanakeðjur hætti
viðskiptum við Ísrael eða merki að
minnsta kosti ísraelskar vörur sér-
staklega svo neytendur geti snið-
gengið þær.
Helstu matvæla- og verslana-
keðjur á Íslandi hafa fengið áskor-
un um þetta frá félaginu sem vill
með herferðinni kynna almenningi
hversu öflugt vopn í baráttunni
gegn mannréttindabrotum það
sé að sniðganga vörur. Sú aðferð
hafi borið árangur í baráttu gegn
aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afr-
íku. - pg
Vilja sniðganga Ísrael:
Ísraelskar vörur
verði merktar
MÓTMÆLT Félagar í Íslandi Palestínu
vilja ekki viðskipti við Ísrael.
33 létust í sprengingu
Að minnsta kosti þrjátíu og þrír létust
og nærri hundrað særðust í sjálfs-
vígssprengjuárás í Bagdad í Írak í gær.
Árásin var gerð nálægt brú þar sem
þúsund pílagrímar úr röðum sjíta
týndu lífi í troðningi á sama degi fyrir
fimm árum síðan.
ÍRAK
FÓLK Magnaður miðvikudagur
var haldinn í Nauthólsvík í gær
þar sem megin viðburðurinn
var svokallað Fossvogssund.
Sundinu var þannig háttað að
synt var frá Nauthólsvík, yfir í
Kópavog og aftur í Nauthólsvík.
Hópsundið fór vel fram og segir
Árni Jónsson, deildarstjóri Yl-
strandar, að um 150 manns hafi
tekið þátt og allt hafi heppnast
vel.
„Það myndaðist alveg frá-
bær stemning þrátt fyrir stífa
norðanátt,“ segir hann. „Það
voru nokkrir sem komu með
örlitla sjóriðu upp úr sjónum, en
það var bara skemmtilegt. Þeir
hristu það af sér strax,“segir
Árni.
Miklir tónleikar voru haldnir
í lok sundsins og skemmtu gest-
ir sér vel. - sv
Fossvogssundið haldið í Nauthólsvík í gær með þátttöku150 manns:
Létu vindinn ekki stoppa sig
ÞÁTTTAKENDUR Fjöldi manns tók þátt í sjósundinu þrátt fyrir stífa norðanátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TAÍLAND, AP Rússneski píanóleik-
arinn Mikhaíl Pletnev hefur verið
ákærður fyrir að nauðga fjórtán
ára gömlum dreng í Taílandi. Auk
þess fundust myndir af honum
með nokkrum öðrum piltum.
Pletnev stofnaði Þjóðarhljóm-
sveit Rússlands og er þekktur
píanóleikari, tónskáld og hljóm-
sveitarstjóri. Hann hefur meðal
annars unnið til Grammy-verð-
launa fyrir verk sín. Hann hefur
dvalist talsvert í Taílandi þar sem
hann á meðal annars veitingastað
og önnur fyrirtæki.
Pletnev segir málið allt vera
misskilning. - þeb
Nauðgaði ungum pilti:
Frægur píanó-
leikari ákærður
Ég er ættaður frá
svæðinu og bjó þarna
um árabil. Ég þekki kerfið vel
og hef áhuga á því að gjóa
augunum aftur heim.
SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON
VEÐURFRÆÐINGUR
VILJA STJÓRNA ÁRBORG
Inga Jóna Þórðardóttir og Gunn-
ar I. Birgisson, eru meðal reyndustu
sveitarstjórnarmanna í landinu og í
hópi 44 umsækjenda um bæjar-
stjórastól Árborgar.
SPURNING DAGSINS
Nýr Nicorette plástur
fæst nú 25 mg
og hálfgagnsær
Nýt
t!
Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því
að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt. Nota má
forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur
er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12 hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi
fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan
háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með
barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ.
Nicorette Invisi 25 mg
Er að hærri styrkleika en fyrri
forðaplástrar frá Nicorette