Fréttablaðið - 08.07.2010, Blaðsíða 44
36 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
>Í SPILARANUM
Hvanndalsbræður - Hvanndalsbræður
Moses Hightower - Búum til börn
Drums - The Drums
Wolf Parade - Expo 86
ANDRI ÓLAFSSON OG
STEINGRÍMUR KARL TEAGUE
THE DRUMS
Ólöf Arnalds var að senda frá sér tveggja laga plötu sem hún kynnti
á fínum tónleikum í Norræna húsinu í síðustu viku. Á fyrri hlið plöt-
unnar er lagið Innundir skinni sem verður á næstu plötu Ólafar sem
kemur út á vegum One Little Indian í haust. Á seinni hliðinni er hins
vegar lagið Close My Eyes eftir Arthur Russell í flutningi Ólafar.
Maður er alltaf að uppgötva einhverja gamla tónlistarmenn sem
maður vissi ekki af samhliða öllum nýliðunum og Arthur Russell er
hiklaust uppgötvun ársins
fyrir mig. Arthur fæddist í
Iowa 1951 og lést úr eyðni í
New York 1992. Hann var til-
tölulega lítt þekktur á meðan
hann lifði, en hann hefur
verið að fá meiri og meiri
athygli síðustu ár. Tónlistin
hans hefur verið endurútgef-
in, kvikmyndin Wild Combina-
tion um líf hans var frumsýnd
2008 og ævisagan Hold On to
Your Dreams: Arthur Russell
and the Downtown Music Scene, 1973-1992 kom út í fyrra. Og svo hafa
ungir tónlistarmenn verið að hampa honum, t.d. Jens Lekman, Chris
Taylor úr Grizzly Bear og James Murphy úr LCD Soundsystem.
Arthur var klassískt menntaður sellóleikari og tónskáld sem kom víða
við á ferlinum. Hann starfaði m.a. með mönnum eins og Allen Gins-
berg, Philip Glass og David Byrne. Hann gerði tilraunakennda ins-
trúmentaltónlist, kom við sögu í New York-pönkinu og var atkvæða-
mikill á diskó- og danstónlistarsenu borgarinnar á seinni hluta áttunda
áratugarins. Hann gerði líka hip-hop og elektró og svo kántrískotin
popplög í hefðbundnari kantinum. Allt flott tónlist.
Það eru a.m.k. átta diskar fáanlegir með Arthur Russell, en til að
kynna sér hann er ágætt að byrja á Love Is Overtaking Me (popplögin,
m.a. fyrrnefnt Close My Eyes) og The World of Athur Russell (danstón-
listin) sem Soul Jazz útgáfan gaf út.
Uppgötvun ársins
Enska hljómsveitin The XX og FM
Belfast eru efstar á lista yfir flest-
ar tónleikabókanir hljómsveita á
árinu í kjölfar Eurosonic-hátíð-
arinnar í Hollandi. The XX hefur
verið boðið á ellefu hátíðir í Evr-
ópu og fast á hæla hennar fylgir
FM Belfast með níu hátíðir.
Í breska vikuritinu Music Week,
sem er mest lesna viðskiptablað
tónlistargeirans í Evrópu, eru
taldar saman flestar bókanir sem
hljómsveitir hafa náð í Evrópu á
árinu fyrir tilstuðlan ETEP-áætl-
unarinnar sem tónlistarhátíðin
Eurosonic stendur fyrir. Music
Week segir árangur breskra sveita
aldrei hafa verið betri en á þessu
ári. Íslendingar ná næstbestum
árangri og skipta FM Belfast og
Seabear með sér tólf bókunum á
tónlistarhátíðir í Evrópu. Belg-
ar koma þar á eftir með Isbells
og Admiral Freebee sem skipta
á milli sín sjö bókunum. ETEP-
áætlunin hefur verið starfrækt
af Eurosonic í átta ár fyrir flytj-
endur sem eru að byrja að vekja
athygli. Þannig segir breski tón-
leikabókarinn David Exley að
ETEP hafi virkilega hjálpað til
við að koma The XX á kortið.
Með greininni í Music Week birt-
ist síðan mynd af The XX og FM
Belfast.
Yfir fimmtíu tónlistarhátíðir í
Evrópu taka þátt í Eurosonic til að
kanna nýliðunina í evrópskri popp-
senu og um leið fá þær stuðning
við að bóka minna þekktar hljóm-
sveitir. Þar á meðal eru Glaston-
bury, Sziget, Benicasim, Hultsfred
og Hróarskelda, þar sem FM Belf-
ast spilaði á dögunum.
The XX og FM Belfast efst
FM BELFAST Hljómsveitirnar FM Belfast
og Seabear hafa verið duglegar við
spilamennsku í Evrópu að undanförnu.
Tónlistarkonan litríka
M.I.A. sendir frá sér sína
þriðju hljóðversplötu,
Maya, í næstu viku. Rokk
og dubstep bætist nú við
fjölbreytta tónlistarflóru
hennar.
Á nýju plötunni heldur M.I.A.
áfram að prófa sig áfram í tónlist-
arsköpun sinni því rokk og dubs-
tep bætist nú við hinn fjölbreyti-
lega og litríka hljóðheim hennar.
Áhugasamir geta hlutað á nýju
plötuna í heild sinni á Myspace-
síðu hennar.
M.I.A. heitir réttu nafni Mathangi
„Maya“ Arulpragasam og fæddist
18. júlí 1975 í London. Aðeins sex
mánaða fluttist hún með fjölskyldu
sinni til heimalandsins Sri Lanka
en sneri aftur til London átta árum
síðar vegna borgarastyrjaldar
heima fyrir.
M.I.A. byrjaði í tónlistinni árið
2000 eftir hvatningu frá elektró-
pönkgellunni Peaches. M.I.A.
samdi texta upp úr dagbók sem
hún skrifaði í á fjögurra mán-
aða ferðalagi sínu til eyjunnar St.
Vincent í Karíbahafi og fljótlega
urðu fyrstu lögin að veruleika.
Árið 2004 vakti hún fyrst veru-
lega athygli eftir að lögin Galang
og Sunshowers urðu vinsæl á net-
inu. Ári síðar kom út fyrsta plata
hennar, Arular, sem var tilnefnd
til hinna virtu Mercury-verðlauna
í Bretlandi, auk þess að komast á
hina ýmsu árslista yfir bestu plötu
ársins. Platan komst ofarlega á vin-
sældalista í Evrópu og vöktu text-
arnir mikla athygli, enda voru þeir
margir hverjir pólitískir þar sem
Tamil-tígrarnir, aðskilnaðarsam-
tökin herskáu frá Sri Lanka, voru
á meðal umfjöllunarefna.
Tveimur árum síðar gaf M.I.A.
út plötuna Kala, sem hún nefndi
eftir móður sinni. Hún fékk einn-
ig góðar viðtökur gagnrýnenda og
almennings og til að mynda valdi
Rolling Stone hana bestu plötu árs-
ins. Kala náði gullsölu í Bandaríkj-
unum og lagið Paper Planes naut
sérstakra vinsælda. Á síðasta ári
var M.I.A. svo tilnefnd til Óskars-
verðlaunanna fyrir lagið O...Saya
úr kvikmyndinni Slumdog Milli-
onaire. Hún var einnig tilnefnd til
tvennra Grammy-verðlauna fyrir
Paper Planes og Swagga Like Us.
Auk þess að semja tónlist er
M.I.A. fatahönnuður og vinnur við
alls konar listsköpun. Hún hefur
tekið ljósmyndir, daðrað við graf-
íska hönnun og leikstýrt tónlistar-
myndböndum. Á síðasta ári komst
hún á lista tímaritsins Time yfir
hundrað áhrifamestu manneskjur
heimsins, sem ætti að segja sitt um
sterka stöðu hennar innan tónlist-
arheimsins.
M.I.A. ætlar að halda áfram að
fjalla um stjórnmál eins og hún
hefur gert um Tamil-tígrana. „Ég
verð að vera trú sjálfri mér. Ég get
ekki lokað augunum fyrir ákveðn-
um hlutum. Ég á mér pólitískan
bakgrunn. Ég er aðeins búsett á
Englandi og tek þátt í samfélaginu
þar af pólitískum ástæðum,“ sagði
hún. „Enginn vill dansa við póli-
tísk lög. Langmest af tónlistinni
sem nær til almennings er eigin-
lega ekki um neitt. Mig langaði að
sjá hvort ég gæti samið lög um eitt-
hvað mikilvægt en látið þau hljóma
eins og þau væru ekkert tiltökumál.
Ég held að það hafi tekist.“
freyr@frettabladid.is
Pólitískur undirtónn M.I.A.
M.I.A. M.I.A. á tónleikum í New York-borg fyrir skömmu. Þriðja plata hennar er vænt-
anleg í næstu viku. NORDICPHOTOS/GETTY
■ Hipp hopp-smellurinn Baby Got Back með Sir
Mix-a-Lot fór á topp bandaríska Billboard-listans í
byrjun júlí árið 1992 og sat þar í fimm vikur.
■ Ári síðar fékk Sir Mix-a-Lot Grammy-verðlaunin
fyrir lagið.
■ Sjónvarpsstöðin VH1 setti lagið í 17. sæti yfir
bestu hipp hopp-lög allra tíma árið 2008. Spurn-
ing hversu mikið mark er takandi á listanum.
■ Sir Mix-a-Lot hefur tekið upp nokkrar breyttar
útgáfur af laginu fyrir auglýsingar. Í auglýsingu
fyrir Target-verslanirnar er t.d. frægustu línu lags-
ins breytt úr: „I like big butts and I cannot lie“ í „I
like backpacks and I cannot lie“.
■ Myndbandið við lagið þótti gróft og var um tíma
bannað á MTV.
TÍMAVÉLIN SIR MIX-A-LOT RÝKUR Á TOPPINN MEÐ BABY GOT BACK ÁRIÐ 1992
Rassaóður Sir Mix-a-Lot slær í gegn
■ Efni lagsins, sem fjallar að mestu um afturenda þel-
dökkra kvenna, hneykslaði einnig og var mikið rætt í
fjölmiðlum.
■ Fjölbreytt flóra listamanna hefur tekið upp lagið. Vanilla
Ice er einn af þeim rétt eins og söngvarinn Richard
Cheese, ska-bandið Grand Skeem, dragdrottningin Jack-
ie Beat og harðkjarnasveitin Throwdown.
■ Leikarinn Jamie Foxx söng lagið í þættinum In Living
Color. Þá var þemað offita og í myndbandinu eru feitar
konur í aðalhlutverki.
■ Sir Mix-a-Lot vann með lagið Freak Momma með grukk-
sveitinni Mudhoney fyrir plötuna Judgement Night.
■ Lagið er það langvinsælasta sem Sir Mix-a-Lot hefur gert,
en hann gaf síðast út plötuna Daddy‘s Home árið 2003.
Hún seldist lítið.