Fréttablaðið - 08.07.2010, Page 49
FIMMTUDAGUR 8. júlí 2010 41
Kólumbíska söngkonan Shakira
stígur á svið á lokaathöfn heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu á sunnudaginn. Þar ætlar
hún að syngja HM-lagið Waka
Waka (This Time for Africa).
Hún flutti lagið einnig á opnunar-
hátíð HM í borginni Soweto 10.
júní síðastliðinn. Skipuleggjend-
ur lokaathafnarinnar segja að
hún verði nýtískulegri en opn-
unarhátíðin og miðist ekki eins
mikið við afrískar hefðir. Áhersla
verður lögð á flotta nýtísku tækni
og hefst athöfnin tveimur klukku-
stundum áður en úrslitaleikur
keppninnar hefst.
Syngur við
lokaathöfn
SHAKIRA Shakira syngur lagið Waka
Waka (This Time For Africa) á lokaathöfn
HM í knattspyrnu.
Söngvari hljómsveitarinnar Muse hefur nú
staðfest að hann og leikkonan Kate Hudson
séu að hittast og að sambandið sé orðið nokk-
uð alvarlegt.
Turtildúfurnar hafa sést láta vel hvort að
öðru upp á síðkastið og hefur Kate meira að
segja ferðast landa á milli til að sjá kærast-
ann á sviði. Nú hefur Kate komið því í kring að
Matt hitti móður hennar, Goldie Hawn, síðar í
mánuðinum. Matt viðurkennir að vera frek-
ar stressaður yfir þessum yfirvovandi hitt-
ingi. „Ég hitti Hawn í næstu viku – ég er
frekar stressaður. Það er vandræðalegt
þegar þú hittir fjölskyldu einhvers í fyrsta
sinn … Ég vil ekki gera hittinginn enn vand-
ræðalegri með þeim möguleika að hún hafi
lesið um mig á netinu,“ segir söngvarinn.
Matt komst ekki hjá því að dást að Kate þegar
umræðan barst að henni. „Við áttum frábæran
tíma á Glastonbury. Það er bara mjög gaman
hjá okkur saman og við erum að athuga hvert
þetta fer. Kate er frábær. Við höfum reynt að
halda sambandinu frá fjölmiðlum og þar af leið-
andi höfum við ekki sagt neinum hvar við hitt-
umst né önnur smáatriði. Við erum bara að gera
okkar hluti,“ segir söngvarinn.
Þegar söngvarinn var spurður hvort brúð-
kaup væri í vændum sagði hann: „Það er aðeins
of snemmt að tala um það. Spurðu mig eftir
nokkra mánuði.“
Samband Matt og Kate orðið alvarlegt
MATT HITTIR GOLDIE HAWN Matt segir samband hans
og Kate vera orðið alvarlegt og hann fái að hitta móður
hennar á næstunni.
KATY VILL KOMAST Í GLEE Söngkonan
hefur beðið aðdáendur sína um aðstoð
til að komast í þættina.
Söngkonan Katy Perry er mikill
aðdáandi sjónvarpsþáttanna Glee
og hefur lengi þráð að komast í
þáttinn. Nú hefur hún tekið upp
á því að biðja aðdáendur sína um
aðstoð.
„Ég væri mjög mikið til í það
að einhver myndi koma á fót
Facebook-hóp til að sannfæra
höfundana um að koma mér að
í þáttunum,“ sagði söngkonan
aðspurð um sjónvarpsþáttinn.
Unnusti söngkonunnar, leikar-
inn Russell Brand, telur að Katy
yrði frábær í þáttunum. Hann
bætir því einnig við að hún sé
mjög góð leikkona.
Katy biður
um hjálp