Fréttablaðið - 08.07.2010, Side 56
48 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Hollendingar komust
í fyrrakvöld í úrslitaleik HM í
Suður-Afríku eftir sigur á Úrúg-
væ í undanúrslitum, 3-2. Hollend-
ingar hafa unnið alla sex leiki sína
til þessa í keppninni en þetta var
fimmti leikurinn í röð sem Hol-
land vinnur með einu marki. Hol-
land vann fyrsta leik sinn á mót-
inu, gegn Dönum, með tveggja
marka mun.
Þar með bætti hollenska liðið
met sem landslið Ítala setti á
heimsmeistarakeppnunum árin
1934 og 1938 en þeir unnu fjóra
leiki í röð með eins marks mun.
Eins og gefur að skilja ríkir
mikil gleði í Hollandi og fjölmiðl-
ar þar hafa fagnað áfanganum.
„Það er gulllykt af Oranje eftir 32
ára bið,“ segir í dagblaðinu Telegr-
af. „Loksins hefur kynslóð sófa-
kartaflanna fengið almennilegar
fyrirmyndir,“ sagði í NRC Next.
„Einn sigur í viðbót og Oranje er
meistari.“
Viðurnefnið Oranje er vitanlega
fengið af lit landsliðsbúningsins
sem er appelsínugulur. - esá
Hollendingar með 100 prósenta árangur á HM:
Fimm sigrar með
minnsta mun í röð
FÖGNUÐUR Stuðningsmenn hollenska
landsliðsins eru litríkir. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Julio Grondona, forseti
argentínska knattspyrnusam-
bandsins, segir að Diego Marad-
ona megi ákveða sjálfur hvort
hann haldi áfram sem landsliðs-
þjálfari landsliðsins eða ekki.
„Maradona er eini maðurinn í
öllu landinu sem getur gert það
sem hann vill. Hann er enn með
samning og þetta er því undir
honum sjálfum komið,“ sagði
Grondona við fjölmiðla.
„Ég á ekki von á því að hann
hætti ef ég þekki hann rétt,“
sagði Alejandro Mancuso, aðstoð-
arþjálfari Maradona.
Argentína féll úr leik á HM í
Suður-Afríku eftir 4-0 tap fyrir
Þýskalandi í fjórðungsúrslitum
keppninnar. - esá
Diego Maradona:
Framtíðin í
eigin höndum
DÝRKAÐUR Diego Maradona er í guða-
tölu í Argentínu. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Demy de Zeeuw, leik-
maður hollenska landsliðsins, er
ekki kjálkabrotinn eins og ótt-
ast var eftir að hann fékk þungt
högg í andlitið frá Úrúgvæjanum
Martin Caceres í leik liðanna í
undanúrslitum HM í fyrrakvöld.
Honum var skipt af velli í hálf-
leik og fluttur á sjúkrahús þar
sem í ljós kom að hann var ekki
kjálkabrotinn en tennur höfðu
losnað.
Það er þó ólíklegt að hann verði
í byrjunarliði Hollands í úrslita-
leiknum á sunnudaginn þar sem
Nigel de Jong var í leikbanni
gegn Úrúgvæ en mun nú væntan-
lega endurheimta sæti sitt í byrj-
unarliðinu á kostnað de Zeeuw.
Gregory van der Wiel var einn-
ig í banni gegn Úrúgvæ og þarf
Khalid Boulahrouz væntanlega
að víkja fyrir honum í úrslita-
leiknum. - esá
Fékk þungt högg í andlitið:
De Zeeuw ekki
kjálkabrotinn
DE ZEEUW Skoðaður hér af lækni
hollenska landsliðsins eftir höfuðhögg
Caceres. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Lögregla á Mallorca á
Spáni handtók í gær þýskan mann
sem er gefið að sök að hafa myrt
tvo Ítali á bar í Hannover vegna
rifrildis um HM í knattspyrnu.
Ítalirnir héldu því fram að
ítalska landsliðið hefði unnið
fleiri heimsmeistaratitla en það
þýska en maðurinn, Holger B,
þvertók fyrir það. Hann mun hafa
yfirgefið barinn en sneri aftur
með skammbyssu og er sagður
hafa skotið báða Ítalina. Annar
lést samstundis en hinn degi síðar
á sjúkrahúsi.
Þjóðverjinn gaf sig fram við
yfirvöld á Mallorca, ef til vill þar
sem hann hafði rangt fyrir sér í
rifrildinu enda hafa Ítalir fjórum
sinnum orðið heimsmeistarar en
Þjóðverjar þrisvar. - esá
Þjóðverji handtekinn:
Myrti tvo eftir
rifrildi um HM
FÓTBOLTI Patrick Vieira segist
ekki hafa lengur áhuga á því að
reyna að vinna sér aftur sæti í
franska landsliðinu. Hann var
ekki valinn í landsliðið sem
keppti á HM í Suður-Afríku en
vangaveltur hafa verið um hvort
hann yrði valinn nú eftir skelfi-
legt gengi liðsins í keppninni.
„Mitt markmið á næstu árum
er að standa mig með [Manchest-
er] City. Ég vil gera mitt besta
fyrir félagið,“ sagði Vieira á
heimasíðu City. „Ég mun einbeita
mér að City og engu öðru.“
Laurent Blanc hefur tekið við
þjálfun landsliðsins og boðaði
breytingar á landsliðshópnum í
náinni framtíð. - esá
Franska landsliðið:
Vieira hættur
með landsliðinu
VIEIRA Varð heimsmeistari með Frakk-
landi árið 1998. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Þrátt fyrir tap í fyrsta leik
á HM gegn Sviss er Spánn kominn
í úrslit á HM eftir sigur á Þýska-
landi í undanúrslitum. Spánverj-
ar geta því orðið handhafar bæði
heims- og Evrópubikarsins en þeir
unnu EM árið 2008. Hvorki Spánn
né Holland hefur orðið heimsmeist-
ari og því fer nýtt nafn á bikarinn
þetta árið.
Fyrri hálfleikur var eign
Spánverja nánast frá upphafi.
Þeir stýrðu algjörlega umferðinni
fyrsta hálftímann í leiknum og
Þjóðverjar komust vart fram fyrir
miðju.
Varnarleikur Þjóðverja var
þó mjög vel skipulagður og
Þjóðverjarnir voru ekkert í
miklum vandræðum gegn hægum
sóknarleik gestanna.
Spánverjar fengu þó tvö góð
færi í hálfleiknum. Betra færið
fékk Carles Puyol er hann stóð
einn á markteig og átti bara eftir
að skalla boltann í netið. Hann tók
þá undarlegu ákvörðun að skalla
yfir markið.
Hið unga lið Þjóðverja virkaði
yfirspennt í hálfleiknum og allt
önnur og verri hlið á liðinu en í
fyrri leikjum mótsins.
Skrekkurinn fór þó af þeim
eftir því sem leið á hálfleikinn.
Þeir voru með sóknartilburði í
lok hálfleiksins og vildu fá víti í
uppbótartíma er Sergio Ramos
sparkaði í hæl Özil. Ungverjinn
Viktor Kassai sá þó ekki ástæðu
til þess að dæma. 0-0 í hálfleik.
Spánverjar hertu tökin í síðari
hálfleik og sóknarlotur þeirra
urðu sífellt hættulegri. Markið
hreinlega lá í loftinu og það kom
loksins á 73. mínútu.
Það kom ekki eftir spil held-
ur hornspyrnu. Xavi með laglega
spyrnu í teiginn. Þar kom hinn
hárprúði Carles Puyol aðvífandi
á fullu gasi. Hann lagði allt sitt í
skallann og boltinn söng í netinu.
Glæsilega gert hjá Spánverjum.
Eina alvöru færi Þjóðverja í síð-
ari hálfleik kom um miðjan síð-
ari hálfleik. Varamaðurinn Kroos
gleymdist þá á fjærstöng og hann
stóð allt í einu einn gegn Casillas.
Skot hans var ekki nægilega gott og
Casillas varði þægilega.
Það sem eftir lifði leiks gekk
Þjóðverjum ekkert að opna
spænsku vörnina. Spánverjar fengu
betri færi og hefðu að ósekju átt að
bæta við mörkum.
Glæsilegur sigur hjá Spánverj-
um og afar verðskuldaður. Þeir
héldu boltanum stórkostlega í
leiknum og tókst einnig að loka
meistaralega á sóknarleik Þjóð-
verja en Þjóðverjar náðu engu
flugi í leiknum.
„Leikmennirnir allt frá vörninni
og fram voru stórkostlegir. Þeir
spiluðu frábæran leik. Ég verð að
hrósa öllum mínum leikmönnum
í dag sem voru stórkostlegir á
öllum sviðum. Þetta var magnaður
leikur,“ sagði Vicente Del Bosque,
landsliðsþjálfari Spánar, og kreisti
fram sjaldséð bros.
„Hollendingar standa fyrir
frábæran fótbolta. Vonandi
verðum við eins rólegir á boltanum
í úrslitaleiknum. Ef við spilum eins
og við eigum að okkur þá eigum
við mikla möguleika á að vinna
leikinn.“
Joachim Löw, þjálfari Þjóðverja,
viðurkenndi að hafa tapað fyrir
betra liði í gær.
„Þetta er búið að vera besta lið
heims síðustu ár. Við komumst
aldrei inn í leikinn. Þeir voru
of sterkir og eiga skilið að spila
úrslitaleikinn,“ sagði Löw auð-
mjúkur. henry@frettabladid.is
Puyol hetja Spánverja
Spánverjar eru komnir í úrslit Heimsmeistarakeppninnar í fyrsta skipti í
sögunni. Þeir lögðu Þjóðverja, 1-0, í mögnuðum leik í Durban í gær og mæta
Hollendingum í úrslitum. Nýtt nafn verður því skrifað á bikarinn um helgina.
SIGURMARKI FAGNAÐ Miðvörðurinn magnaði frá Barcelona, Carles Puyol, skoraði sjaldséð mark í gær en það fleytti Spánverjum
alla leið í úrslitaleik HM í Suður-Afríku. NORDIC PHOTOS/AFP