Fréttablaðið - 08.07.2010, Qupperneq 62
54 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SUMAFRÍIÐ
LÁRÉTT
2. grobb, 6. tveir eins, 8. samstæða,
9. tækifæri, 11. peninga, 12. stó, 14.
hégómi, 16. sjó, 17. tæki, 18. tímabil,
20. á fæti, 21. flaska.
LÓÐRÉTT
1. ávinna, 3. hola, 4. titill, 5. viður, 7.
heilladrjúgur, 10. kjaftur, 13. gagn, 15.
litur, 16. verkfæri, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mont, 6. ff, 8. par, 9. lag,
11. fé, 12. arinn, 14. snobb, 16. sæ,
17. tól, 18. öld, 20. tá, 21. gler.
LÓÐRÉTT: 1. afla, 3. op, 4. nafnbót,
5. tré, 7. farsæll, 10. gin, 13. not, 15.
blár, 16. sög, 19. de.
„Ég er svo mikið afmælisbarn að ég verð að
halda upp á þessi tímamót með stæl. Þetta
verður eins konar fiesta,“ segir Auðunn Blön-
dal sem á 30 ára afmæli í dag. Auddi er búinn
að skipuleggja heljarinnar veislu en hann
heldur af stað í óvissuferð í dag með sínum
helstu vinum. „Þetta er strákaferð þar sem ég
mun fara með vini mína út um allan bæ á eitt-
hvert skrall,“ segir Auddi en hann vill ekki
gefa upp hvað sé á dagskránni enda búinn að
skipuleggja ferðina í langan tíma. „Ég er sko
löngu búinn að biðja strákana um að taka frí í
vinnu á morgun svo hægt sé að sletta ærlega
úr klaufunum í kvöld.“
Auddi mun ekki láta óvissuferðina á afmæl-
isdaginn duga því hann ætlar að bjóða fjöl-
skyldu sinni, vinum og kunningjum í allsherj-
ar veislu á laugardaginn. Hann er búinn að
leigja skemmtistaðinn Square við Lækjartorg
fyrir herlegheitin og býst við mörgum gest-
um. Sveppi og Pétur Jóhann, skemmtikraftar
og góðvinir Audda, verða veislustjórar og því
má búast við miklu stuði. „Ég vildi hafa þetta
svona skipt en á laugardaginn er samt aðal-
veislan og verður vonandi svaka fjör fyrir alla.
Ég verð með skemmtikrafta og hljómsveitir til
að skemmta liðinu,“ segir Auðunn en Sverrir
Bergmann ætlar að syngja og hann vonast til
að Páll Rósinkranz úr Jet Black Joe komist til
að taka lagið fyrir sig.
Góður félagi Audda, Egill Gillzenegger, hélt
upp á afmælið sitt á dögunum og hefur hann
verið tíður gestur í sjónvarpsþáttum Audda og
Sveppa í vetur. Mikil spenna hefur ávallt ríkt
milli félaganna í þáttunum og því er spurn-
ing hvort Auddi ætli sér að toppa afmælishald
Gillzenegger? „Ja, það verður allavega engin
Mercedez Club að troða upp í mínu partíi. Það
eru betri líkur á að ég fái Villa Vill og Rúnar
Júlíusson til að koma,“ segir Auddi að lokum
en hann er nýkominn heim frá Bandaríkjun-
um þar sem hann og Gillzenegger voru að taka
upp sjónvarpsþætti sem eru væntanlegir innan
tíðar. - áp
Tveggja daga þrítugsafmæli fyrir Audda
„Hann er algjör snillingur. Það er
ótrúlega gaman að vera í kringum
hann,“ segir ástralski tónlistarmað-
urinn Ben Frost sem hefur starfað
á Íslandi undanfarin ár.
Tónlistarmaðurinn og upptöku-
stjórinn heimsfrægi Brian Eno fór
af landi brott í gær eftir að hafa
dvalið hér í fimm daga sem leið-
beinandi Frosts. Fundur þeirra var
hluti af Rolex-verkefninu þar sem
sex listamenn hvaðanæva að úr
heiminum fá að starfa undir hand-
leiðslu þekktra listamanna í ár. „Við
spjölluðum saman og reyndum að
finna grundvöll fyrir samstarfi,“
segir Frost sem gaf síðast út plöt-
una By the Throat hjá íslenska
útgáfufyrirtækinu Bedroom Music.
Þeir hittust bæði heima hjá honum
og í hljóðverinu Gróðurhúsinu. „Við
fórum út á land nokkrum sinnum.
Við fórum á Vík og fleiri staði og
það var gaman að koma á svörtu
strendurnar á Suðurlandi. Það er
alltaf gaman að sýna fólki landið.“
Frost segir heimsókn Eno
aðeins byrjunina á samstarfinu og
hann ætli að koma aftur til lands-
ins á árinu. Enn á eftir að koma í
ljós hvort þeir muni semja tón-
list saman. „Ég fæ innblástur frá
honum bara með því að vera í sama
herbergi og hann og tala við hann.
Vonandi vex eitthvað út frá þessu,“
segir Frost og játar að það sé mik-
ill heiður að fá að starfa með Eno.
Seinna á árinu er fyrirhuguð viða-
mikil kynning á Rolex-verkefninu
í Kína þar sem félagarnir hittast
aftur og bera saman bækur sínar.
Hinn þrítugi Ben Frost er ánægð-
ur með samstarfið við Eno en annað
mál hvílir þó þungt á honum. Hann
er ekki enn kominn með dvalarleyfi
á Íslandi þrátt fyrir að hafa verið
búsettur hér í fimm ár og tala rei-
prennandi íslensku. Hann er að
vonum afar ósáttur við gang mála.
„Ég er að kynna íslenska tónlist en
er samt enn þá fastur í þessu. Mig
langar bara að ljúka þessu máli.“
freyr@frettabladid.is
TÓNLISTARMAÐURINN BEN FROST: HANN ER ALGJÖR SNILLINGUR
Fékk innblástur frá Brian
Eno í Íslandsheimsókn
SAMSTARFSMENN
Ben Frost og Brian Eno áttu góðar
samverustundir hér á landi. Eno er
væntanlegur aftur til landsins síðar
á árinu.
„Þetta er fyrsta atvinnuleiksýn-
ingin sem er sett upp á Rifi frá
upphafi,“ segir Kári Viðarsson.
Hann frumsýnir einleikinn
Hetja í gömlum frystiklefa á Rifi
í Snæfellsbæ á föstudaginn. Um
gamanleik er að ræða sem er
byggður á Bárðarsögu Snæfells-
áss. Kári samdi einleikinn sjálfur í
samstarfi við Víking Kristjánsson,
sem leikstýrir verkinu, og bregður
sér þar í hin ýmsu hlutverk.
„Sagan sem ég ólst upp með,
Bárðarsaga, er dálítið samofin
minni æsku á Hellissandi, enda
tengist Hellissandur sögunni mjög
sterkt,“ segir Kári, sem útskrif-
aðist úr leiklistarnámi í London
fyrir tæpu ári. „Þetta blundaði
alltaf í mér á meðan ég var úti í
náminu. Ég ákvað bara að kýla á
þetta og hugsaði að ef ég geri þetta
ekki gerir þetta pottþétt einhver
annar.“
Hann gerir ráð fyrir um fimm-
tíu áhorfendum á hverri sýningu
í frystiklefanum gamla, sem er í
óstarfræktri fiskvinnslu á Rifi.
„Þetta er frábært leikrými. Það
er rosalega gaman að leika þarna
inni,“ segir hann og hlakkar mikið
til frumsýningarinnar. Fjórar sýn-
ingar verða um næstu helgi en þá
verður einmitt haldin bæjarhátíð
á Hellissandi þar sem fjöldi brott-
fluttra íbúa lætur jafnan sjá sig.
Kári reiknar með tíu sýningum í
viðbót, þrátt fyrir að aðeins um
150 manns búi á Rifi. „Ég vonast
til að fólk ákveði að skella sér á
smá rúnt. Þetta eru bara einhverjir
tveir tímar úr Reykjavík. Náttúru-
fegurðin sem maður keyrir fram-
hjá er alveg þess virði að maður
taki rúntinn.“
Hægt er að skoða kynning-
armyndband fyrir sýninguna á
Youtube.com ef slegið er inn leit-
arorðið Hetja. - fb
Setur upp fyrstu atvinnuleiksýninguna á Rifi
KÁRI VIÐARSSON Kári frumsýnir á
föstudaginn einleikinn Hetja í gömlum
frystiklefa í Rifi.
FRÉTTIR AF FÓLKI
AFMÆLISBARN Auðunn Blöndal fyllir 30 ár í dag og
heldur upp á afmælið með stæl. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
■ Brian Eno, sem er einn af merkustu núlifandi tónlistarmönnum, var gest-
ur Listahátíðar í Reykjavík fyrir tveimur árum.
■ Hann vakti fyrst athygli í hljómsveitinni Roxy Music á 8. áratugnum.
Eftir það hóf hann sólóferil þar sem tilraunakennd tónlist var í fyrirrúmi.
Mínimalísk nálgun hans varð til þess að hann skóp einn og óstuddur hina
svokölluðu ambient-tónlist.
■ Í gegnum árin hefur Eno einnig starfað sem upptökustjóri fyrir marga af
frægustu flytjendum heims. Hann tók upp Berlínar-trílógíu Davids Bowie,
tilraunakenndustu plötur Talking Heads, síðustu plötu Coldplay og hefur
tekið upp sex plötur U2, þar á meðal þá síðustu, No Line On The Horizon.
TÓNLISTARFERILL BRIAN ENO
„Ég er að fara til Ibiza á
sunnudaginn í ferð sem ég fékk
í verðlaun þegar við unnum
Söngkeppni framhaldsskólanna.
Síðan ætla ég að njóta sumars-
ins, spila á tónleikum og eyða
tíma með fjölskyldunni. Um
verslunarmannahelgina verð
ég síðan að spila á Neistaflugi
og hugsanlega á Þjóðhátíð í
Eyjum.“
Kristmundur Axel Kristmundsson rappari.
Hljómsveitin Steed
Lord á góðu gengi að
fagna í Los Angeles
þar sem þau hamast
við að taka upp
tónlist. Tónlist sveit-
arinnar, sem er með
söngkonuna Svölu
Björgvinsdóttur
í fararbroddi, var nýlega spiluð af
einum frægasta plötusnúð heims,
Laidback Luke. Flutti hann lag
sveitarinnar á ónefndri tónlistarhá-
tíð í Bandaríkjunum þar sem hvorki
meira né minna en 120.000 manns
dilluðu sér við íslenska tóna.
Stutt er síðan tónlistarmaðurinn
KK tók ásamt systur sinni Ellen
þátt í mótmælum við Seðlabank-
ann vegna vaxtanna á gengislánun-
um. Þar börðu þau á potta og
létu vel í sér heyra ásamt
fjölda fólks. Morgunþáttur
KK á Rás 1 í gærmorg-
un bar nokkurn keim af
baráttuanda hans því
lokalagið var I Won´t
Back Down eftir
Tom
Petty
sem
fjallar um að standa
fast á sínu og láta
ekki fara illa með sig.
Skömmu áður hljómaði í þættinum
Bob Marley-slagarinn Get Up Stand
Up þar sem hlustendur eru hvattir
til að berjast fyrir réttindum sínum
og gefast aldrei upp.
Ævintýri Ölmu, Steinunnar og
Klöru í hljómsveitinni The Charlies
halda áfram í Los Angeles. Stúlk-
urnar héldu að sjálfsögðu upp á
þjóðhátíðardag Bandaríkjanna á
sunnudaginn, en eftir það hafa þær
verið uppteknar við upptökur á
lagi í hljóðverinu Glenwood Place
Studios. Af myndum af hljóðverinu
að dæma eru um algjöra paradís
að ræða og umhverfið virðist hafa
góð áhrif á taugarnar. Það hefur
vafalaust hjálpað til þegar
rokkekkjan Courtney
Love tók upp endur-
komuplötu hljóm-
sveitarinnar Hole
þar á síðasta ári, en
hún er þekkt fyrir flest
annað en jafnargeð.
- áp/fb/afb
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Allt að 150 evrur.
2 Í Mæðragarðinum í Reykjavík.
3 Danska sjónvarpsstöðin DR2.