Fréttablaðið - 08.07.2010, Qupperneq 64
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Vörn ráðherramakans
Margir hafa velt vöngum yfir því
hvaðan Seðlabankinn og Fjármála-
eftirlitið fengu þá lögfræðiráðgjöf
sem hlýtur að liggja að baki tilmæl-
unum um uppgjör gengistryggðra
lána, sem voru sem kunnugt er
unnin í nánu samráði við ríkis-
stjórnina. Við því hafa fá svör feng-
ist. Í gær var fyrsta dómsmálið um
þessa umdeildu leið flutt í
héraði. Sá sem hélt
uppi vörnum fyrir
Lýsingu í málinu,
sem er eitt hið
umdeildasta sem
komið hefur til
kasta íslenskra
dómstóla, heitir
Sigurmar K.
Albertsson og er
eiginmaður Álf-
heiðar Ingadóttur
heilbrigðisráð-
herra.
1 Einn játar sök en segist ekki
kannast við Davíð
2 Blés ekki í Vuvuzela-lúðurinn
- bryður íbúfen til að slá á
sársaukann
3 Burðardýr eiturlyfja héldu sig
fá milljónir
4 Lohan grét hástöfum í
réttarsal -myndband
5 Ekki borað í Bobby
Fáir studdu Spán
Lítið bar á stuðningsmönnum
Spánverja á fótboltabörum bæjar-
ins á undanúrslitaleik Spánar og
Þýskalands í HM í knattspyrnu í
gærkvöldi. Fjórir af þeim stöðum
sem sýndu leikinn, Hvíta perlan,
Sólon, Næsti bar og English Pub
voru þéttsetnir stuðningsmönnum
Þjóðverja, íslenskum sem erlend-
um. Þegar Þjóðverjar voru í sókn
urðu mikil læti inni á stöðunum,
fólk stóð úr sætum og hrópaði og
kallaði. En þegar varnarmaðurinn
Carles Puyol skallaði Spánverja í
úrslitaleikinn á HM, heyrðist fátt
annað á börum bæjarins en stunur
sem einkenndust af vonbrigðum
og allir sátu sem fastast.