Fréttablaðið - 12.07.2010, Blaðsíða 21
FASTEIGNIR.IS
12. JÚLÍ 201028. TBL.
Fasteignasalan Hof er með 266,1 fermetra ein-
býlishús við Eyktarhæð í Garðabæ til sölu.
K omið er inn í flísalagða forstofu, tvöföld hurð er í flísalagt hol með góðum fataskápum. Úr forstofunni er jafnframt innangengt í bílskúr
og þvottahús. Eldhús með fallegri viðarinnréttingu
og góðum tækjum, flísar á gólfi, þvottahús og búr inn
af eldhúsinu og þaðan gengt í forstofuna. Úr borðstof-
unni sem er flísalögð er útgangur á lóð. Rúmgóð stofa
með parketi. Um það bil 30 fermetra sólstofa með þaki
og flísum á gólfi, þaðan sem er útgangur á lóð.
Herbergjagangur er með tveimur parketlögðum
barnaherbergjum, flísalögðu baðherbergi með bað-
kari og góðri baðinnréttingu og stóru parketlögðu
hjónaherbergi með miklum fataskápum og sér bað-
herbergi með sturtu. Á herbergjagangi eru góðir fata-
skápar fyrir barnaherbergin. Úr holinu er hringstigi
upp í um það bil 30 fermetra þakrými eða koníakstofu
með stórum hellulögðum svölum út af.
Bílskúrinn er fullbúinn og með flísum á gólfi. Mjög
stór en viðhaldslétt lóð með steyptum stoðveggjum.
Stéttar og óvenjustórt bílaplan með snjóbræðslu og
bomanite mynstursteypu.
Einbýli með góðu útsýni
Einbýlishúsið stendur við Eyktarhæð í Garðabæ.
Ingólfur Gissurarson lgf.
Valhöll fasteignasala • Síðumúla 27 • Sími:588-4477.
Vantar einbýli til sölu eða leigu
í Garðabæ eða Kóp.
Óskum eftir 220-350 fm einbýli í Garðabæ eða Kópav. fyrir ákveðinn
kaupanda, verðhugmynd allt að 90 milljónir.
Greiðsludæmi. Við kaupsamning Kr. 30 millj.
Skuldlaus 120 fm, 4herb. íbúð í nýlegu lyftu húsi í Kóp.
með stæði í bílskýli. Kr. 27 millj.
Greitt á næstu 2 árum kr. Kr. 30 millj.
Samtals Kr. 87 millj.
Þetta er bara dæmi um greiðslugetu. Einnig kæmi til greina að leigja einbýl-
ishús og greiðslugeta kr. 250-350 þúsund á mánuði. Allar nánari upplýsingar
veitir Bárður H Tryggvason sölustjóri í 8965221, er alltaf við simann.
Vantar atvinnuhúsnæði til leigu á Reykjavíkursvæðinu (bara ekki Esjumela)
400-600 fm með góðu útiplássi og góðum innkeyrsludyrum, skrifstofuað-
stöðu fyrir 4-5 manns. Upplýsingar veitir Bárður í 8965221.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki