Fréttablaðið - 12.07.2010, Blaðsíða 38
22 12. júlí 2010 MÁNUDAGUR
SÍMI 564 0000
12
12
12
L
12
L
SÍMI 462 3500
12
12
L
KNIGHT AND DAY kl. 6 - 8 - 10.10
KILLERS kl. 8 - 10
GROWN UPS kl. 6
SÍMI 530 1919
12
12
L
12
KNIGHT AND DAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
KNIGHT AND DAY LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
KILLERS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.20
GROWN UPS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.20
THE A-TEAM kl. 5.20 - 8 - 10.30
HÚGÓ 3 kl. 4
KNIGHT AND DAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
KILLERS kl. 5.45 - 8 - 10.15
GROWN UPS kl. 5.45 - 8 - 10.15
GET HIM TO THE GREEK kl. 5.40 - 8 -10.20
NÝTT Í BÍÓ!
.com/smarabio
MISSIÐ EKKI
MISSIÐ EKKI
AF HASAR
GAMANMYND
SUMARSINS!
"Hraðskreið og hlaðin fjöri.
Tom Cruise hefur sjaldan verið hressari!"
-T.V, Kvikmyndir.is
„Fullkomlega óhætt að mæla með
Knight and Day sem laufléttu sumarsprelli“
-S.V., MBL
HEIMSFRUMSÝNING Á EINNI
VINSÆLUSTU MYND SUMARSINS
„Besta Twilight
myndin til þessa“
– Entertainment Weekly
- hollywood reporter
- p.d. variety
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
16
16
12
12
10
L
L
L
L
L
L
L
BOÐBERI kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20
TWILIGHT SAGA kl. 3:20 - 6 - 8 - 8:30 - 10:40 - 11
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 3:20 - 6 - 9:20
NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:50
LEIKFANGASAGA 3 - 3D ísl. Tali kl. 3:20(3D) - 5:40(3D)
LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 3:20 - 5:40
TOY STORY 3 M/ ensku Tali kl. 10:20
SEX AND THE CITY 2 kl. 8
PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl. 5:40 - 8
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D M/ ísl. Tali kl. 3:40
BOÐBERI kl. 8:10 - 10:30
TWILIGHT SAGA kl. 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40
LEIKFANGASAGA 3-3D ísl. Tali Sýnd á morgun kl. 5:40(3D)
TOY STORY 3 M/ ensku Tali kl. 8(3D)
BOÐBERI kl. 8 - 10:20
THE A TEAM kl. 8
NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:20
BOÐBERI kl. 6 - 8 - 10
LEIKFANGASAGA 3 - 3D M/ ísl. Tali kl. 5:40
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 8 - 10:35
S.V. - Mbl
Fbl
VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG
HIN LEIKFÖNGIN ERU
KOMIN AFTUR Í STÆRSTU
OG BESTU TOY STORY
MYND TIL ÞESSA.
14
14
14
14
EIN
FERSKASTA
ÍSLENSKA
KVIKMYND
Í LANGAN
TÍMA!
- bara lúxus
Sími: 553 2075
KNIGHT AND DAY 3.40, 5.50, 8 og 10.10 P 12
KILLERS 4, 6, 8 og 10 12
GROWN UPS 5.50 og 8 10
A - TEAM 10.10 12
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 4 L
POWERSÝNING
KL. 10.10
Plötusnúðurinn Guðni Einarsson,
eða DJ Impulze, stendur fyrir sér-
stökum plötusnúðanámskeiðum
þar sem hann kennir upprennandi
plötusnúðum á öll helstu tónlistar-
forritin sem notuð eru í dag. Nám-
skeiðin vinnur hann í samstarfi við
Hljóðfærahúsið og Tónabúðina.
„Mér fannst vanta námskeið sem
þetta fyrir þá sem hafa áhuga á DJ-
mennsku og ákvað í kjölfarið að
halda slíkt námskeið í samstarfi við
Hljóðfærahúsið,“ segir Guðni sem
hefur sjálfur starfað sem plötu-
snúður í mörg ár. Námskeiðin eru
bæði fyrir þá sem eru að stíga sín
fyrstu skref í skífuþeytingum og þá
sem eru lengra komnir.
„Það eru bæði strákar og stelpur
sem sækja námskeiðin og það kom
mér eiginlega á óvart hversu marg-
ar stelpur hafa sýnt þessu áhuga.
Þátttakendurnir eru frá þrettán ára
aldri og alveg upp í þrítugt þannig
að margir eru enn of ungir til að
spila á skemmtistöðum, en þetta
eru allt mjög efnilegir plötusnúðar
og það vantar ekki eldmóðinn.“
Aðspurður segir Guðni aðeins
pláss fyrir þrjá til fjóra upprenn-
andi plötusnúða á hverju námskeiði
því þannig fái hver nemandi nægan
tíma fyrir sig.
Áhugasamir geta skráð sig á
námskeiðið í gegnum vefsíðuna
www.rvkunderground.com. - sm
Kennir upprennandi DJ-um
MIÐLAR ÞEKKINGU Guðni Einarsson
plötusnúður heldur sérstakt plötusnúða-
námskeið fyrir unga og aldna plötu-
snúða. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Leikkonan Drew Barrymore ætlar
að taka sér hlé frá kvikmynda-
bransanum og íhuga sinn gang í
lífinu. Hún hefur unnið látlaust
undanfarin þrjú ár, leikstýrt sinni
fyrstu mynd Whip It! og leikið í
myndum á borð við Grey Gard-
ens og He´s Just Not that into You.
Núna er hún orðin dauðþreytt og
vill taka sér hlé til að ná áttum í
lífinu og íhuga næstu skref.
„Ég hef brennt kertið í báða
enda í þrjú ár samfleytt og frá
því í desember í fyrra gat ég ekki
gefið neitt af mér lengur,“ sagði
Barrymore, sem er 35 ára. „Ég
hef verið harðákveðin í að lifa líf-
inu til fullnustu og tekið þátt í alls
konar verkefnum en núna þarf ég
á hvíld að halda,“ sagði hún. „Núna
hugsa ég um sömu hluti og þegar
ég var 15 ára, eins og andleg mál-
efni, hver ég er og hvað mig lang-
ar að verða.“
Barrymore hefur verið orðuð
við marga menn undanfarin ár en
frá árinu 2007 hefur hún verið að
hitta leikarann Justin Long. Hún
lítur enn þá á sig sem einhleypa
konu og er ánægð með að vera ekki
búin að gifta sig. „Ég er 35 ára og
einhleyp ef þú vilt það. Það er ekk-
ert mál. Ég vil ekki festa mig með
rangri manneskju.“
Hvílir sig á kvik-
myndunum Tónlistarmanninum Sting er
alveg sama þótt sumum finnist
hann falskur og pirrandi vegna
þess að fáir vita hver hans raun-
verulegi persónuleiki er. Sting
hefur verið duglegur að koma
skoðunum sínum á framfæri í
gegnum árin. Hann hefur barist
fyrir mannréttindum, gegn eyð-
ingu regnskóg-
anna og reynt
að fá maríjú-
ana-eiturlyfið
lögleitt. Hann
veit að sumt
fólk getur orðið
þreytt á honum
en hann hefur
ekki í hyggju að
breyta um stíl.
„Ég þarf
ekki á því að halda að allir elski
mig, bara alls ekki,“ sagði Sting.
„Sumu fólki finnst ég alltaf vera
að þykjast en það þekkir mig
ekki í raun og veru. Ég reyni ekki
að verja mig sérstaklega mikið.
Ég segi frekar: „Ekkert mál.
Trúðu bara því sem þú vilt trúa.“
Ég held síðan áfram að lifa lífi
mínu.“
Vill ekki
breytast
DREW BARRYMORE Leikkonan ætlar að
taka sér hlé frá kvikmyndabransanum
og íhuga sinn gang í lífinu.
STING
Írski listamaðurinn Philip
Gray var staddur hér á
landi á dögunum þar sem
hann málaði myndir á
hinum ýmsu stöðum. Land-
mannalaugar, Hekla og
Silfra á Þingvöllum voru á
meðal viðkomustaða.
Philip Gray er fyrrum kafari í
írska sjóhernum. Þetta er glað-
beittur náungi á miðjum aldri og
hefur mikla ástríðu fyrir starfi
sínu. Hann er þekktur í Bretlandi
og víðar fyrir að mála undir afar
óvenjulegum kringumstæðum, til
dæmis í kafi innan um hákarla
og á Mount Everest, hæsta fjalli
veraldar. Hann ákvað að koma til
Íslands eftir að eldgosið í Eyja-
fjallajökli vakti athygli heims-
byggðarinnar og sér ekki eftir
því.
Yfirskrift málverkanna sem
hann málaði hér á landi er What
Lies Beneath, eða Það sem ligg-
ur undir yfirborðinu. „Hugmynd-
in er að nota orkuna í náttúrunni
og yfirfæra hana á okkar eigið líf.
Innra með okkur býr mikil orka
og ástríða og stundum þarf fólk að
fá tækifæri til að gjósa og sleppa
fram af sér beislinu,“ segir Gray.
Í vikulangri heimsókn sinni
til Íslands, sem fyrirtækið Arc-
tic Adventures skipulagði, skoð-
aði Gray hellana Leiðarenda og
Búra, auk þess sem hann fór í
Landmannalaugar, upp á Heklu
og kafaði í Silfru á Þingvöllum. Á
öllum þessum stöðum málaði Gray
myndir sem hann ætlar að selja í
Bretlandi. Hann reiknar með að
um þrjú hundruð málverk verði í
boði frá heimsókninni til Íslands
hjá um það bil sextíu galleríum.
Minnstu málverkin hans kosta
um 700 pund og þau stærstu um
1.400 pund, eða yfir 250 þúsund
krónur, og almennt seljast verkin
hans mjög vel. Gray tekur einnig
myndbönd af heimsóknum sínum
til allra heimshorna og hefur
breska ríkisútvarpið, BBC, meðal
annars falast eftir því að búa til
þáttaröð með honum. Ekki hefur
verið ákveðið hvort af henni verð-
ur.
Eins og áður segir hefur Gray
málað neðansjávar innan um
hákarla en hann segir það ekkert
tiltökumál. Hann viðurkennir þó
að hættan sé til staðar. „Ég hef
verið ansi nálægt tígrishákörlum
og þeir geta verið óútreiknanleg-
ir. En þeir eru alltaf vel mataðir,
þannig að maður getur kafað frek-
ar nálægt þeim. Tveimur vikum
áður en ég kafaði innan um tígris-
hákarlana var kálfinn bitinn af
einni konu sem var þar. Þetta á að
vera öruggt umhverfi en maður
veit aldrei.“
Tvær ferðir til viðbótar eru
fyrirhugaðar hjá Gray á þessu ári.
Fyrst flýgur hann til Kalkútta á
Indlandi þar sem hann málar
mynd til styrktar góðgerðarsam-
tökunum Hope Foundation. Eftir
það fer hann í grunnbúðirnar á
Mount Everest í annað sinn ásamt
hópi þekktra Íra. Þar ætlar hann
að kenna þeim að mála og verða
verkin síðan boðin upp til styrktar
sömu góðgerðarsamtökum. Gray á
þó enn eftir að mála á toppi Ever-
est. „Þetta er góð æfing en ef
ég fengi eina ósk uppfyllta væri
það að fara upp á tindinn og hafa
nægan tíma til að mála þar mál-
verk. Ég yrði fyrsti listamaðurinn
til að mála á tindinum og það yrði
hreint út sagt stórkostlegt.“
freyr@frettabladid.is
Málverk í íslenskum hellum
MEÐ MYNDIRNAR SÍNAR Philip Gray með þrjár myndir sem hann málaði meðan á
vikudvöl hans á Íslandi stóð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON