Fréttablaðið - 13.07.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 13.07.2010, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 13. júlí 2010 Söngkonan Jessica Simpson hefur undanfarnar vikur sést í félags- skap fyrrum fótboltastjörnunnar Erics Johnson. Parið sást nýver- ið leiðast á túristaeyjunni Capri á Ítalíu og gera fjölmiðlar mikið veður út af þessu þar sem John- son er tæknilega séð giftur maður. Hann sótti um skilnað frá eigin- konu sinni fyrr á þessu ári en sá skilnaður er ekki genginn í gegn. Simpson mun hafa fallið fyrir kappanum í vor og er sögð ást- fangin á ný. Simpson hefur verið orðuð við fjöldann allan af stjörnum í Holly- wood frá því að hún skildi við söngvarann Nick Lachey en parið gerði heimildarþætti um hjónaband sitt sem vöktu mikla athygli. Fer- ill söngkonunnar hefur ekki gengið sem skyldi og 2008 gaf hún út kán- tríplötu sem fékk slakar viðtökur. Með giftum manni FANN ÁSTINA Á NÝ Jessica Simpson mun hafa kolfallið fyrir hinum gifta Eric Johnson. FRÉTTABLAÐIÐ/WIREIMAGES BRIAN AUSTIN GREEN Fékk gestahlut- verk í nýju seríunni af Aðþrengdum eiginkonum sem er væntanleg í haust. Leikarinn Brian Austin Green sem flestir kannast við úr bandarísku sápunni Beverly Hills 91210, hefur nú fengið gestahlutverk í nýjustu seríunni af Desperate Housewives eða Aðþrengdum eiginkonum. Leikarinn hefur ekki mikið sést á skjánum síðan unglingasápan var upp á sitt besta á tíunda ára- tugnum en hefur komist aftur í fréttirnar nýlega eftir að hann tók saman við leikkonuna Megan Fox. Þau gengu einmitt í það heil- aga fyrir stuttu og hann þarf því ekki bara að kljást við eiginkonur í vinnunni. Ný sería af Aðþrengdum eiginkonum er væntanleg í Banda- ríkjum í haust. Beverly Hills stjarna aftur á skjáinn Lady Gaga stöðvaði alla umferð í New York síðastliðinn föstudag þegar meira en 20.000 aðdáendur söngkonunnar troðfylltu göturnar til að sjá ókeypis tónleika hennar í rigningunni. Tónleikarnir voru liður í morgunþættinum The Today Show´s Summer Concert Series og lék Lady Gaga lög á borð við Bad Romance og nýjasta lagið sitt, Alejandro. Gaga gladdi einn- ig aðdáendur sína með flutningi á nýju lagi sem ber heitið You and I, sem hún flutti uppi á flygli í miðri húsaþyrpingu Rockefeller Center, þegar himnarnir opnuðust og rign- ingin féll til jarðar. Söngkonan endaði tónleikana með því að þakka áhorfendum fyrir að hafa staðið þarna í regn- inu og kvaddi með orðunum: „Takk fyrir að láta drauma mína rætast. Rigni hann bara!“ Aðdáendur settu upp búðir þar sem tónleikarnir voru daginn áður í þeirri von að geta verið á góðum stað á tónleikunum. Gaga launaði aðdáendum sínum hollustu þeirra við sig með því að láta færa þeim pitsu og vatnsflösku sem orkugjafa eftir að hafa eytt nótt á götunni. Á Twitter-síðu sinni sagði söng- konan: „Litlu skrímslin mín hafa nú þegar sett upp búðir fyrir utan tónleikastaðinn! Ég elska ykkur! Kem til með að senda ykkur pitsu og vatn í allan dag!“ Þegar kvöld tók að nálgast bætti hún við: „Þúsund dýrmæt lítil skrímsli eru sofandi við tónleika- staðinn. Megi NY vaka yfir ykkur, og megið þið sofa undir stjörnun- um. Amen.“ Fríir tónleikar úti á götu stöðva umferð LADY GAGA Hélt tónleika í miðri Rockefeller Center-húsaþyrpingunni. PARIS innrétting með handlaug og spegli. Fæst í hvítu, dökku wengue og zebra. 24.900 45x30x35 cm, spegill 45x65 cm Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laugard. 11-16. Glæsileg gólfniðurföll fyrir baðherbergið evidrain® MASSIVE 30 cm 23.900 60 cm 36.900 NOVA 30 cm 10.900 GREKA 70 cm 27.900 ALIBERT salerni með stút í gólf 19.900 Seta kr. 2.790 WC kassi kr. 16.900 Sturtuhnappur kr. 1.995 FLOW ® Allt settið, aðeins 33.990 Salerni kr. 10.900 Seta kr. 4.195 Brúsa, barki, stöng og festing 3.900 GREKA í horn 35 cm 11.900 60 cm 19.900 70 cm 23.900 80 cm 26.900

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.