Fréttablaðið - 14.07.2010, Page 10
14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Skýrsla AGS um skattamál
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Breyta ætti skattareglum
svo einkahlutafélög einyrkja
þurfi að greiða tekjuskatt
af greiðslum til eigenda að
mati sérfræðinga AGS. Þeir
telja núverandi fyrirkomu-
lag ófullnægjandi. Leggja
til kerfi svipað og á hinum
Norðurlöndunum.
Lagt er til að ýmsar breytingar
verði gerðar á íslenska skattkerfinu
í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(AGS) sem unnin var fyrir íslensk
stjórnvöld. Í skýrslunni er farið yfir
kosti og galla íslenska kerfisins.
Sérfræðingar sjóðsins segja það að
mörgu leyti gott, sér í lagi þar sem
það sé fremur einfalt og með fáum
undantekningum.
Skattkerfið er þó fráleitt galla-
laust að mati AGS, og eru meðal
annars gerðar athugasemdir við
svokallaða ehf-væðingu sem orðið
hefur á undanförnum árum. Und-
anfarið hafa einyrkjar haft umtals-
verðan hag af því að stofna einka-
hlutafélög utan um reksturinn til
að geta tekið hluta af tekjunum af
vinnu sinni út úr félögunum sem
hagnað en ekki hefðbundin laun.
Af venjulegum tekjum greiða
launamenn skatt á bilinu 37,2 til
46,1 prósent. Af hagnaði fyrirtækja
er hins vegar greiddur samtals 32,7
prósenta skattur.
Til að koma í veg fyrir að einyrkj-
ar greiði sjálfum sér engin laun og
taki allar tekjur umfram útgjöld
sem hagnað þurfa þeir að greiða
sjálfum sér eðlileg laun. Ríkið
ákveður á hverju ári hver lágmarks-
laun í hinum ýmsu stéttum einyrkja
eru, allt frá smiðum að taugaskurð-
læknum. Allt umfram launin, sem
kölluð eru reiknað endurgjald, er
svo hægt að taka út sem hagnað, og
greiða af því lægri skatt.
Sérfræðingar AGS gera alvarleg-
ar athugasemdir við þetta kerfi, og
segja það ófullnægjandi. Þeir benda
á að lágmarkslaun hinna ýmsu stétta
virðist allt of lág, og þau hafi ekki
hækkað frá árinu 2007, þrátt fyrir
miklar breytingar á almennum laun-
um frá þeim tíma. AGS leggur til að
farin verði sama leið hér á landi og á
hinum Norðurlöndunum til að koma
í veg fyrir þetta vandamál.
Í Noregi, Finnlandi og Svíþjóð
AGS gagnrýnir ehf-
væðingu síðustu ára
STJÓRNSÝSLA Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra segir skatta-
hækkanir af einhverju tagi vera
nauðsynlegar til að auka tekjur rík-
issjóðs. Hún telur það vera af hinu
góða að fá hugmyndir Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (AGS) varðandi
breytingar á skattakerfinu, en þó
séu lokaákvarðanir alfarið í hönd-
um stjórnvalda.
Forsætisráðherra segir ekki
koma til greina að hækka tekju-
skatt hjá meðaltekjufólki.
„Verið er að tala um 375 þúsund
króna tekjumörk í því sambandi og
í mínum huga
kemur það ekki
til greina. Einn-
ig verður mjög
vafasamt að
fara í hækkan-
ir á virðisauka-
skatti matvæla,“
segir forsæt-
isráðherra.
„Ekki er hægt
að horfa á málið
frá þröngum sjónarhóli hagvaxt-
ar eins og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn gerir, heldur verður einnig
að horfa á hvað heimilin í landinu
þola í þessu sambandi.“
Fjármálaráðuneytið óskaði eftir
úttekt á íslenska skattkerfinu
hjá AGS og tillögum um hvernig
auka mætti tekjur ríkisins og ætti
hækkunin að nema einni til tveim-
ur prósentum af vergri landsfram-
leiðslu á komandi árum, eða 15 til
30 milljörðum króna miðað við síð-
asta ár. Samkvæmt tillögum AGS
ætti meðal annars að hækka skatt
á matvælum úr 7 prósentum upp í
25,5 prósent og leggja niður lægra
þrep virðisaukaskattsins. - sv
Forsætisráðherra ósammála skýrslu AGS varðandi tillögur að skattabreytingum:
Hækkun skatta óhjákvæmileg
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Höfuðstóll verðtryggðra lána íslenskra heimila gæti hækkað
um samanlagt ríflega 33 milljarða króna fari ríkisstjórnin að
tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og hækki virðisauka-
skatt á öllum vörum í 25,5 prósent.
Matvörur, heitt vatn, rafmagn, bækur, blöð, tímarit, hljóm-
plötur og fleira ber í dag sjö prósenta virðisaukaskatt, en
aðrar vörur 25,5 prósent. Í tillögum AGS, sem unnar voru fyrir
íslensk stjórnvöld, er meðal annars sett fram sú hugmynd að
leggja 25,5 prósenta virðisaukaskatt á allar vörur.
Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins myndi það
hækka vísitölu neysluverðs, og þar með verðbólguna, um 2,6
prósent. Það myndi hafa bein áhrif á höfuðstól verðtryggðra
lána. Þannig myndi höfuðstóll verðtryggðs húsnæðisláns sem
stendur í dag í 20 milljónum hækka um 520 þúsund krónur
yrðu hugmyndir AGS að veruleika.
Ekki var hægt að fá nýjar upplýsingar um heildarupphæð
verðtryggðra skulda íslenskra heimila hjá Seðlabankanum í
gær. Í lok árs 2008 stóðu skuldirnar í 1.175 milljörðum króna.
Miðað við þróun verðlags má áætla að verðtryggðar skuldir
íslenskra heimila standi í um 1.285 milljörðum króna í dag.
Þær myndi hækka um ríflega 33 milljarða yrðu hugmyndir
AGS að breytingum á virðisaukaskatti að veruleika.
Verðbólga eykst um 2,6 prósent hækki virðisaukaskattur í samræmi við hugmynd AGS:
Höfuðstóll lána hækkar um 33 milljarða
Mánaðartekjur 350 þúsund krónur 500 þúsund krónur 750 þúsund krónur
Núverandi skattkerfi 134.620 kr. í skatt 194.800 kr. í skatt 301.100 kr. í skatt
Tillaga AGS 130.200 kr. í skatt 198.500 kr. í skatt 316.500 kr. í skatt
Heimild: Ríkisskattstjóri og skýrsla AGS. Upphæðir eru reiknaðar án persónuafsláttar.
Hugmyndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um að fækka skattþrepunum úr þremur í tvö
myndu lækka skattbyrði fólks með undir 450 þúsund krónur í mánaðartekjur en hækka
byrðar þeirra sem eru með hærri tekjur, samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins.
Tillögur AGS eru reifaðar í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem unnin var að beiðni
íslenskra stjórnvalda, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu í gær.
Í tillögum AGS er gert ráð fyrir 37,2 prósenta skatti á mánaðartekjur að 375 þúsund krón-
um, og 47,2 prósenta skatt á tekjur yfir þeim mörkum.
Í því skattkerfi sem er við lýði á Íslandi í dag greiðir fólk 37,2 prósenta skatt á tekjur að
200 þúsundum, 40,1 prósent af tekjum frá 200 þúsundum að 650 þúsundum, og svo 46,1
prósent af tekjum yfir 650 þúsundum.
Yrðu tillögur AGS teknar upp hér á landi myndi einstaklingur með 300 þúsund krónur í
tekjur á mánuði greiða um 3.000 krónum lægri upphæð í skatt á mánuði. Einstaklingur með
800 þúsund króna tekjur myndi aftur á móti greiða um 16.000 krónum meira á mánuði.
Leggja til lægri skatta á tekjulága
MÓTMÆLI Boðað var til mótmæla fyrir utan skrifstofu AGS við Hverfisgötu í
hádeginu í gær. Að sögn lögreglu voru á milli 20 og 30 mótmælendur á staðn-
um. Tveir slettu rauðri málningu á hús og gangstétt, og var annar þeirra hand-
tekinn. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. Mótmælin voru boðuð áður en
upplýst var um tillögur AGS í skattamálum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
eru notuð annars konar kerfi, sem
taka mætti upp hér á landi, að mati
sjóðsins. Þar er sett ákveðið hámark
á hagnað fyrirtækja byggt á eignum
þeirra. Leyfilegt er að taka eðlileg-
an hagnað út úr fyrirtækjunum, en
allt umfram það verður að reikna
sem laun.
Þetta þýðir að lítil einkahlutafélög
með takmarkaðar eignir verða að
fara með greiðslur til eigenda, sem
jafnframt eru starfsmenn félagsins,
eins og laun.
Hrein og öflug
lífræn orka
Haltu blóðsykrinum
í jafnvægi
Grænt te og ginseng.
Bragðbætt með Acai safa
og granateplum með
lágu GI-gildi, sem
skilar orkunni hægt
út í blóðið og gefur
jafnvægi á blóð-
sykurinn.
Svart te og ginseng.
Orkudrykkur sem
er ljúffengur á
bragðið og ríkur
af andoxunar-
efnum.
Vissir þú að
POWERSHOT
er svalandi
drykkur?
Vissir þú að
grænt te er
vatnslosandi?
Hvítt te og ginseng.
Bragðbætt með
kirsuberjasafa
og Acai safa
sem gefur
sætt og
ljúffengt
bragð.
Vissir þú að
lágt GI-gildi
gefur jafnvægi
á blóðsykurinn?