Fréttablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 15. júlí 2010 19 Neyðarráðstafanir eiga að vera skammvinnar. Það liggur í hlutarins eðli, því að neyð er í eðli sínu tímabund- ið ástand. Neyðin kennir naktri konu að spinna, segir máltæk- ið. Íslenzk neyðarráð hafa þó sum enzt lengi. Sumir gera út á þau og hagnast á þeim á kostnað almennings. Innflutningsbann Byrjum í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar. Inn- flutnings- og gjaldeyrishöft voru tekin upp í reglugerð 1931 í skjóli eldri heimilda í lögum. Þetta var gert meðal annars til að hlífa bændum við verðfalli búsafurða í útlöndum vegna kreppunnar. Þessi kreppuráð- stöfun átti að vera tímabundin. Því var heitið á þingi, að höft- unum yrði aflétt, þegar heims- búskapurinn rétti úr kútnum. Það heit var ekki efnt. Hafta- sinnum óx ásmegin í millitíð- inni, og æ síðan hafa þeir hvorki mátt til þess hugsa né heyra, að höftunum væri lyft til hagsbóta fyrir fólkið í landinu. Enda eru gömlu kreppuhöftin – bann við innfluttu kjöti og ostum nema smáræði við okurverði – að mestu leyti enn við lýði, 80 árum síðar, þótt ótrúlegt sé. Ástand- ið speglar landlægt skeytingar- leysi stjórnmálastéttarinnar um almannahag. Misvægi atkvæð- isréttar eftir búsetu hefur ráðið miklu um þessa niðurstöðu. Verðtrygging Annað dæmi sömu ættar er verð- tryggingin, sem var leidd í lög af illri nauðsyn 1979. Vandinn var sá, að verðbólgan æddi áfram og át upp sparifé almennings, sem fékk engum vörnum við komið öðrum en að reyna að forða sparifé sínu með því að eyða öllu tiltæku fé og kynda þannig enn frekar undir verðbólgu. Verð- tryggingu fjárskuldbindinga var ætlað að verja sparifé lands- manna og skapa með því móti skilyrði til að hemja verðbólgu og gera verðtryggingu óþarfa. Raunar kemur ekki fram í gögn- um málsins á Alþingi, að verð- tryggingu væri ætlað að vera tímabundin, trúlega af því að það þótti svo sjálfsagt, að ekki þurfti að taka það fram. Verðtrygg- ing veitti lánveitendum langþráð skjól og skerti getu gömlu ríkis- bankanna til að skammta lánsfé. Sumir telja verðtryggingu allra fjárskuldbindinga æskilega undir öllum kringumstæðum, svo að sparifé almennings haldi ávallt verðgildi sínu. Aðrir líta svo á, að almenn verðtrygging dragi úr aðlögunarhæfni hag- kerfisins líkt og vísitölubinding launa, sem að fenginni reynslu var bönnuð með lögum um tíma, og komi því ekki til greina sem varanleg skipan, en þá þarf að halda verðbólgu í skefjum. Mikil verðbólga með gamla laginu án víðtækrar verðtryggingar kemur ekki lengur til álita. Nú, röskum 30 árum eftir að verðtrygging fjárskuldbind- inga var leidd í lög, er hún enn á sínum stað. Hvers vegna? Það stafar af því, að stjórnvöld- um hefur ekki tekizt að hemja verðbólguna nóg til þess, að óhætt þyki að hverfa frá notkun verðtryggingar í fjármálavið- skiptum. Verðtryggingin eyddi sumum alvarlegustu afleiðingum verðbólgunnar og dró um leið úr áhuga stjórnvalda á að kveða verðbólguna niður. Því má segja, að verðtryggingin hafi orðið til þess að viðhalda verðbólgunni. Íslendingar búa enn sem jafn- an fyrr við mesta verðbólgu í Evrópu að Tyrkjum einum undanskildum og það í kreppu. Efnahagsáætlun stjórnvalda í samstarfi við Alþjóðgjaldeyris- sjóðinn og Norðurlönd er ætlað að ná verðbólgunni niður á ný. Mikil verðbólga er alls staðar og ævinlega til marks um vonda hagstjórn og veika innviði. Gjaldeyrishöft Þegar neyðarlögin voru sett eftir hrun bankanna 2008, var ráð fyrir því gert, að gjaldeyris- höftin yrðu tímabundin. Höftin voru neyðarráðstöfun, enda sam- rýmast þau hvorki góðum hag- stjórnarháttum né aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Höftin áttu að standa í tvö ár eða þar um bil. Sá tími er nú að mestu liðinn, en ekki bólar þó enn á afnámi haftanna. Hvers vegna ekki? Það stafar af því, að ríkisstjórnin hefur ekki megn- að að gera það, sem gera þarf, til að hægt sé að afnema höftin. Þar munar mest um tafirnar á afgreiðslu IceSave-málsins og þá um leið á framgangi efna- hagsáætlunar stjórnvalda. Rík- isstjórnin getur ekki einu sinni komið sér saman um að fækka ráðuneytum úr tólf í níu, svo sjálfsagt sem það er og reynd- ar ekki nóg, því að ráðuneytin þyrftu ekki að vera nema sjö eða átta eins og ég lýsti hér í blað- inu 31. maí 2007. Hvernig ætti svo veikri ríkisstjórn þá að tak- ast að koma sér saman um mun erfiðari umbætur, sem þarf til að hægt sé að afnema gjaldeyr- ishöftin? Hvaða peningastefnu ætla stjórnvöld sér að fylgja til að tryggja stöðugt verðlag og laða tortryggið fjármagn á ný að landinu? Spurningin er brýn, því að peningastefnan er enn hin sama og fyrir hrun, þótt hún hafi beðið skipbrot. Spurningunni er enn ósvarað. Ef höftin festast í sessi og annað verður eftir því, verður Ísland eftirbátur Norður- landa. Þess getur þá orðið langt að bíða, að Íslendingar standi aftur jafnfætis Dönum í efna- hagslegu tilliti. Langdræg neyðarráð Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Hvernig ætti svo veikri ríkisstjórn þá að takast að koma sér saman um mun erfiðari umbætur, sem þarf til að hægt sé að afnema gjaldeyrishöftin? Hvaða peningastefnu ætla stjórnvöld sér að fylgja til að tryggja stöðugt verðlag og laða tortryggið fjármagn á ný að landinu? Aðgengileg og þægileg handbók sem hefur að geyma yfir 100 áhugaverða áfangastaði við þjóðvegi landsins. 3.890.- v.á. 4.490.- BESTA BÓKIN Í HANSKAHÓLFIÐ! Hústjöldin að seljast upp! Nú fer hver að verða síðastur að fá sér fjölskyldutjald Frábær tilboð í gangi 3000 mm vatnsheldni Komið og skoðið tjöldin öll uppsett á efri hæðinni í Íslensku Ölpunum fyrstir koma fyrstir fá FULLORÐINSPOKI Kr. 11.995 lÍs en kus Faxafeni 8 // 108 Reykjavík // Sími 534 2727 // e-mail: alparnir@alparnir.is // www.alparnir.is BARNAPOKI 100 CM Kr. 5.995 KRAKKAPOKI 130 CM Kr. 6.995 Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.