Fréttablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
GÓÐUR SVEFN gerir meira fyrir útlitið en margt annað og
um að gera að nota sumarfríið til þess að hvíla sig vel. Það
er ekkert betra en að leyfa sér að sofa út og fá sér svo styttri
fegurðarblundi við hvert tækifæri.
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060 - Opið mánud-föstud. 11-18
Sérverslun með
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN!
Allar vörur á útsölu
„Ég á til dæmis kólumbískan þjóð-
búning, afrísk föt og mexíkóska
skyrtu í fataskápnum. Mér finnst
litrík útlensk föt heillandi og föt
frá slavneskum löndum finnst
mér til dæmis mjög falleg,“ segir
Hrefna Björg Gylfadóttir þegar
Fréttablaðið hnýsist í fataskápinn
hennar.
Hrefna er á kafi í tónlist og hefur
spilað á píanó í sjö ár. Hún syngur
í kór og er að kenna sjálfri sér á
gítar þessa dagana. „Ég jóðla líka
þegar ég er ein,“ segir hún hlæj-
andi og viðurkennir að hafa alltaf
nóg að gera. „Ég er í umhverfis-
ráði í Vinnuskólanum í Reykjavík
og er að koma skólanum mínum,
Breiðholtsskóla, í Grænfánann. Ég
er líka í nemendaráði og skólaráði
og tek ljósmyndir bæði á filmu og
digital.“
Kjóllinn sem Hrefna klæðist á
myndinni er fyrsta notaða flíkin
sem hún keypti sér og fékk hann
í gegnum netið frá Bonnie Jean.
„Ég held að þetta sé barnakjóll,
hann er allavega mjög stuttur. Ég
fékk hann frekar ódýrt. Hálsmen-
ið sem ég er með keypti mamma í
Afríku en við bjuggum þar þegar
ég var lítil.“
Hrefna heldur úti tískubloggi á
Lookbook þótt hún segist ekki for-
fallið tískufrík og þyrfti að upp-
færa síðuna oftar. „Nei, ég hef
engar listrænar kenningar um
tísku en mér finnst samt ótrúlega
gaman að klæða mig.“
Spurð hvort hún kaupi mikið
af notuðum fötum segist Hrefna
grúska á fatamörkuðum eftir
skemmtilegum flíkum. Hún eigi
engan uppáhalds hönnuð og versli
ekki í einni búð frekar en annarri.
„Ég fer inn í allar búðir og finn
eitthvað skemmtilegt. En ég er
bara fimmtán ára og frekar blönk
svo ég versla lítið á Íslandi núna,“
segir hún hlæjandi.
Í sumar vinnur Hrefna sem
turnvörður í Hallgrímskirkju sem
hún segir mjög skemmtilegt starf.
Hún fái að æfa sig í alls konar
tungumálum auk þess sem ekki
séu strangar reglur um klæðnað
turnvarða. „Nei, sem betur fer.
Vinkonurnar héldu að ég yrði að
vera í nunnubúningi en það er alls
ekkert svoleiðis.“ heida@frettabladid.is
Oftast í litríkum fötum
Hrefna Björg Gylfadóttir, nemandi í Breiðholtsskóla, er á kafi í tónlist auk þess sem hún tekur ljósmynd-
ir í frístundum sínum. Hún hefur gaman af fötum og heldur úti tískubloggi á Lookbook.
Hrefna Björg Gylfadóttir
á litríkan fataskáp og
jóðlar í einrúmi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R