Bæjarpósturinn - 30.08.1924, Síða 2

Bæjarpósturinn - 30.08.1924, Síða 2
BÆJARPOSTURINN Mislingarnir. Nú er komið talsvert á annan mánuðsíöan þeir gerðu vart viðsig hér í bænum. Til þessa tíma hafa ekki nema örfáir menn, einn og einn.íeinu sýkst.Ogennþá er veikin ekki nema í einu húsi svo kunnugt sé. Það er því augsýnilegt, að leikur einn hefir verið að verjast útbreiðslu þeirra, og álit héraðs- læknis er, að það sé mjög auð- velt enn, ef menn vilja eitthvað fyrir vinna. Sem stendur liggja 5 í sama húsi, Borgarhól, neðri. Ef menn vilja nú festa sér í huga, þeir sem ekki hafa haft mislinga áður, að hafa ekki samgöngur við þetta hús, og hinir, sem mis- lingafengið, aðhjálpa til að sporna við því, að móttækilegt fólk, börn eða aðrir, sem þeir hafa yfir að ráða, komi í það þar til veikin er um garð gengin, þá hlýtur að mega stöðva útbreiðslu hennar. Menn skulu ekki halda, að ekk- ert geti verið í húfi í þessu efni, að minsta kosti er hálf skopleg heimska, að sækjast eftir að fá og útbreiða veikina. Afleiðingar mislinga geta stund- um verið svoalvarlegar, að mönn- um ætti að vera hugleikið að verjast þeim, og sjálfsagt að gera það, þegar þaö er hægt kosnað- arlaust og fyrirhafnar lítið. Gengiö. Rvík 29/s. Sterl. pd.............. 31,25 Brezki heimsflygillinn Mc. Laren. Eins og kunnugt er, lögðu brezk- ir flugmenn í leiðangur kringum jörðina. En þeir fóru til austurs, í öfuga átt við Bandaríkjamennina. í þeirri flugvél voru 3 menn, og hét foringinn Mc. Laren. Alt frá byrjun, hafa þeir fengið þokur og sérstök óveður á leiðinni, og orð- ið fyrir margskonar óhöppum, að sögn. En samt sem áður hepnað- ist þeim að komast áfram austur móts við Petropavlosk, sem er hafnarbær og hafuðstaðurinn á suðausturströnd Kamtsjatkaskag- ans. í svarta þoku og stórsjó urðu þeir nú fyrir nokkru að nauðlenda þarna á hafinu, sem orsakaði svo miklar skemdir á vélinni, að þeir gátu ekki gert við hana aftur. Til þess vantaði þá ýmiskonar varahluti. En mönnum varð bjargað. Þannig endaði þeirra flugæfin- týri. En talið er, að þeir eigi heið- ur skilið fyrir sína ósleitilegu bar- áttu áfram gegn hættum og hindr- unum, svo lengi sem nokkur von var um að ná markinu. Vegalendin, sem þeir hafa lagt að baki, eru rúmar 12.000 ensk- ar mílur. Danskar kr.......... 113,02 Norskar kr........... 96,29 Sænskar kr.......... 185,35 Dollar ................ 6,99

x

Bæjarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarpósturinn
https://timarit.is/publication/648

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.