Bæjarpósturinn - 17.09.1924, Page 1

Bæjarpósturinn - 17.09.1924, Page 1
 Fréttir frá Hæni BÆJARPÓSTURINN ÚTGEFANDI: SI6. ARNGRÍMSSON VerðtOsu.i eintakið 1. árg. Seyöisfirði, 17. sept. 1924. 10. tbl. Símfregnir. Rvík 15/b. FB. Eldsumbrotin. Jarðslrjálftalaust hefir verið síð- ustu viku. Aðeins einn hver mynd- aðist í Krísuvík, en jarðrask er þar mjög mikið eftir jarðskjálftana. Herriotstjórnin. Samkvæmt gömlum kosninga- loforðum hefir Herriotstjórnin til- kynt, að aðalverkefni sitt væri, að minka dýrtíðina og stöðva franka- gengiö. Morgan býðst til að lána stjórninni 100 miljónir dollara, til þess að fyrirbyggja brall með gengi frankans. Lífeyrir Þýzkalandskeisara fyrv. Stjórn Þjóðverja er í málaferl- um við keisarann út af lífeyri hans. Vill hún borga honum 6 miljónir marka, en hann krefst 20 miljóna árlega. Nýtt morö á Ítalíu. Trésmiður hefir skotið ítalska facistaþingmanninn Armando Casa- lini í hefndarskyni fyrir Matteotte- morðið. Eru menn hræddir um að þetta verði undanfari fleiri stjómmálamorða. Uppreisn gegn Rússum. Georgia (í Kákasus) og Aser- beidschan (í norðvestur Persíu) hafa gert uppreisn gegn Rússum. Sverfurað Frökkumfjárhagslega Frá París er símað, að Banda- ríkin muni bráðlega krefjast end- urgreiðslu á herlánum Frakka t Bandaríkjunum, samtals 3300 milj- ónum dollara. Frökkum er ófær greiðslan ,nema því að eins, að lán fáist hjá ameriskum peninga- mönnum. En þetta er talið ókleyft, nema að jafnvægi náist á fjárlög- um þeirra. Akureyri 10/9. Sigurður Birkis, söngmaður, hefir sungið hér tvisvar sinnum og vakið almenna hrifningu. Fer hann til Seyðisfjarðar nú með Lagarfossi. „ísl.“. Sigurður Birkis er ungur söngvari, sem fengiö hefir lofsamleg ummæli ýmsra fyrir söng sinn, meðal annars Sigfúsar Einarssonar tónskálds, í ,Heimi‘. Rvík 18/o. FB. Hallar á fyrir Spánverjum. Aðstaða Sdánverja í Marokko- stríðinu fer síversnandi og undan- hald daglega. Mannfallið er mik- ið og herinn orðinn gersamalega áhugalaus, þar eð engin sigurvon sé lengur. Rivera reyndir að tala kjark í hann árangurslaust. Upp- reisnarmenn hafa framsett friðar- tilboð svohljóðandi: Her Spán- verja fari buit tafarlaust og yfir-

x

Bæjarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarpósturinn
https://timarit.is/publication/648

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.