Bæjarpósturinn - 05.11.1924, Page 2
BÆJARPOSTURINN
Hjúskapur. Á sunnudaginn, 2.
þ. m., voru gefin saman í hjóna-
band af bæjarfógetanum, ungfrú
Margrét Sigurðardóttir, verzlunar-
mær og Pétur Einarsson, fiski-
matsmaður.
Áfengisskipið svokallaða, sem
álitið var að hefði komið með
vínföng frá Þýzkalandi, er vélskip
50 smál. að stærð og heitir
„Marian“.
Skipverjar hafa verið yfirheyrðir
oft, og er síðast fréttist sátu 3
þeirra í haldi, skipstjóri, stýrimað-
ur og einn íslendingur, Bjarni
Finnbogason. Ekkert höfðu þeir
meðgengið um smyglun í land. Aft-
ur á móti hafa þeir játað að hafa
haft mikiö áfengi í skipinu, en
kastað því öllu fyrir borð úti f
Faxaflóa. Hvergi segjast þeir hafa
haft mök við land síðan í Grinda-
vík nema á Sandi á Snæfellsnesi,
til þess að fá sér kjötskrokk, ann-
ars flækst úti fyrir, ströndinni.
Lands, segjast þeir, hafa orðið að
leita vegna vista-og olíuskorts. Sagt
er að rannsókn muni taka langan
tíma, því yfirheyrslur verði látnar
fara fram vestur um Sandfellsnes,
þar sem þeir játa að hafa haft
mök viö land. Og fullyrt er, að
bæjarfógeti Reykjavíkur muni ekki
skiljast við málið fyr en rannsak-
að er til þrauta um aðalatriði
þess.
f samband við þetta mál setja
menn, að rekið hafa vínandaílát
á Suðurnesjum, og togarar hafa
fengið nokkur slík í vörpur, en tóm.
Hið ágæt^ fróðleiks- og mynda-
blað „Óðinn“, árgangarnir 1923—
'24, fást hjá Jóni í Firði.
5000 siSfurkrónur kyrsettar.
Danska blaðið „Berl, Tid.“ frá 31/n.
segir frá, að tollgæzlan í Stokk-
hólmi hafi lagt hald á kassa með
danskri og norskri silfurmynt sem
hafi komið frá íslandi, og h.afi
upphæðin verið 5000 krónur.
Kássinn hafði komið með járn-
braut til Stokkhólms frá Kristjaníu
og var innihaldíð, sagt „mótor-
hlutir“. í kassanum fanst dáiítið
af verðlausu járnarusli úr vélum.
En það, sem vakti tortryggni á
kassanum var það, að sjáanlegt
var að kassinn kom írá íslandi.
Og tollgæzlunni fanst dalítið und-
arlegt, að sendir væru móturhlut-
ir frá íslandi yfir Noreg til Stokk-
hólms
Á kassabotninum.sem var hulinn
með sagi, fundust 1895 1-krónu-
peningar, 811 danskir 2-krónupen-
ingar, 6,6 kg. danskir 10-eyriugar,-
6,45 kg. danskir 25-eyringar og
61 norskir 50-eyringar. En af því
að ekki er leyfilegtað flytja þéssa
mynttil Svíþjóðar var lagt hald á
kassann meðankomistyrði fyrir um
hver bæri ábyrgð á sendingunni.
Gengiö. Rvík 4/n.
Sterl. pd 28,75
Dánskar kr '109,52
Norskar kr 91,01
Sænskar kr 168,61
Dollar 6,34
Prentsmiöja Austurlands.