Bæjarpósturinn - 05.11.1924, Qupperneq 2

Bæjarpósturinn - 05.11.1924, Qupperneq 2
BÆJARPOSTURINN Hjúskapur. Á sunnudaginn, 2. þ. m., voru gefin saman í hjóna- band af bæjarfógetanum, ungfrú Margrét Sigurðardóttir, verzlunar- mær og Pétur Einarsson, fiski- matsmaður. Áfengisskipið svokallaða, sem álitið var að hefði komið með vínföng frá Þýzkalandi, er vélskip 50 smál. að stærð og heitir „Marian“. Skipverjar hafa verið yfirheyrðir oft, og er síðast fréttist sátu 3 þeirra í haldi, skipstjóri, stýrimað- ur og einn íslendingur, Bjarni Finnbogason. Ekkert höfðu þeir meðgengið um smyglun í land. Aft- ur á móti hafa þeir játað að hafa haft mikiö áfengi í skipinu, en kastað því öllu fyrir borð úti f Faxaflóa. Hvergi segjast þeir hafa haft mök við land síðan í Grinda- vík nema á Sandi á Snæfellsnesi, til þess að fá sér kjötskrokk, ann- ars flækst úti fyrir, ströndinni. Lands, segjast þeir, hafa orðið að leita vegna vista-og olíuskorts. Sagt er að rannsókn muni taka langan tíma, því yfirheyrslur verði látnar fara fram vestur um Sandfellsnes, þar sem þeir játa að hafa haft mök viö land. Og fullyrt er, að bæjarfógeti Reykjavíkur muni ekki skiljast við málið fyr en rannsak- að er til þrauta um aðalatriði þess. f samband við þetta mál setja menn, að rekið hafa vínandaílát á Suðurnesjum, og togarar hafa fengið nokkur slík í vörpur, en tóm. Hið ágæt^ fróðleiks- og mynda- blað „Óðinn“, árgangarnir 1923— '24, fást hjá Jóni í Firði. 5000 siSfurkrónur kyrsettar. Danska blaðið „Berl, Tid.“ frá 31/n. segir frá, að tollgæzlan í Stokk- hólmi hafi lagt hald á kassa með danskri og norskri silfurmynt sem hafi komið frá íslandi, og h.afi upphæðin verið 5000 krónur. Kássinn hafði komið með járn- braut til Stokkhólms frá Kristjaníu og var innihaldíð, sagt „mótor- hlutir“. í kassanum fanst dáiítið af verðlausu járnarusli úr vélum. En það, sem vakti tortryggni á kassanum var það, að sjáanlegt var að kassinn kom írá íslandi. Og tollgæzlunni fanst dalítið und- arlegt, að sendir væru móturhlut- ir frá íslandi yfir Noreg til Stokk- hólms Á kassabotninum.sem var hulinn með sagi, fundust 1895 1-krónu- peningar, 811 danskir 2-krónupen- ingar, 6,6 kg. danskir 10-eyriugar,- 6,45 kg. danskir 25-eyringar og 61 norskir 50-eyringar. En af því að ekki er leyfilegtað flytja þéssa mynttil Svíþjóðar var lagt hald á kassann meðankomistyrði fyrir um hver bæri ábyrgð á sendingunni. Gengiö. Rvík 4/n. Sterl. pd 28,75 Dánskar kr '109,52 Norskar kr 91,01 Sænskar kr 168,61 Dollar 6,34 Prentsmiöja Austurlands.

x

Bæjarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarpósturinn
https://timarit.is/publication/648

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.