Bæjarpósturinn - 27.11.1924, Blaðsíða 1

Bæjarpósturinn - 27.11.1924, Blaðsíða 1
■ 3CIX Fréttlr trá ítenl BÆJARPÓSTURINN ÚT6EFANDI: SI6. ARN6RÍMSS0N VerB 15 eb. elntakið mm. 1. árg. Seyðisfiröi, 27. nór. 1924. 17. tbl. Símfregnir. Rvík 25/n. FB. Búnaðarlánadeildin. Fjármálaráduneytið (tiikynni r, að út af missögnum í blöðunum þess efnis, að ráðuneytið hafi á- kveðið, að hin fyrirhugaða bún- aðarlánadeild við Landsbankann verði ekki stofnuð, skuli það upp- lýst, að stjórn Landsbankans hefir færst undan því, að stafna þessa deild, eins og nú sta'nda sakir, meðal annars vegna þess, að bankinn hafi ekki fé til slíkra út- lána. Og segir ennfremur, að ráðu- neytið hafi tilkynt Búnaðarfélagi íslands, að varhugavert myndi af því, að ganga fast eftir því bein- línis móti vilja bankastjórnarinnar, að byrjað verði á ftamkvæmd laganna. Enda væri það tilgangs- laus þvingun, þar sem lögin leggja það alveg á vald bankastjórnar- innar, hvort litlu eða miklu fé sé varið til útlánanna innan þess há- marks er lögin ákveða. Eu búnaðarlánadeildin geturað sjálfsögðu tekið til starfa \undir eins og bankastjórnin telur bank- ann hafa fé fyrir hendi til þess. Og hefir ráðuneytið enga ráð- siöfun gert í gagnstœða átt. Hinsvegar er ráðuneytið, í sam- vinnu við Búnaðarfélag íslands og Landsbankastjórnina, að undirbúa tillögur um endanlega úrlausn á þessu nauðsynjamáli. Zuglal pasha f Egyptalandi gengur að öllum krofum Breta nema afturköllun hersins úr Sud- an. Viðbúið er, að Bretar reyni að fá kröfum sínum framgengt með valdi, og er útlitið all-alvar- legt. Jauris jafnaöarmannaforingi, sem myrtur var á stríðsárunum var á sunnudaginn fluttur tíl Paatheon, legstaðar mikilmenna Frakklands, með mikilli viðhöfn. Rvík 2B/n. FB. Bretar ng Egyptar. Skaðabótin fyrir Stocksmorðið er greidd. Stjórnarskifti hafa orð- ið í Egyptalandi. Nýja stjórnin er vinveitt Bretum, en þeir bíða á- tekta þótt þeir séu fastákveðnir að halda yfirráðum í Sudan. Brezk herskip á leiðinni til Egypta- lands. Kveldúlfur kaupir nýjan togara í Hull. Dýrtföin hefir aukist 16%. Samkvæmt útreikningi Hagstof- unnar hefir dýrtíðin aukist 16% síðan í fyrra. Útflutningur 65 miljdnir. Útflutningur íslanzkra afurða,

x

Bæjarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarpósturinn
https://timarit.is/publication/648

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.