Bæjarpósturinn - 13.02.1925, Blaðsíða 1
nmiiimnac Fríttlr fri ! DÆIADDnCTIIDIMM 1 VnmmaaxX Vcr 15 OB.
Haeni BÆ JAKru j 1UKINN! elntakia
ÚT6EFANDI: SI6. ARN6RÍMSS0N
1. árg. Seyöisfiröi, 13. febr. 1925. 23. tbl.
Símfregnir.
Rvík 10/2. FB.
Frá Berlin. Stresemann, ríkis-
kanslari iyrverandi stjórnar, og
Luther, þá fjármálaráðherra, hafa
verið sakaðir um misbeiting em-
bættisvaldsins í þágu iðjuhölda í
Ruhr, er kröfðust í desember að
ríkið endurgreiddi þeim 718 milj-
ónir gullmörk, sem skaðauppbót,
er þeir hefðu liðið, vegna hertöku
Ruhr. Fengu þeir 2 miljarða gull-
marka, er þeir endurborguðu í
verðlausum pappírsseðlum. Og er
komið í Ijós, að þeir stórgraeddu
á hertökunni.
Frá Genf. Bandaríkjamenn yfir-
gefa ópíumsráðstefnu, sem yfir
stendur, reiðir mjög, vegna þess,
að ríki, er lönd eiga þar, sem
ópíum er ræktað, viija ekki gera
gangskör að takmörknn framleiðsl-
unnar.
Prússlandsráöuneytiö aftur far-
ið frá völdum.
Rvík u/2. FB.
Skaöar og manntjón.
í veðrinu á sunnudaginn urðu
talsverðir skaðar á höfninni hér
og húsum. Tvær bryggjur skemd-
ust að mestu. Kolabarkur sökk og
vélbátur. Margir togarar eru komn-
ir inn með brotna báta og loft-
skeytastengur. Á einum brotnaði
bátadekkið og féll sjór í lestina,
og annar misti út 38 tunnur lifr-
ar, og einn kom með brotið stýri.
Einar Einarsson,
kyndari á Qullfossi, sem var á út-
leið, varð fyrir brotsjó og beið
bana af.
Frá Alþingi.
Sjálfstæðismenn og Framsókn-
armenn sameinuðust um neíndar-
kosningar í neðri deild. Samein-
ingin sennilega ekki víðtækari.
Rvík u/2. FB.
Frá Alþingi.
Þingmannafrumvörp eru byrjuð
að koma fram. Bjarni frá Vogi
flytur frumvörp um mannanöfn og
kenslustundafjölda kennara íMenta-
skólanum. Fjármálaráðherra hefir
haldið mikla ræðu urn fjárhags-
yfirlit og tekjur ríkissjóðs á árinu,
sem farið hafa um 3 miljónirfram
úr áætlun. Af tekjuafganginum hef-
ir verið varið 6—700 þúsund kr.
til greiðslu lausaskulda. Bankarn-
ir hafa greitt 8 miljóna kr. skuld
erlendis og auk þess safnað8mil-
jón kr. inneign þar. Otflutningur-
inn nam 80 miljónum og orðiö
að vörumagni 62% meira en 1914
og 45% meira á hvem mann
í landinu. Fjármálaráðherra sagði
að hin glæsilega afkoma stáfaði