Bæjarpósturinn - 05.03.1925, Síða 1

Bæjarpósturinn - 05.03.1925, Síða 1
ppœcaxccccœ * Fréttlr frá Hæni &oocnxrxxxrx3 BÆJARPÚSTURINN ÚT6EFANDI: SI6. ARN6RÍHSS0N ÍJVer 15 au. eintakið 1. árg. Seyöisfirði, 5. marz 1925. 28. tbl. Rvík 28/2. FB. Frá Alþingi. Stjórnarfrumv. framkomið um dósentsembætti í málfrœdi og sögu íslenzkrar tungu. Vísað til mentamá'anefndar. Efri deiid mót- faílin því að skemtanaskatturinn skiftist. Varalögreglufrumv. liefir tvíveg- is veriö tekið af dagskrá vegna langra umræðu um önaur mál. Slys. Maður beið bana við grjót- vinnu í Hafnarfirði í gær, Sigurð- ur Jónsson að nafni, nýgiftur. Ebert er alvarlega veikur. Bretar hafa í hyggju að auka loftflotann stórkostlega. Rvík 2/a. FB. Ebert ríkisforseti Þýzkalands lézt á laugardag rólegum dauða úr lííhimmibólgu, er var eftir- köst uppskurðar við botnlanga- bólgu. Forsetakosning fer fram innan sex vikna. Margir benda á Marx sem líklegan eftirmann. Dágóður afli í Vestmannaeyj- um, 4—7 hundruð á bát. Frá Alþingi. Viðbúist að umræðum um vara- lögreglufrumvarpið Ijúki í þessari viku, hefir það hvað eftir annað verið tekið af dagskrá vegna langra umræða um önnur mál. Rvík 3/a. FB. Jarðarför Brantings fór fram á sunnudaginn með meiri viðhöfn en dæmi eru til á Norðurlöndum. Áttatíu þúsundir manna þátttöku. Frá Alþingi. Efri deild hefir felt frumvarpið um að skifta skemtanaskatti milli landsspítala og þjóðleikhúss. Fjáraukalögin íyrir 1924 hefir neðri deild afgreitt til efri deildar. Frakka og Englendinga deilir á um hve lengi setuliðið skuli vera í Köln. Englendingar vilja að það fari er Þjáðrerjar hafi uppfylt viss skilyrði, en Frakkar vilja að það sitji sem lengst. Eitt- hvert leynimakk um samband kvað vera á milli Breta og Þjóðverja og vekur þetta mestu eftirtekt. Rvík 4/3. FB. bruni á Siglufiröi. í fyrradag á hádegi brann hús Henriks Thorarensen læknis á Siglufirði ásamt prentsmiðju og útbyggingu. Inni brunnu innan- stokksmunir allir, prentáhöld, lyf, læknisáhöld, nær fullprentuð lækn- ingabók og handrit. Kviknaði út frá ofni. Húsið var eign lands- bankans. Skaði læknis tilfinnan- legur.

x

Bæjarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarpósturinn
https://timarit.is/publication/648

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.