Fréttablaðið - 06.08.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI6. ágúst 2010 — 182. tölublað — 10. árgangur
FÖSTUDAGUR
skoðun 12
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Veiti h
4ra rétta
Góð tækifærisgjöf!
Kryddlegin bleikjameð rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósuHumarsúparjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsinsþað ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvennameð steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapiocameð steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
DRÁTTARVÉLADAGUR og töðugjöld verða haldin í
Sauðfjársetrinu í Sævangi á morgun klukkan 14. Kaffihlað-
borð verður í Kaffi Kind og sögusýningin Sauðfé í sögu
þjóðar verður opin allan daginn. www.strandir.is
„Ég steiki nautalund á mjög heitri
pönnu í tvær mínútur á hvorri
hlið og læt svo liggja á pönnunni
í svona tíu mínútur,“ segir Jóna
Hlíf Halldórsdóttir myndlistar-kona. „Svo set ég salt og pipar og
sker kjötið í þunnar sneiðar.“ Með
þessu ber hún fram sósu gerða úr
sojasósu, sesamfræjum og fersku
kóriander.
Jóna segist hafa borðað mikinn
fisk í sumar. „Og þegar byrjar að
hausta langar mig að fara að fá
kjöt, en samt ekki alveg strax kjötog kartöflur Þ ð
Kjötið kemur með hausti
Jóna Hlíf Halldórsdóttir telur að matur með réttri litablöndu fari vel ofan í maga. Á námsárum sínum bjó
hún í Glasgow með tveimur vinum og skiptust þau á að elda því þau höfðu öll áhuga á eldamennsku.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir segir dóttur sína Rósku kunna vel að meta steiktu nautalundirnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
500 g nautalund
Steikið á háum hita í tvær mín-útur á hvorri hlið og skerið svo í þunnar sneiðar. Takið af hellunni og kryddið með salti og pipar og látið standa á pönnu með loki í tíu mínútur.
Sósa
HAUSTBOMBA JÓNU HLÍFARog grískt salat fyrir tvo
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 6. ágúst 2010
KRÝNIR SIG
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
Utsölulok
Opið til 19
um helgina
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
ÚTSÖLULOK
UM HELGINA
REYKJAVÍK Jón Gnarr borgarstjóri
segir að allir sem hafi góðan
huga geti gegnt embætti borgar-
stjóra. Nú eru tæpir tveir mán-
uðir síðan hann tók við starfinu.
Jón segir að margt hafi komið
sér á óvart og hann hafi þurft
að kynna sér ýmislegt sem hann
ekki þekkti áður. Til þess hafi
ekki gefist nægur tími þar sem
hann hafi tekið við starfi í upp-
hafi sumarleyfistíma. Jón segir
liggja ljóst fyrir að hækka þurfi
gjaldskrá Orkuveitu Reykja-
víkur, en segir enn óvíst hvað
verði með aðrar gjaldskrár.
Hann muni þó forðast hækkanir í
lengstu lög.
- kóp / sjá síðu 10
Kynnir sér borgarmálin:
Allir geta verið
borgarstjórar
Kóngar og drottningar
Draggkóngar og -drottning
Íslands voru krýnd í
Óperunni í gær.
fólk 20
FÓLK „Hún virkar mjög vel á
mann og er bráðhugguleg stúlka.
Hún er hlýleg og sæt og með
góða nærveru,“ segir blaðamað-
urinn Þórarinn Þórarinsson um
Miðbaugsmaddömuna Catalinu
Ncogo.
Þórarinn og Jakob Bjarnar
Grétarsson blaðamaður vinna að
ævisögu Catal-
inu. Jakob segir
að saga Catal-
inu verði rakin
aftur til Mið-
baugs-Gíneu
þar sem hún
segir frá lífinu
sem ung stúlka.
„Með ævintýra-
legum hætti er
koma hennar til
landsins rakin, en Catalina kom
hingað mjög ung,“ segir Jakob.
„Hún var gift kona í Vestmanna-
eyjum í tíu til tólf ár og þegar því
tímabili lauk kom hún til Reykja-
víkur og ákvað að leggja fyrir
sig vændi en kom þar að óspillt-
um markaði.“
- ls / sjá síðu 30
Skrifa ævisögu Catalinu:
Húsfreyja sem
fór í vændi
CATALINA NCOGO
NEYTENDAMÁL Neytendastofa telur
að Lýsing hafi brotið ýmis ákvæði
neytendalaga við gerð samnings
um bílalán manns sem kvartaði
við Neytendastofu. Niðurstaðan
hefur áhrif á aðra samninga Lýs-
ingar sem eins háttar til um.
Ágallarnir á samningnum gera
það að verkum að viðsemjand-
inn þarf ekki að borga verðtrygg-
ingu af innlendum hluta lánsins,
vaxtaálag eða breytilega vexti,
vegna þess að það gleymdist að til-
greina þessi atriði með fullnægj-
andi hætti í samningnum, að því
er fram kemur í ákvörðun Neyt-
endastofu.
Viðsemjandinn kvartaði yfir
þessu til Neytendastofu og viður-
kennir Lýsing í greinargerð sinni
til Neytendastofu að ýmis mis-
tök hafi verið gerð við samnings-
gerðina. Ákvörðun Neytendastofu
er bindandi og leggur þá skyldu á
Lýsingu að bregðast við og láta af
háttsemi sinni.
Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs-
stjóri hjá Neytendastofu, segir
augljóst að ekki hafi verið vandað
til samningsgerðarinnar hjá Lýs-
ingu. Hún getur ekki sagt til um
hvaða þetta þýðir fyrir lántakann
í krónum talið, enda fari það eftir
lánsfjárhæð, lánstíma og öðru.
Þórunn segir að Neytendastofa
hafi fengið ábendingar um sam-
bærileg mistök á fleiri samningum
og að ákvörðunin í þessu tiltekna
máli ætti að gilda um alla samn-
inga þar sem eins var farið.
Í ákvörðun Neytendastofu
kemur fram að samkvæmt lögum
um neytendalán geti lántakend-
ur átt rétt á skaðabótum hafi lán-
veitandi ekki veitt fullnægjandi
upplýsingar við lántökuna. Slíkar
kröfur verði að leysa með samn-
ingum eða fyrir dómstólum, enda
taki Neytendastofa ekki afstöðu til
slíkra skaðabótakrafna.
Í yfirlýsingu frá Lýsingu sem
birt var á vef félagsins í gær segir
að ekki hafi verið ákveðið hvort
ákvörðun Neytendastofu verði
vísað til áfrýjunarnefndar neyt-
endamála.
Þar segir enn fremur að athuga-
semdirnar eigi við um samnings-
form sem notað hafi verið við
takmarkaðan hluta af bílalána-
samningum félagsins. Mikilvægt
sé að samningsform séu hafin yfir
vafa, og því hafi flest samnings-
form Lýsingar þegar verið endur-
skoðuð.
Lýsing hefur fjórar vikur til að
áfrýja til áfrýjunarnefndar, og
þaðan má áfrýja til dómstóla. Hér-
aðsdómur hefur þegar dæmt Lýs-
ingu í óhag í máli þar sem sami
ágalli var á samningi hvað verð-
trygginguna snerti. - sh, bj
Kolólöglegur lána-
samningur Lýsingar
Alvarlegir gallar eru á einhverjum af bílalánum Lýsingar í íslenskum krónum
að mati Neytendastofu. Lánþegar gætu sloppið við að greiða verðtryggingu,
vaxtaálag eða breytilega vexti. Samningsform Lýsingar hafa verið endurskoðuð.
Fjölbreytileiki lónsins
myndaður
Nýlega var gefin út bók
Þorvarðar Árnasonar með
myndum frá Jökulsárlóni.
tímamót 16
RIGNING VESTAN TIL Í dag verða
suðaustan 5-10 m/s og rigning V-til
en annars yfirleitt hægari og bjart
með köflum A-til. Hiti 12-18 stig,
hlýjast NA-lands.
VEÐUR 4
16
15
14
14
13 BORGARSTJÓRI Í DRAGGI Borgarstjórinn Jón Gnarr mætti á setningarhátíð Hinsegin daga í
gærkvöldi í draggi. Þátttakan í Hinsegin dögum er liður í því að borgarstjórinn verði meiri þátttakandi í lífi borgar-
búa, að því er Jón segir í viðtali við Fréttablaðið í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FH í toppbaráttuna
FH-ingar unnu 3-1 sigur á
ÍBV í Eyjum og eru komnir
á fullt í baráttuna um
mesistaratitilinn.
íþróttir 26