Fréttablaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 33
13. ágúst föstudagur 5
Verslun okkar er í Smáralind
2. hæð við D-inngang. Sími 511-10-09
Ég var búin að vera í rugli með húðina á mér vegna mikilla hitabreytinga og var búin að vera hjá húðsjúkdómalækni og á sterkum lyfjum þar sem ég var gjörn á að fá útbrot og þurrkubletti. Eftir tvær vikur með Mineral Flowers línunni hætti ég á lyfjunum. Húðin á
mér er hefur aldrei verið heilbrigðari og fallegri. Ég mæli sérstaklega með gelinu til að hreinsa
húðina fyrir svefninn.
Mineral Flowers línan er náttúruleg og einstaklega góð við íslenskar aðstæður þar sem aska, skyndilega hita- og rakabreytingar eru daglegt brauð. Þessi dásamlegu krem hafa losað mig við öll útbrot og húðlæknaheimsóknir. Whoop whoop fyrir því! Þorbjörg Marinósdóttir
Blaðakona, bloggari og rithöfundur
náttúrulegar og lífrænar snyrtivörur
signaturesofnature.is
NATURESCENT
Organic farming, 65 % lifrænn
grunnur, 35 % náttúrulegur, engin
rotvarnarefni og án allra kemískra
efna. Hentar fyrir alla. Verð frá
1.690-4.590 kr.
PARABEN FREE
99.97% náttúruleg. Engin litarefni,
inniheldur jurtir,steinefni, aloe vera,
spirulina. Fyrir allar húðgerðir.
Verð frá 2.190-6.590 kr.
FRÁBÆR TILBOÐ
UM HELGINA
EFNISINNIHALD:
aloa vera barbadensis, steinefni, rasbberrys, möndlur, c-vítamín,
e-vítamín, green tea, laufasafi, a-vítamín, spirulina, camomile,
magnesium, lemongrass, olive olía, lavender, fruit olía, coconut, jojoba olía
sveitarinnar Ísafoldar, sem skipuð er mörgum efni-
Kammersveitin Ísafold var stofnuð
árið 2003 og var fyrsta verkefni sveit-
arinnar tónleikaferð um landið. Mikið
vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og
hefur hljómsveitin haldið fjölda tón-
leika og tekið þátt í ýmsum verkefnum.
Ísafold sérhæfir sig í flutningi sam-
tímatónlistar og er markmið sveitar-
innar að þessi tónlist nái til eyrna sem
flestra.
Meðlimir Ísafoldar hafa allir skar-
að fram úr á sínu sviði og sumir hafa
hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir
störf sín. Á meðal þeirra er fiðluleikar-
inn Elfa Rún Kristinsdóttir sem hlaut
fyrstu verðlaun í Johann Sebastian
Bach-tónlistarkeppninni í Leipzig árið
2006. Hún var valin Bjartasta vonin á
Íslensku tónlistarverðlaununum 2006
og hlaut einnig hvatningarverðlaun
Evrópska menningarsjóðsins Pro Eur-
opa sama ár. Auk þess hlaut sellóleik-
arinn Sæunn Þorsteinsdóttir nýver-
ið fyrstu verðlaun í einleikarakeppni
Cleveland Cello Society.
Sveitin gaf út sína fyrstu plötu árið
2007 og innihélt hún meðal ann-
ars verk eftir Schönberg, Sør-
ensen og Takemitsu. Ári síðar
hlaut Ísafold Íslensku tónlistar-
verðlaunin sem flytjandi árs-
ins í flokki sígildrar og sam-
tímatónlistar og sama ár var
Kammersveitin valin Tón-
listarhópur Reykjavíkur-
borgar.
Kammersveitin Ísafold:
FULL AF HÆFILEIKAFÓLKI
tónleikana í Norðurpólnum. Mel-
korka segir það þó ekki koma að
sök því flest séu þau búin að æfa
sinn part í nokkurn tíma. Þegar
þau eru innt eftir því hvort þau
hlakki til kvöldsins svara þau
bæði játandi.
Melkorka: „Ég hlakka mikið
til. Norðurpóllinn er skemmti-
lega hrátt húsnæði og býður upp
á marga möguleika. Myndbönd-
in eru að tínast í hús og eru mjög
flott. Þetta verður upplifun!“
Daníel: „Við vonumst líka eftir
góðri mætingu og lofum mikilli
stemningu.“
Gjörningurinn hefst klukk-
an 19.00 og verður hvert mynd-
bandsverk flutt að minnsta kosti
tvisvar sinnum á milli klukkan
19.00 og 23.00. Nánari efnisskrá
má nálgast á vefsíðum artFart og
Ísafoldar.