Fréttablaðið - 14.08.2010, Blaðsíða 50
14. ágúst 2010 LAUGARDAGUR6
Landakotsskóli
Stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúa vantar í 60%-100% starf við skólann frá
og með upphafi skólaárs. Nánari upplýsingar um starfi ð
veitir Sölvi Sveinsson skólastjóri í síma 510 8200 eða í
netfanginu solvi.sveinsson@reykjavik.is.
Landakotsskóli ses er sjálfseignarstofnun. Þar starfa 20-30
manns og nemendur eru á annað hundrað. Skólinn býður upp á
metnaðarfullt nám fyrir allt frá fi mm ára börnum upp í 10. bekk,
trausta kennslu og heimilislegt andrúmsloft.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Mannauðsstjóri
Landsbankinn auglýsir starf mannauðsstjóra laust til umsóknar. Starfið felur í sér
áherslu á metnaðarfulla mannauðsstefnu og góða fyrirtækjamenningu. Leitað er að
kraftmiklum einstaklingi til að annast þetta ábyrgðarmikla og fjölbreytta starf.
Helstu verkþættir:
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðs-
tengdum málum
• Stuðla að traustri fyrirtækjamenningu
• Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni
• Umsjón með starfsþróunarmálum
• Mat á mannaflaþörf og umsjón með ráðningum
• Ábyrgð á gerð starfslýsinga og starfssamninga
• Þátttaka í mótun og framkvæmd launastefnu
Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Háskólamenntun er skilyrði og framhaldsmenntun
á sviði mannauðsmála er æskileg
• Starfsreynsla á sviði mannauðsstjórnunar er
nauðsynleg
• Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
• Góð skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð
vinnubrögð
Upplýsingar veita:
Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is
og Sturla J. Hreinsson, sturla@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Landsbankinn er stærsta fjármála-
fyrirtæki landsins og veitir alhliða
fjármála þjónustu til einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana. Starfsmenn
eru um 1100 talsins og útibúanet
bankans telur 37 útibú og afgreiðslur
um land allt.
Starfsmaður í móttöku
sjúkraþjálfunar og heilsuræktar.
Sjúkraþjálfun STYRKUR ehf óskar eftir starfsmanni í
móttöku eftir hádegi frá kl. 12.15 – 17.00. Starfi ð felst
m.a í símavörslu, mótttöku viðskiptavina, tímabókunum,
tölvuskráningu, frágangi o.fl . Óskað er eftir vingjarnleg-
um, áhugasömum og röskum einstaklingi
sem er að leita eftir framtíðarstarfi og getur
hafi ð störf strax.
Áhugasamir vinsamlegast sendið ferilsskrá á
netfangið audurstyrkur@simnet.is
fyrir 21. ágúst 2010.
Æskulýðsfulltrúi, hálft starf
Ástjarnarkirkja í Hafnarfi rði óskar eftir að ráða æskulýðsfull-
trúa í 50% starf til að taka við öfl ugu starfi sóknarinnar með
börnum og unglingum.
Krafi st er djákna- eða guðfræðiprófs, uppeldismenntunar
eða annarrar menntunar sem nýtist í starfi . Reynsla af
æskulýðsstarfi er skilyrði. Starfsmaður þarf að hefja störf 1.
september.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
sendist til Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfi rði fyrir
28. ágúst, merkt „Æskulýðsfulltrúi”.
Sóknarnefnd Ástjarnarsóknar
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Hugbúnaðarsérfræðingur
Framtíðin er björt og við erum að stækka, þess vegna leitum við að öflugum einstak-
lingi til þess að takast á við spennandi verkefni sem eru framundan hjá okkur.
Helstu verkefni:
• Um er að ræða hönnun og uppbyggingu á
hugbúnaði fyrir framleiðslustýringu fiskeldis,
ásamt samtengingu tæknibúnaðar frá Vaka.
Einnig viðbætur við núverandi hugbúnað.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í tölvunarfræði eða verkfræði.
• Þekking á C#, Delphi, SQL.
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar.
Upplýsingar veitir:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með
22. ágúst nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Vaki er leiðandi fyrirtæki í þróun og markaðssetningu tæknibúnaðar
fyrir fiskeldi. Nánast öll framleiðsla er seld á erlenda markaði í gegnum
umboðsaðila eða dótturfyrirtæki erlendis. Starfsmenn á Íslandi eru
16 og 6 starfa í dótturfyrirtæki Vaka í Chile.
Vaki hlaut
Útflutningsverðlaun
forseta Íslands
árið 2009.