Fréttablaðið - 19.08.2010, Side 70

Fréttablaðið - 19.08.2010, Side 70
42 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Sigurður Gunnar Þor- steinsson, miðherjinn öflugi frá Ísafirði sem hefur spilað með Keflavík undanfarin fjögur tíma- bil, hefur sett stefnuna á atvinnu- mennsku í vetur. „Ég er ekki kominn með til- boð eins og er en ég er að vonast eftir því. Ég er með umboðsmann á Spáni sem er að leita fyrir mig að liði á Spáni,“ sagði Sigurður Gunnar í samtali við Fréttablað- ið í gær. „Það er kreppa þar eins og ann- ars staðar þannig að maður veit ekki alveg hvernig þetta þróast,“ segir Sigurður Gunnar. Sigurður Gunnar var með 13,5 stig og 7,8 fráköst að meðaltali á 25,5 mínútum á síðasta tímabili þar sem hann hjálpaði Keflavíkur- liðinu að komast alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Hann varð Íslandsmeistari með Keflavík vorið 2008 og átti sitt besta tíma- bil 2008-09 þar sem hann var með 16,3 stig, 9,7 fráköst og 2,4 varin skot að meðaltali í leik. „Ég er með samning við Kefla- vík í eitt ár til viðbótar en ég má fara ef það kemur tilboð erlendis frá,“ segir Ísafjarðartröllið sem hefur verið í hópi allra bestu mið- herja deildarinnar undanfarin tímabil. - óój Sigurður Gunnar Þorsteinsson vill komast til Spánar: Vonast eftir tilboði SIGURÐUR GUNNAR ÞORSTEINSSON FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í Iceland Express deildinni, segist vera að íhuga það í samráði við forráðamenn félags- ins að draga liðið úr keppni í vetur. „Við tökum ákvörðun um það annaðhvort á morgun eða hinn hvort við sendum lið í keppni,“ segir Jóhann en þrír lykilleikmenn hafa þegar tilkynnt að þeir verði ekki með liðinu og það gætu fleiri bæst í þann hóp. Jovana Lilja Stefánsdóttir er farin út, Ingbjörg Jakobsdóttir ákvað að fara í Keflavík og Íris Sverrisdóttir ætlar að spila með annaðhvort KR eða Haukum. „Þetta fór strax af stað í vor að það yrði ekkert lið og þessi og hin ætluðu að hætta. Þetta er búið að vera erfitt sumar og við höfum upp á síðkastið fengið hverja frétt- ina á fætur annarri um leikmenn sem eru á förum frá okkur,” segir Jóhann en hann segir að það sé búið að gera mikið fyrir þessa kynslóð í Grindavíkurliðinu sem er nú að yfirgefa félagið þegar á reynir. „Þegar kallið kemur og áskorunin kemur, þá þurfa þær að fara að leita að áskorun einhverstaðar annars staðar,” segir Jóhann sem hefur ekki getað byrjað æfingar af alvöru vegna allrar óvissunnar um leikmannamál. „Þetta kemur við fólk og það kemur með þessu ákveðin uppgjöf. Sumar hverjar voru jafnvel búnar að gera munnlegt samkomu- lag en hættu svo við. Þetta eru í raun búin að vera eintóm leið- indi í allt sumar,” segir Jóhann. Grindavík hefur verið einna liða duglegast að framleiða leikmenn í kvennakörfunni undanfarin ár. „Ef það væru bannaðir útlendingar og við værum með okkar heimastúlkur í okkar liði þá værum við með mjög öflugt lið,“ segir Jóhann sem er ekki alveg hættur. „Ég er að reyna að styrkja liðið, er að bíða eftir svörum héðan og þaðan og er að reyna að fá einhverja leikmenn í staðinn. Ég held að það séu meiri líkur á að liðið verði með en hitt. Það er algjörlega síðasti kostur að draga liðið úr keppni,“ segir Jóhann en Grindavík hefur leikið í efstu deild kvenna allt frá árinu 1986. JÓHANN ÞÓR ÓLAFSSON, ÞJÁLFARI GRINDAVÍKUR: GÆTI ÞURFT AÐ DRAGA KVENNALIÐ GRINDAVÍKUR ÚR KEPPNI Þetta eru búin að vera eintóm leiðindi í allt sumar - sláttuvélar Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0000 · www.aflvelar.is - sala - varahlutir - þjónusta FÓTBOLTI Það er fátt sem bendir til þess að framherjinn ungi Alfreð Finnbogason verði áfram í herbúð- um Breiðabliks á næstu leiktíð. Frammistaða hans í Pepsi-deild- inni í fyrra, sem og í ár, fer ekki fram hjá erlendum útsendurum og allt útlit er fyrir að Breiðablik muni fá fínan pening fyrir leik- manninn. Alfreð er einnig hluti af hinu magnaða U-21 árs liði Íslands en hann skoraði í leiknum gegn Þjóðverjum á dögunum. Fram kom í pólskum fjölmiðl- um í gær að úrvalsdeildarfélag- ið Lechi Gdansk væri á höttunum eftir Alfreð. Þetta staðfesti þjálf- ari liðsins, Tomasz Kafarski, við þarlenda fjölmiðla. Samkvæmt fréttinni er Alfreð sagður kosta að minnsta kosti 15 milljónir íslenskra króna. Sú tala getur hæglega hækkað fari svo að félög sláist um þjónustu leik- mannsins. Þetta félag hafnaði í 8. sæti af 16 liðum í pólsku úrvalsdeildinni í fyrra. Liðið á mjög öfluga stuðn- ingsmenn og leikur á um 12 þús- und manna velli í dag. Verið er að stækka völlinn svo hann taki 44 þúsund manns í sæti en leikið verður á vellinum á EM 2012. Stuðningsmenn liðsins eru þekktir fyrir að hafa barist gegn kommúnismanum á sínum tíma. Á heimavelli liðsins má enn sjá borða með slagorðum gegn komm- únisma. Þekktasti stuðningsmað- ur liðsins er líklega Lech Walesa, fyrrum forseti Póllands. Alfreð hefur verið einn albesti leikmaður Íslandsmótsins í ár ef ekki sá besti. Hann hefur verið besti leikmaður Blika sem sitja sem stendur í öðru sæti deildar- innar. Alfreð er markahæsti leik- maður Pepsi-deildarinnar með 12 mörk í 16 leikjum. henry@frettabladid.is Alfreð orðaður við lið í Póllandi Hinn magnaði framherji Breiðabliks, Alfreð Finnbogason, er undir smásjá margra félaga eftir magnaða frammistöðu með Blikum í ár og í fyrra. EFTIRSÓTTUR Pólska félagið Lechi Gdansk er sagt vera til í að greiða 15 milljónir króna fyrir Alfreð Finnbogason. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTOM > Margrét Lára æfði í gær Íslenska kvennalandsliðið fékk góð tíðindi í gær þegar Margrét Lára Viðarsdóttir kláraði fyrstu æfingu landsliðsins fyrir Frakkaleikinn mikilvæga. Margrét Lára hefur verið meidd í nokkurn tíma og lítið æft. Hún spilaði þó í 90 mínútur í síðasta leik Kristianstad. Sveinbjörn Brandsson, læknir landsliðsins, mun skoða markvörðinn Þóru B. Helgadóttur í dag en hún meiddist í upphitun fyrir síðasta leik síns liðs. Óttast er að hún sé tognuð á læri. Ekki kemur síðan í ljós fyrr en á föstudag hvort fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir getur spilað leikinn mikilvæga. FÓTBOLTI Fimm leikir fóru fram í umspili Meistaradeildarinnar í gær en stærsti leikur kvöldsins var viðureign Werder Bremen og Sampdoria. Bremen lék án Mesut Özil en það truflaði liðið nákvæmlega ekki neitt því það lék mjög vel og vann öruggan sigur, 3-1. Mark Pazzini undir lok leiksins gefur Sampdoria þó von fyrir síðari leikinn í rimmu liðanna. - hbg Umspil Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu: Bremen í miklu stuði KALDUR Antonio Cassano sýndi lítið í gær með Sampdoria. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.