Fréttablaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 20. ágúst 2010 27
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
S. Halla Hansdóttir
Engihjalla 11, Kópavogi,
lést að kvöldi 14. ágúst á líknardeild L.S.H.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
24. ágúst kl 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á líknarsjóð Landakots deild L-5.
Jónína Guðmundsdóttir Brynjólfur Erlingsson
Þröstur Guðmundsson Unnur Heimisdóttir
Ástþór Guðmundsson Valgerður Jónsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn
Oddur Benediktsson
prófessor, Lambhaga 12, Álftanesi,
lést á Líknardeild Landspítalans þriðjudaginn
17. ágúst. Útför verður auglýst síðar.
Hólmfríður R. Árnadóttir
og fjölskylda.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður, stjúpföður,
tengdaföður og afa,
Ólafs Berg
Bergsteinssonar
Grandavegi 47 Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hjúkrunar-
heimilinu Grund fyrir frábæra umönnun og vináttu.
Steinunn Stefánsdóttir
Sigurbergur M. Ólafsson Ragnhildur Bergþórsdóttir
Sigríður V. Ólafsdóttir Hafþór Halldórsson
Kristján G. Ólafsson
Stefán Oddsson
barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Helgason,
múrarameistari, Seljalandsvegi 40,
Ísafirði,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði, laugar-
daginn 14. ágúst s.l., verður jarðsunginn frá
Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 21. ágúst kl. 14.00.
Steinunn Margrét Jóhannsdóttir
Jóhann Einars Guðmundsson Júlíana Bjarndís
Ólafsdóttir
Kristjana Guðmundsdóttir
Hulda Guðmundsdóttir Herbert Sveinbjörnsson
Bára Guðmundsdóttir Kristinn Þór Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ólafur Andrésson
Þórólfsgötu 5, Borgarnesi,
er látinn.
Þórey Sveinsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir Árni B. Sveinsson
Fanney Ólafsdóttir Stefán Haraldsson
Stefanía Ólafsdóttir Bragi J. Ingibergsson
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær föðursystir okkar
Jóna Steinbergsdóttir
Hríseyjargötu 9, Akureyri
lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins 17. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13.30.
Steinberg Ríkarðsson
Hildur Ríkarðsdóttir
Heimir Ríkarðsson
Reynir Ríkarðsson
Ástkær eiginmaður minn
Kjeld Nørgaard
Gyvelvej 8, Nørresundby, Danmörku
lést 15. ágúst. Útförin fer fram frá Nørresundbykirkju
föstudaginn 20. ágúst kl. 13.
Freyja Kristjánsdóttir Nørgaard.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Stefánsson
Hvassaleiti 25,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
18. ágúst.
Steinunn D. Sveinsdóttir
Laufey Jónsdóttir Birgir Árnason
Ingileif Jónsdóttir Rudiger Seidenfaden
Sveinn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegs eiginmanns,
föður okkar, afa og langafa,
Benedikts Gröndal
Hjallalandi 26 Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2B á
Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun.
Heidi Jaeger Gröndal
Jón Gröndal Dóróthea Emilsdóttir
Einar Gröndal Guðrún Guðmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Íslandsmeistarmótinu í hrútadóm-
um lauk fyrir skemmstu og stendur
Elvar Stefánsson frá Bolungarvík uppi
sem sigurvegari í flokki vanra hrúta-
þuklara. Hann hefur margoft keppt í
þuklinu og náði meðal annars öðru sæti
árið 2005. Hann hlaut verðlaunagrip-
inn Horft til himins, sem er tileinkað-
ur minningu Brynjólfs Sæmundssonar
ráðunautar á Hólmavík, til varðveislu í
eitt ár auk fjölda annarra verðlauna.
Keppendur í flokki vanra þuklara
voru 28 en í flokki óvanra 43, í allt 71
þátttakandi sem er nýtt met.
Hrútarnir sem voru dæmdir voru
þeir Spaði, Grafar, Hvellur og Fleyg-
ur. Þeir eru allir í eigu Jóns Stefánsson-
ar á Broddanesi nema sá síðastnefndi
sem er í eigu Matthíasar Lýðssonar í
Húsavík. Framkvæmdin var með þeim
hætti að sérvalin nefnd ráðunauta og
hrútaþuklara tók til skoðunar og rað-
aði hrútunum í gæðaröð. Yfir röðinni
hvíldi leynd og var takmark keppenda
að komast sem næst röðinni í gæðamati
sínu. Þeir sem kepptu í flokki vanra
þuklara þurftu að gefa hrútunum stig
og raða þeim í gæðaröð en hinum óvönu
dugði að raða.
Í öðru sæti í flokki vanra þuklara
lenti Björn Torfason sem varð íslands-
meistari árin 2003 og 2008 og í þriðja
sæti var Eiríkur Helgason sem hreppti
titilinn árið 2004. Í flokki óvanra
þuklara fór Brynja Bjarnfjörð Magn-
úsdóttir með sigur af hólmi með aðstoð
hinnar þriggja ára gömlu Emmu Ýr
Kristjönudóttur frá Hólmavík. Meðal
verðlauna voru 5, 10 og 15 skammtar
af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð
Vesturlands. -ve
Metþátttaka á Íslandsmóti í þukli
HRÚTAÞUKLARI ÁRSINS Elvar með verðlaunagripinn. Honum á hægri hönd stendur Björn Torfa-
son sem lenti í öðru sæti og til vinstri er Eiríkur Helgason sem var í því þriðja.
Tíu ár eru frá því að nýtt
aðalsafn Borgarbókasafns
Reykjavíkur opnaði í Gróf-
arhúsi. Gestir safnsins á
menningarnótt eru í tilefni
af því hvattir til að setjast
niður á safninu og skrifa
kveðjur, semja vísur, teikna
myndir eða koma með til-
lögur. Safnið skaffar efni og
kveðjurnar verða til sýnis
jafnóðum og þær verða til.
Ýmislegt fleira verð-
ur á dagskrá í aðalsafninu
á menningarnótt. Þar sem
yfirskrift menningarnæt-
ur að þessu sinni er „stræt-
in óma“ verður lögð áhersla
á ljóðlistina og koma ljóð til
með að óma í hverju horni
safnsins. Á meðal þess sem
verður í boði er ljóð á labbi
og greitt til hliðar, krakka-
vísur og könguló á háum
hælum.
Nánari upplýsingar á
www.borgarbokasafn.is.
- mmf
Aðalsafnið fagnar tíu ára afmæli
TÍU ÁRA Aðalsafnið í Grófarhúsi
heldur upp á afmæli sitt á menn-
ingarnótt.