Fréttablaðið - 23.08.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI23. ágúst 2010 — 196. tölublað — 10. árgangur
MÁNUDAGUR
skoðun 16
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FUGLAHÚS í líki gamaldags hjólhýsis frá sjötta áratugnum má finna á netversluninni www.etsy.com. Greinilega ætlað fuglum með auga fyrir hinu fagra í tilverunni.
„Ég keypti mér íbúð fyrir fjór-um árum og átti ósköp lítið innbú
– eiginlega ekki neitt – en ættingj-ar mínir gáfu mér eitt og annað.
Ég fékk borðstofuborð sem lang-afi minn smíðaði og mundi örugg-lega kosta tugi þúsunda í dag og
tvo gamla stóla sem langamma mín
hafði átt. Frænka mín gaf mér sætt
borð og pínulítinn sófa. Það einasem ég keypti é
„Ég átti engar hillur í þrjú ár
nema eina í eldhúsinu og geymdi
allt í pappakössum sem ég flutti
með að heiman. Var reyndar búin
að búa mér til hilluborð úr pappa-kössunum. Staflaði þeim út í horn,
breiddi yfir þá dúk og tók eitthvað
upp úr efsta kassanum og raðaðiá dúkinn svo þetta li i
upp og hugsaði: Æ, ég laga þetta
einhvern tímann seinna en síðan er liðið ár.“
Þó að Jóhönnu finnist hillurnar
vera nauðsynlegar á heimilinu þá
varð af þeim smá fórnarkostnað-ur. „Fyrir þessar hillur fó fnagli í
Átti eiginlega ekki neitt
Jóhanna Sveinsdóttir fjölmiðlakona telur hillur nauðsynlegar á hverju heimili. Að því hefur hún komist
eftir að hafa haft ýmsar eigur sínar í kössum í þrjú ár. Hillurnar kostuðu þó fyrsta nagla í vegg.
„Mér lá svo á að tæma kassana að ég fleygði dótinu einhvern veginn upp og hugsaði: Æ, ég laga þetta einhvern tímann seinna
en síðan er liðið ár,“ segir Jóhanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan www.weber.is
Tilboð á Weber Summit S650
Takmarkað magn-
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n rituní s ím a 5670300
ý
si
n
g
a
sí
m
i
FASTEIGNIR.IS
Mikið ferskvatn í jörðinni. Fasteignasalan TORG býður í einkasölu sjávarjörðina Nes í Selvogi, 2.440ha í Ölfushreppi. Um er að ræða 66,67% (2/3) eignarhlut í jörðinni Nes, landnúmer 171779. Enginn húsako-stur fylgir jörðinni en jörðin er afgirt. Stutt er til sjávar. Jörðin er stærri en kortið hér að ofan sýnir, hægt er að fá loftmynd með hnitum hjá sölufulltrúa í síma 8-67-37-07.
Hér er um framtíðar fjárfestingu að ræða. Landið nær frá Geitafelli niður að sjó, rétt austanmegin við Strandakirkju. Um 24,0ha + 12,0ha eru skráðir sem ræktað land hjá FMR. Fyrirhugaður Suðurstrandar-vegur sem mun liggja í gegnum jörðina, mun væntanlega auka verðgildi lands á svæðinu. Forkaupsréttur er að sjávarjörðinni Nessandi sem er að stærð 2.100ha og liggur samsíða Nesi, austanmegin og jörðin Nes má þar nýta allan reka.
Jörðin er einungis í um 50km akstursfjarlægð frá Reykjavík um Þrengslin eða um 35-40 mínútna aksturs-tímalengd frá Ártúnsbrekkunni. Eignin er seld skuld- og veðbandalaus. Ásett verð er kr. 175.000.000. Öll tilboð verða skoðuð gaumgæfilega. Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörn Friðriksson, sölufulltrúi hjá Fasteignasölunni TORG, Garðatorgi 5, 210-Garðabær í síma 8-67-37-07 eða bjossi@fasttorg.is
JÖRÐ - VATNSÚTFLUTNINGUR MÖGULEGUR
175 m.
FJÁRFESTING TIL FRAMTÍÐAR
Áb. Bergsteinn Gunnarsson
lögg. fasteignasali
23. ÁGÚST 2010
34. TBL.
Fasteignasalan Stakfell auglýsir til sölu stóreign að Skólastræti 1.
Húsið er 264,4 fermetrar á þremur hæðum, mikið end-urnýjað og vel staðsett í hjarta borgarinnar. Í húsinu eru 5 íbúðir sem eru leigðar út sem hótelíbúðir en auk þess er í kjallara vinnustofa, þvottahús og geymslur. Framhúsið var byggt árið 1916 og endurnýjað árið 2003. Auk þess fylgir 197,5 fermetra bakhús sem var byggt árið 1990.
Á
ar eru inn af eldhúsi. Á annarri hæð eru einnig tvær stúdíóíbúðir, báðar með sérinngangi af svölum. Park-etlagt gólf er á þeim báðum og góð baðherbergi. Íbúð-irnar eru með eikarinnréttingum og stáltækjum. Á efstu hæðinni er þriggja h rbergja íbúð. Hún skipt-ist í eldhús með eikarinnréttingu og stáltækjum, tvö parketlögð herbergi og parketlagða stofu. Baðher-bergið er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu sal-erni, viðarbaðkari og glugga. Rúmgóður stigapallur sem nýtist li
Stóreign í miðbænum
Í húsinu eru fimm íbúðir sem eru
leigðar út sem hótelíbúðir.
Hringdu í síma
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
veðrið í dag
Íslenska platan 100 ára
Hljómplötuklúbburinn
Íslensk tónlist efnir til
veglegrar dagskrár.
tímamót 22
SKYLDUEIGN
FYRIR
SKÓLAFÓLK
www.forlagid.is
NÝ
ÚTGÁFANÚ Á KYNNINGAR-VERÐI
NÝ
BRAGÐ
TEGUN
D
SKÓGA
RBERJA
NÝR JÓGÚRTDRYKKUR
létt&laggott
er komið í
nýjan búning
SKYLDUEIGN
FYRIR
SKÓLAFÓLK
94.000 UPPFLETTIORÐ
Alvöru bókabúð á netinu
www.forlagid.is
NÝ
ÚTGÁFANÚ Á KYNNINGAR-VERÐI
Hönnuður heiðraður
Stefán Einarsson hittir
Soffíu Spánardrottningu og
Antonio Banderas í Madríd.
fólk 38
FÓLK „Þetta gekk rosalega vel.
Ég á í viðræðum við verslanir
í Tókýó, París, London, Kaup-
mannahöfn,
Kanada og
nokkrar vef-
verslanir að
auki þannig að
móttökurnar
hafa bara verið
mjög góðar,“
segir fatahönn-
uðurinn Sonja
Bent sem er
nýkomin heim
frá Danmörku eftir að hafa tekið
þátt í tískuvikunni í Kaupmanna-
höfn.
Sonja fékk í kjölfar þáttöku sinn-
ar í tískuvikunni boð á tískuvikuna
í Berlín og Pret a porter í París auk
þess sem fjölmiðlar sýndu hönnun
hennar mikinn áhuga. „Ég er búin
að staðfesta þátttöku mína í tísku-
vikunni í París en er enn að velta
fyrir mér boðinu til Berlínar.“
-sm / sjá síðu 38
Hönnuður í útrás:
Góðar viðtökur
á tískuvikunni
HAUSTLEGT VIÐ GRÓTTU Vissara er að hafa hraðann á að koma sér í land þegar tekur að falla
að við Gróttuvita á Seltjarnarnesi. Stöku sinnum kemur fyrir að fólk verður þar innlyksa og gæti orðið kalt að bíða
eftir fjöru á ný, nú þegar tekið hefur að kólna í veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MINNKANDI ÚRKOMA norðan-
og austanlands en suðvestanlands
léttir heldur til þegar líður á daginn.
Það dregur úr vindi vestanlands
síðdegis. Hiti verður á bilinu 8 til
16 stig.
VEÐUR 4
12 13
8 9
11
SONJA BENT
Topplið ÍBV tapaði
Grindavík vann ÍBV og FH
vann Fylki í gær. Þjálfari
Fylkis íhugar afsögn.
sport 34
ORKUMÁL Bæjaryfirvöld í Grinda-
vík og Hafnarfirði hafa ekki lokið
breytingum á aðal- og deiliskipu-
lagi á Reykjanesi og í Krýsuvík.
Það tefur fyrir fyrirhuguðum til-
raunaborunum og raforkufram-
leiðslu HS Orku. Hægst hefur
á framkvæmdum við byggingu
álversins í Helguvík af þessum
sökum.
Þrjú ár eru síðan HS Orka fór
fram á breytingu á aðal- og deili-
skipulagi á svæðinu. Samning-
ar standa nú yfir á milli HS Orku
og Norðuráls um sölu á raforku
til álversins í Helguvík. Viðræð-
ur hafa staðið yfir í ár en gengið
rólega upp á síðkastið. „Ég vil ekki
gefa þessu nafn eða kalla þetta
uppnám. Það er verið að reyna að
lenda þessu. En málið verður sleg-
ið út af borðinu ef engin leyfi fást,“
segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS
Orku.
Eftir því sem næst verður komist
hefur kostnaður HS Orku hækkað
mikið upp á síðkastið og hefur það
áhrif á arðsemiskröfu fyrirtækis-
ins. Það hefur leitt til þess að nú
er samið um hærra raforkuverð til
álversins en áður hafði verið rætt
um. „Í samningum á sínum tíma
var rætt um lágmarksarðsemi. En
allur kostnaður hækkaði við hrun-
ið,“ segir Júlíus.
Forstjóri HS Orku segir tafir á
aðal- og deiliskipulagi á fyrirhug-
uðu virkjanasvæði hafa keðjuverk-
andi áhrif. Erfitt sé að ljúka samn-
ingum þegar orka sé ekki til staðar
fyrir álverið. Því til viðbótar hafi
Orkustofnun enn ekki veitt leyfi til
tilraunaborana og stækkun á virkj-
un HS Orku á Reykjanesi. Vonast
er til að leyfi til stækkunar skili
sér í næsta mánuði. Ekki liggur
fyrir hvenær aðal- og deiliskipu-
lag á fyrirhuguðu virkjanasvæði
liggur fyrir en vonast er til að til-
raunaboranir hefjist á næsta ári.
Tafirnar hafa valdið því að fjár-
mögnun HS Orku er ekki tryggð.
„Þegar rætt er við fjárfesta án
leyfa er lítið hægt að gera,“ segir
Júlíus.
Þegar útlit var fyrir að tafir
yrðu á afhendingu raforku til
álversins í Helguvík fyrr á árinu
hægðist á framkvæmdum þar og
hafa þær verið með rólegasta móti
í sumar.
Ekki náðist í Ragnar Guðmunds-
son, forstjóra Norðuráls, við
vinnslu fréttarinnar í gær. - jab
HS Orka vill hærra verð
Tafir á nýju aðal- og deiliskipulagi á fyrirhuguðum virkjanasvæðum HS Orku á Reykjanesi valda því að
tilraunaboranir frestast og raforkusala dregst. Samningur HS Orku og Norðuráls gæti verið í uppnámi.
Samið er um hærra verð. „Allur kostnaður hækkaði við hrunið,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku.
STJÓRNMÁL Vísbendingar eru um að
farið sé að sjá til sólar í íslensku
efnahagslífi og á bölmóður að
víkja fyrir bjartsýni. Þetta segir
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra í þriðju grein sinni af sex
um stöðu mála eftir bankahrunið.
Steingrímur bendir á ýmis
merki þess að efnahagslífið sé að
taka við sér. Samdráttur í lands-
framleiðslu hafi reynst minni en
svörtustu spár hafi gert ráð fyrir,
atvinnuleysi hér sé minna en að
meðaltali innan þeirra ríkja sem
aðild eiga að Efnahags- og fram-
farastofnuninni (OECD) og Evr-
ópusambandinu.
Steingrímur tekur sem dæmi
að algjör viðsnúningur hafi orðið
á vöru- og þjónustujöfnuði frá
útrásartímanum fyrir hrun. Í stað
mörg hundruð milljarða uppsafn-
aðs halla áður hafi afgangurinn
numið um tvö hundruð milljörðum
króna um mitt ár. Það ásamt öðru
hafi stuðlað að verulegri styrkingu
og stöðugra gengi krónunnar.
„Engir, ekki einu sinni svart-
sýnustu heimsendaspámenn, geta
borið á móti því að mikill árangur
hefur náðst og að við erum á réttri
leið,“ skrifar Steingrímur.
- jab / sjá síðu 18
Fjármálaráðherra segir góðan árangur hafa náðst í viðsnúningi efnahagslífsins:
Bölmóður víki fyrir bjartsýni