Fréttablaðið - 24.08.2010, Qupperneq 2
2 24. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
„Björn, af hverju er svona
langt á milli hlaupára hjá
ykkur?“
„Þetta er sjaldgæft, það er rétt. Ég
veit eiginlega ekki hvað hljóp í mig.“
Björn Margeirsson sigraði í Reykjavík-
urmaraþoninu um helgina. Síðast vann
Íslendingur árið 1984.
SPURNING DAGSINS
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við
LÖGREGLUMÁL Lögregla beinir nú
sjónum sínum meðal annars til
Litháens í rannsókninni á morðinu
á Hannesi Þór Helgasyni, sem var
myrtur á heimili sínu við Háaberg
í Hafnarfirði fyrir rúmri viku.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er meðal annars litið til
máls sem upp kom í byrjun ágúst
þegar íslenskur karlmaður var
handtekinn í Vilníus, höfuðborg
Litháen, vegna eins kílós af fíkni-
efnum, kókaíni og hassi, sem fund-
ust við húsleit.
Yfirvöld í Litháen tilkynntu
alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
um handtökuna 12. ágúst síðast-
liðinn. Af því tilefni var haft eftir
Smára Sigurðssyni, yfirmanni
alþjóðadeildar, að maðurinn hefði
áður komið við sögu lögreglunnar
á Íslandi.
Þessi umræddi maður vann á
KFC-kjúklingastað sem Hannes
Þór og fjölskylda hans hafa rekið
í Vilníus samkvæmt upplýsing-
um Fréttablaðsins og munu þeir
Hannes hafa þekkst. Maðurinn
mun þó hafa verið hættur störf-
um þar nokkru áður en hann var
tekinn með fíkniefnin.
Nýliðna helgi notaði lögregla til
að fara yfir gögn sem aflað hefur
verið, bæði með tæknirannsókn-
um á vettvangi og annars staðar
frá.
„Það eru skýrslutökur í gangi
og verða næstu daga,“ segir Frið-
rik Smári Björgvinsson yfirlög-
regluþjónn. „Við færumst alltaf
nær með hverri mínútunni sem
líður. Við erum stöðugt að vinna
okkur áfram í þessu og því meiri
upplýsingar sem við fáum þeim
mun nær hljótum við að færast
markmiðinu. Rannsóknin beinist
í ýmsar áttir en ég tjái mig ekki
frekar um það.“
Friðrik Smári segir talsvert
hafa borist af upplýsingum og
ábendingum frá almenningi, sem
verið sé að vinna úr samhliða
fleiri þáttum málsins. Hann segir
á fjórða tug manna hafa mætt hjá
lögreglu. Enginn sé í haldi grunað-
ur um verknaðinn, enn sem komið
er. jss@frettabladid.is
LÖGREGLAN VIÐ VETTVANG GLÆPSINS Enginn er í haldi vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni. Lögreglan segir rannsóknina
beinast í ýmsar áttir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Vann hjá KFC og var
tekinn með fíkniefni
Umfangsmikil rannsókn lögreglu á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni beinist
meðal annars að máli sem kom upp í Litháen fyrr í mánuðinum. Þá var Íslend-
ingur tekinn með kíló af fíkniefnum. Hann hafði unnið á KFC-kjúklingastað.
HOLLAND, AP Óveður í Amsterdam í gær varð
sögufrægu kastaníutré að falli. Tréð var 150
ára gamalt, illa farið og tekið að fúna. Það er
frægt fyrir að unglingsstúlkan Anna Frank
skrifaði um það í dagbækur sínar á stríðsár-
unum meðan hún var í felum fyrir þýskum
nasistum ásamt fjölskyldu sinni.
Tréð féll yfir nokkra garða, skemmdi múr-
steinsvegg og nokkra kofa, en enginn slasað-
ist og engin hús skemmdust, að sögn konu sem
hefur umsjón með safninu, sem er í húsi Önnu
Frank, þar sem nú er til húsa safn um sögu
hennar.
Fyrir þremur árum sögðu borgaryfirvöld
tréð vera orðið hættulegt og því skyldi fella
það. Alþjóðleg herferð hófst þá til verndar
trénu og samkvæmt dómsúrskurði var ákveð-
ið að tréð fengi að standa.
Fyrir tveimur árum var sett stálgrind utan
um tréð til að forða því frá falli, en sú grind
brotnaði í hvassviðrinu í gær með fyrrgreind-
um afleiðingum.
- gb
Gamalt kastaníutré fyrir utan hús Önnu Frank í Amsterdam féll í hvassviðri:
Tréð féll yfir nokkra garða
SÖGUFRÆGT TRÉ BROTNAÐI Kastaníutréð stóð fyrir utan glugga sem
Anna Frank horfði út um áður en hún var flutt í útrýmingarbúðir.
NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUMÁL Reynsla Norðmanna
af tveimur atkvæðagreiðslum um
aðild að því sem í dag heitir Evr-
ópusambandið sýnir að það eru ekki
endilega efnahagsleg rök eða varð-
staða um auðlindir sem ráða mestu
um útkomuna, heldur eðli þeirrar
orðræðu sem andstæðar fylking-
ar hafa uppi. Þetta segir Iver. B.
Neumann, prófessor við Óslóar-
háskóla, en hann hélt fyrirlestur
um Noreg og Evrópusambandið í
gær á vegum Alþjóðmálastofnun-
ar Háskóla Íslands.
Sá sem nái að stilla upp málstað
sínum þannig að hann tali fyrir
hönd þess sem mætti kalla „fólkið
í landinu“ fari með sigur af hólmi.
Andstæðingum aðildar hafi í
Noregi tekist að virðast rödd skyn-
semi og gamalla þjóðhollra hefða.
Í tilfelli Noregs hafi aðildarsinnar
verið í vörn gagnvart þessari rödd
og þeir hafi því hlotið að tapa fyrir
liðinu sem sífellt sótti fram.
„Hluti af þessu er sjálft tungu-
málið, orðræða stjórnmálanna. Nei-
liðið segir að við missum stjórn til
skriffinna í Brussel og já-liðið svar-
ar með því að fallast á þetta en fer
svo að útlista einhverja kosti aðild-
ar,“ segir Neumann.
Við Evrópusinna hafi loðað
stimpill hinnar óþjóðhollu elítu,
andspænis alvöru Norðmönnum.
Norðmenn vilji trúa sögunni um hið
illa erlenda yfirvald, að Norðmenn
hafi staðið upp í hárinu á útlending-
um og barið í gegn sjálfstæði þjóð-
arinnar. Slík rök passi vel við opin-
bera sjálfsmynd þjóðarinnar.
Neumann, sem telur sjálfur að
Noregur eigi að ganga í ESB, var
í gær spurður hvernig aðildarsinn-
ar ættu að bregðast við þessu og
sagðist því miður ekki hafa svar
við því. „Til þess eru stjórnmála-
menn,“ sagði hann. - kóþ
Prófessor segir Norðmenn hafa hafnað aðild að ESB því hún hafi verið útmáluð gagnstæð norskum gildum:
Sá sem talar fyrir fólkið mun sigra
NEUMANN Í HÁSKÓLANUM Prófessorinn
rifjaði upp kafla úr sögu átaka um ESB-
aðild í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÍNA,AP Fjórir eru látnir og um
250 þúsund manns eru á flótta
frá hafnarborginni Dandong í
norðanverðu Kína vegna mikilla
flóða undanfarna daga. Látlaus-
ar rigningar á svæðinu hafa gert
það að verkum að áin Yalu, sem er
á landamærum Norður-Kóreu og
Kína, hefur flætt yfir bakka sína
og er svo komið að stór hluti sam-
göngumannvirkja er undir vatni.
Fólkið hefur mest allt flúið yfir
landamærin til Norður-Kóreu
en þar hefur rigningin líka tekið
sinn toll.
Flóðin í landinu eru þau
verstu í áratug. - ve
Flóð í Norður-Kóreu og Kína:
Hundruð þús-
unda á flótta
MANNÚÐARMÁL Áheit sem safnað
var í tengslum við Reykjavíkur-
maraþonið sem fram fór um helg-
ina nálgast samtals 30 milljónum
króna, samkvæmt upplýsingum
sem fram koma á vef Reykjavík-
urmaraþonsins. Það voru 98 góð-
gerðafélög sem tóku þátt í áheita-
söfnun.
Ekki er gefið upp að svo stöddu
hverjir söfnuðu hæstu áheitun-
um. Enn gæti bæst í því að söfnun
áheita lauk ekki fyrr en á mið-
nætti.
Reykjavíkurmaraþon:
30 milljónir
söfnuðust í
maraþoninu
FERÐAÞJÓNUSTA Níu íslensk fyrir-
tæki er starfa í ferðatengdri þjón-
ustu við fuglaskoðara tóku þátt í
sýningunni Birdfair sem fram fór
í Rutland á Englandi um helgina.
Birdfair er stærsta fuglaskoðun-
arsýning Evrópu.
„Sýningin er fjölsótt og afar
mikilvægt fyrir okkur Íslendinga
að taka þátt í henni,“ segir Björn
H. Reynisson hjá Íslandsstofu sem
hafði veg og vanda af undirbúningi
í samvinnu við Samtök um fugla-
tengda ferðaþjónustu.
Íslandsstofa hefur unnið að upp-
byggingu á ferðatengdri þjónustu
við fuglaskoðara síðustu misserin.
Á sýningunni er að finna allt það
nýjasta sem tengist fuglaskoðun og
fuglarannsóknum. - shá
Átak í ferðaþjónustu:
Vilja fá fleiri til
að skoða fugla
FRÁ VIÐEY Mikil verðmæti liggja í
fuglalífinu hér á landi. Sótt er á markaði
erlendra fuglaskoðara. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
UMHVERFI Mikinn reyk lagði frá
járnblendiverksmiðju Elkem á
Grundartanga í gærkvöld.
Að sögn starfsmanns þurfti að
losa reyk úr ofni þrjú. Ástæð-
an var sú að sía hafi ofhitnað og
bráðnað út í vélbúnað.
Ekki er óalgengt að losa þurfi
reyk úr ofnum verksmiðjunn-
ar, en reykmagnið var að þessu
sinni töluvert meira en venju-
lega. Tilkynna þarf um reyklos-
un ef hún stendur í meira en tvo
tíma, og var það gert í gær.
Viðgerð á búnaðinum hófst
þegar, en ekki þótti öruggt að
henni yrði lokið fyrr en í dag.
- gb
Reyklosun á Grundartanga:
Mikill reykur
yfir Hvalfirði
Taka 100 milljóna lán
Ísafjarðarbær hyggst taka 100 millj-
óna króna lán hjá Lánasjóði sveitar-
félaga til að fjármagna framkvæmda-
áætlun bæjarins á þessu ári.
ÍSAFJÖRÐUR