Fréttablaðið - 24.08.2010, Page 6
6 24. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift
*Árleg nafnávöxtun frá 15.01.2001 til 31.07.2010. Ávöxtun í fortíð er ekki
ávísun á ávöxtun í framtíð.
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003
um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV
hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér
útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
@Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í
síma 460 4700 eða
kynntu þér málið
á www.iv.is
Sóttir þú atburði á menning-
arnótt?
Já 27,5%
Nei 72,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er rétt að segja sig nú úr þjóð-
kirkjunni?
Segðu skoðun þína á vísir.is
ÞJÓÐKIRKJAN Úrsögnum úr þjóðkirkjunni hefur fjölg-
að undanfarna daga í kjölfar
umræðu um kirkjuna og kynferð-
isbrotamál. „Við verðum vör við
stíganda hjá fyrirspurnum fólks
um það hvernig það eigi að bera
sig að því að segja sig úr þjóð-
kirkjunni,“ segir Haukur Ingi-
bergsson, forstjóri Þjóðskrár.
„Tilfinningin er sú að úrsögnum
fari fjölgandi þessa dagana. Þetta
er það sem við verðum vör við.“
Tölur frá Þjóðskrá munu liggja
fyrir í upphafi næsta mánaðar.
Viðmælandi Fréttablaðsins á Hagstofu Íslands
lýsti þeim straumi fólks sem hefur hug á að skrá sig
úr Þjóðkirkjunni sem „skrúðgöngu“, fjöldinn væri
slíkur. Var fólkinu þó jafnskjótt beint til Þjóðskrár
til að ljúka verkinu, en Hagstofan sér ekki lengur
um skráningar í og úr þjóðkirkjunni. - sv
Aukinn áhugi fólks á að skrá sig úr þjóðkirkjunni eftir atburði síðustu daga:
Fjöldinn eins og skrúðganga
Íslenska þjóðkirkjan: Fjöldi milli ára
Mánuður og ár Fjöldi skráðra Mismunur frá síðasta ári
Júlí 2005 250.759 1.733 +
Júlí 2006 251.909 1.150 +
Júlí 2007 252.411 502 +
Júlí 2008 252.708 297 +
Júlí 2009 252.069 639 -
Júlí 2010 251.487 582 -
ÞJÓÐKIRKJAN Karl Sigurbjörns-
son biskup segir kirkjuna hafa
brugðist í málefnum kvennanna
þriggja sem leituðu hjálpar vegna
kynferðislegrar áreitni af hendi
Ólafs Skúlasonar biskups. Hann
vísar því á bug að hafa reynt að
þvinga konurnar til að falla frá
ásökununum. Biskup segir málið
snúið og auðvelt sé að vera vitur
eftir á. Hann segir þjóðkirkjuna
hafa brugðist og greinilegt sé að
ekki hafi verið komið konunum til
hjálpar.
Biskup segist hafa gert sitt besta
á sínum tíma til að hafa milli-
göngu milli kvennanna og bisk-
ups. Aðspurður hvers vegna málin
hafi ekki verið tilkynnt til lögreglu
segir hann að frekar ætti að beina
spurningunni til kvennanna. Hann
segir ásakanirnar á hendur Ólafi
hafa komið sér verulega á óvart.
„Ég var bara lítill sóknarprestur,“
segir hann. „Auðvitað vill maður
ekki trúa svona. Það eru fyrstu
viðbrögð allra manna að hrökkva í
vörn. Vafalaust hefur kirkjan gert
það í þessu máli.“
Biskup segir greinilegt að
fjöldi fólks upplifi að kirkjan sé
að bregðast hlutverki sínu gagn-
vart almenningi. Varðandi skriðu
úrsagna úr þjóðkirkjunni á síðustu
dögum segir hann það vissulega
segja sína sögu og sé vísbending
um alvarlega stöðu kirkjunnar.
Varðandi ummæli Geirs Waage,
sóknarprests í Reykholti, um að
þagnarskylda presta gangi fram-
ar tilkynningaskyldu þeirra sam-
kvæmt barnaverndarlögum, segir
Karl mikilvægt að ítreka það að í
hans huga sé það alveg á kristal -
tæru að prestar lúti lögum lands-
ins og beri sérstakar skyldur til
þess. Barnaverndarlögin séu æðri
en lög og siðareglur einstakra
embættisstétta. Geir þurfi að gera
grein fyrir máli sínu og ummæli
hans hafi verið afar óheppileg
fyrir kirkjuna.
Biskup sendi frá sér yfirlýsingu
til fjölmiðla á sunnudag þar sem
hann meðal annars sagði Sigrúnu
Pálínu Ingvarsdóttur hafa kært
Ólaf Skúlason til saksóknara á
sínum tíma sem ekki hefði talið
efni til að birta ákæru í málinu.
Raunin er sú að Ólafur kærði kon-
urnar þrjár til saksóknara, sem
aftur mæltist til þess við hann að
fella málið niður. Karl birti leið-
réttingu daginn eftir og baðst
afsökunar á rangfærslunum.
„Þetta voru pennaglöp og fljót-
færni. Vissulega stór mistök sem
ég gerði og ég harma þau,“ segir
Karl Sigurbjörnsson biskup.
sunna@frettabladid.is
Þjóðkirkjan hrökk í vörn
Biskup Íslands segir kirkjuna hafa brugðist í málum kvennanna þriggja sem sökuðu Ólaf Skúlason biskup
um áreitni. Hann vísar því á bug að hafa reynt að þvinga konurnar til að draga ásakanir sínar til baka.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest úrskurð Héraðsdóms Suð-
urlands þess efnis að rúmlega
tvítugur karlmaður skuli sæta
áframhaldandi gæsluvarðhaldi
þar til dómur gengur í Hæsta-
rétti í máli hans, þó ekki lengur
en til 13. október.
Maðurinn hafði áður verið
dæmdur í héraðsdómi í þriggja
ára fangelsi fyrir ýmis brot, þar
á meðal líkamsárás þar sem hann
barði annan mann ítrekað í höf-
uðið með skiptilykli og stórslas-
aði hann. Með þessum brotum
rauf hann skilorð annars dóms,
þar sem hann hafði verið dæmd-
ur fyrir samtals sjö brot. - jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Barði í höfuð
með skiptilykli
SVEITARSTJÓRNIR Reyna á að fækka
vargfugli við umhleðslustöð
Sorpstöðvar Suðurlands í Árborg.
Fuglagerið sem sækir í sorpið
í stöðinni truflar meðal annars
umferð um flugvöllinn á Selfossi.
Bæjarráð Árborgar samþykkti
á síðasta fundi sínum ósk lögregl-
unnar á Selfossi um undanþágu
á meðferð skotvopna til að fækka
vargfuglinum á gámasvæðinu.
Jafnframt ítrekaði bæjarráðið
áhyggjur af málinu og fól fram-
kvæmda- og veitusviði bæjar-
ins að taka heildstætt á viðveru
vargfugls í sveitarfélaginu. - gar
Fuglager við sorpstöð:
Heimila byssur
gegn vargfugli
ÓVELKOMNIR Flokkar af sorpþyrstum
mávum eru illa séðir í Árborg.
Ein þeirra kvenna sem sökuðu Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni árið
1996 segir í samtali við Fréttablaðið að kirkjan hafi vitað af gjörðum Ólafs
áður en hann komst í embætti. „Ert þú flugfreyjan?“ voru viðbrögð þess sem
svaraði á biskupsstofu þegar konan hringdi inn til að tilkynna kynferðisbrot
Ólafs gegn henni, en þá var hann á leið í embætti biskups. Hún segir presta
innan kirkjunnar hafa þrýst á konurnar allar að draga frásögn sína til baka,
þar á meðal séra Karl Sigurbjörsson og séra Hjálmar Jónsson. Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir, ein kvennanna, sagði jafnframt í fjölmiðlum í gær að Karl og
Hjálmar hefðu reynt að fá hana til að draga ásakanir sínar til baka.
„Mér finnst sorglegast að prestar og biskup geti ekki viðurkennt að þeir hafi
vitað hvaða mann Ólafur hafði að geyma. Þegar þeir fá þessa sögu í hend-
urnar þá er þetta ekkert nýtt fyrir þeim. Við vorum þvingaðar af prestum að
draga ásakanir okkar til baka og það átti að stimpla okkur sem geðveikar
konur.“ segir konan. „Kirkjan brást okkur.“
Hún vildi ekki koma fram undir nafni.
Þvingaðar til að draga málið til baka
Hafa fengið tilkynningar frá prestum
Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu, segir
tilkynningaskyldu þeirra stétta sem gegna trúnaðarhlutverki ótvíræða. Hún seg-
ist ekki trúa því að það sé dæmigert fyrir presta að vilja ekki sinna tilkynninga-
skyldu í starfi sínu, það sé engin undantekning yfir hverja lögin gildi. Steinunn
segir Barnaverndarstofu hafa borist tilkynningar frá prestum á síðustu árum,
sem sýni fram á að stéttin sinni hlutverki sínu.
„Tilkynningaskyldan er mjög skýr í lögunum og eru þær starfsstéttir sem heyra
undir hana mjög meðvitaðar um hana að mínu mati.“
Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, lét þau ummæli falla í Morgunblaðinu í
síðustu viku, að prestum bæri ekki skylda til þess að tilkynna kynferðisbrot gegn
börnum til yfirvalda. Trúnaðarskyldan væri tilkynningarskyldunni yfirsterkari.
HAUKUR INGI-
BERGSSON
KARL SIGURBJÖRNSSON Segir greinilegt að fjöldi fólks upplifi að kirkjan sé að bregð-
ast hlutverki sínu gagnvart almenningi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞJÓÐKIRKJAN Þjóðkirkjan verð-
ur sjálf að leysa úr þeim málum
sem á borði hennar eru núna
segir Ragna Árnadóttur, dóms- og
mannréttindamálaráðherra. Hún
fundaði með Karli Sigurbjörns-
syni biskupi Íslands um málefni
Þjóðkirkjunnar í gær og segir
ljóst að biskup hafi agavald yfir
prestum. „Ég hef skoðað þessi mál
því ég vildi fullvissa mig um það
hverjar skyldur ráðuneytisins eru
í þessu máli. Það er alveg ljóst að
þau verða alfarið leyst innan Þjóð-
kirkjunnar,” segir Ragna.
Ráðherra ræddi við biskup:
Kirkjan verður
að leysa málið
KJÖRKASSINN