Fréttablaðið - 24.08.2010, Qupperneq 12
24. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
CHILE, AP Margir mánuðir munu
líða þar til hægt verður að bjarga
33 námamönnum sem hafa verið
fastir í gull- og koparnámu í Chile
í nítján daga. Björgunarmönnum
tókst loks að bora mjó göng inn í
rými þar sem mennirnir hafast við
á sunnudag.
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust
út í Copiapó-héraði og víðar í Chile
þegar áttunda tilraunin til að bora
í gegnum tæplega 700 metra af
grjóti og inn í öryggisrými í nám-
unni tókst á sunnudag.
Námugöngin féllu saman 5.
ágúst, og talið var að matur og súr-
efni í námunni myndi aðeins end-
ast í tvo sólarhringa. Ekkert hafði
heyrst frá mönnunum 33 frá því
að námugöngin féllu saman. Lítil
von var talin á að þeir fyndust á
lífi þar til á sunnudag.
„Elsku Liliana, ég hef það gott,
þökk sé Guði. Ég vona að við kom-
umst fljótlega út. Vertu þolin-
móð,“ skrifaði Mario Gomez, 63
ára námumaður á miða sem stíl-
aður var á eiginkonu hans og send-
ur var upp úr námunni.
Á miðanum frá Gomez kemur
fram að námumennirnir hafi notað
haka til að grafa eftir vatni og ljós
á farartækjum sem eru í öryggis-
rýminu til að lýsa upp. Ekki var
vitað í gær hvort hætta væri á að
súrefnið þrjóti í námunni. Rýmið
sem mennirnir hafast við í er ekki
stórt, en það er sagt vera á stærð
við litla íbúð.
„Í dag gráta allir Chilebúar úr
spenningi og gleði,“ sagði Sebasti-
an Pinera, forseti Chile, þegar
hann ræddi við fjölskyldur námu-
mannanna í Copipó á sunnudag.
Björgunarmenn benda á að það
geti tekið um það bil fjóra mánuði
að bora nægilega breið göng til að
mennirnir komist út. Vonir standa
til að hægt verði að bjarga þeim
fyrir jól.
Auk þess að koma mat, vatni
og súrefni til mannanna verð-
ur mikil áhersla lögð á að koma
myndavél og hljóðnema til þeirra
svo þeir geti talað við sína nánustu
og björgunarmenn. Hætt er við að
margra mánaða bið eftir björg-
un geti tekið verulega á andlega
heilsu mannanna.
Aðeins tvisvar hafa námumenn
lifað af svo langan tíma neðanjarð-
ar eftir námuslys. Þrír menn lifðu
af í 25 daga eftir námuslys í Kína
á síðasta ári, og tveir kínverskir
námumenn lifðu af í 23 daga árið
1983. brjann@frettabladid.is
Fastir í námu
fram til jóla
Björgunarmenn bora göng til 33 námumanna sem
hafa verið fastir á 700 metra dýpi í 19 daga. Um
fjóra mánuði gæti tekið að ná mönnunum út. Mun
taka verulega á andlega heilsu námumannanna.
FAGNAÐ Sebastian Pinera, forseti Chile, sýndi ættingjum námumannanna skilaboð
sem þeir sendu upp á yfirborðið á sunnudag. FRÉTTABLAÐID/AP
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
hefur bannað alfarið hreindýra-
veiðar á syðsta veiðisvæðinu,
svæði 9, í kjölfar talningar. Veiði-
leyfisgjöld verða endurgreidd, að
því er fram kemur á vef stofnun-
arinnar.
Eins og fjallað var um í Frétta-
blaðinu nýlega hefur hreindýr-
um á svæðinu fækkað verulega.
Í eftirlitsflugi seint í júlí fundust
aðeins 113 dýr, en heimilt var að
veiða 42.
Á vef Umhverfisstofnunar
kemur fram að með því að veiða
meira á svæðinu yrði höggvið
stórt skarð í stofninn á svæðinu,
og því var ákveðið að stöðva veið-
ar þar alfarið. - bj
Veiðar bannaðar á syðsta veiðisvæðinu:
Hreindýrum fækkar
VERULEG FÆKKUN Eftirlitsflug yfir svæði
9 sýndi 113 dýr.
SPÁNN, BBC Tveir spænskir hjálp-
arstarfsmenn eru lausir úr haldi
mannræningja sem námu þá á brott
í Afríkuríkinu Máritaníu fyrir níu
mánuðum.
Jose Luis Rodriguez Zapatero,
forsætisráðherra Spánar, staðfesti í
gær við fréttamenn að Roque Pascu-
al og Albert Vilalta væru nú lausir
úr haldi og heilir á húfi. Fjölskyldur
mannanna eru á leið til fundar við
þá í Malí, nágrannaríki Máritaníu.
Mannræningjarnir, sem taldir
eru tengjast al Kaída, höfðu krafist
fimm milljóna Bandaríkjadala, um
600 milljóna króna, í lausnargjald.
Óljóst er hvort greiðslan var innt af
hendi. - pg
Óljóst hvort lausnargjald var greitt fyrir gíslana:
Spænskir gíslar lausir
úr haldi mannræningja