Fréttablaðið - 24.08.2010, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 24. ágúst 2010 17
Ein af mikilvægustu forsendunum fyrir áformum ORF Líftækni um akur-
yrkju á erfðabreyttu byggi er erfðafræði-
leg einangrun byggyrkisins sem fyrir-
tækið notar til framleiðslu á sérvirkum
próteinum. Í umræðu um afmörkunareig-
inleika erfðabreytts byggs hér á landi er
mikilvægt að halda til haga þeim íslensku
rannsóknum sem gerðar hafa verið á und-
anförnum árum á þeim byggyrkjum sem
fyrirhugað er að nota við akuryrkju hér á
landi.
Einhverjar umfangsmestu rannsókn-
ir sem gerðar hafa verið á víxlfrjóvgun
byggs í heiminum voru gerðar af Land-
búnaðarháskóla Íslands árin 2002-2006
(1,2).
Skýrar niðurstöður
Í rannsóknum Landbúnaðarháskólans
voru byggyrkið sem ORF Líftækni notar
við sína framleiðslu og norska byggyrk-
ið Ven, sem hefur svipaðan þroskafer-
il og blómgast á sama tíma, ræktuð hlið
við hlið í 0-0,65 metra fjarlægð hvort
frá öðru (2). Ári síðar var korni af ökr-
unum sáð og leitað að kynblendingum.
Í 600.000 afkomendaplöntum sem skoð-
aðar voru í Gunnarsholti á Rangárvöll-
um fannst ekkert dæmi um víxlfrjóvgun.
Meðal um 100.000 afkomendaplantna frá
Möðruvöllum fundust aðeins tvö dæmi
um víxlfrjóvgun. Í ályktunum vísinda-
manna Landbúnaðarháskólans út frá þess-
um viðamiklu rannsóknum kemur fram
að ræktun á erfðabreyttu byggi sé algjör-
lega örugg á Íslandi sé viðeigandi áhættu-
stýringu beitt við ræktunina (2). Í skýrslu
Landbúnaðarháskólans um tilraunirnar
í Gunnarsholti (1) segir m.a.: „Afmörk-
un fræs í rúmi er afgerandi. Ofsaveður
hrakti kornið varla meira en 25 m frá reit.
Ennfremur er afmörkun fræs í tíma mikil
en hverfandi lítill hluti þess korns sem féll
á jörðu við þreskingu nær að lifa af vetur-
inn og mynda nýja plöntu. Einföld leið til
að útiloka þetta liðhlaup er að slá yfirgef-
inn akurinn sumarið eftir ræktun.“ Einnig
kemur fram að dreifing á erfðaefni byggs
í villtar íslenskar tegundir sé óhugsandi.
Fá dæmi víxlfrjóvgunar
Í sambærilegri en minni tilraun í Ástral-
íu var víxlfrjóvgun könnuð á milli erfða-
breytts og óerfðabreytts Golden promise
byggyrkis sem ræktað var hlið við hlið
(3). Kannaðar voru 45.000 afkomenda-
plöntur og aðeins fannst eitt dæmi um
víxlfrjóvgun. Tilhneiging byggs til sjálf-
frjóvgunar er svo sterk að til að kanna
dreifingu erfðabreyttra byggfrjókorna
með víxlfrjóvgun þarf að grípa til sér-
stakra aðgerða svo að hún verði mælan-
leg. Í finnskri tilraun (4) var í þessu skyni
notað einkynja kvenkyns bygg (geldplönt-
ur), sem ekki getur frjóvgað sig sjálft eins
og bygg yfirleitt gerir. Þetta bygg er einn-
ig með opin blóm sem eykur líkur á víxl-
frjóvgun. Þrátt fyrir þessa uppsetningu
rannsóknanna voru aðeins staðfest örfá
tilvik víxlfrjóvgunar í 50 metra fjarlægð
frá erfðabreyttu plöntunum og engin í 100
metra fjarlægð. Í tvíkynja plöntum, sem
sáð var í eins metra fjarlægð frá erfða-
breyttu plöntunum til viðmiðunar, fund-
ust fá tilvik víxlfrjóvgunar, þrátt fyrir að
um byggyrki með opin blóm væri að ræða.
Langflest byggyrki, þar á meðal byggyrki
ORF, eru hins vegar hvorki með opin blóm
né einkynja, heldur fer sjálffrjóvgun fram
inni í blóminu áður en það opnast. Þessar
tilraunaaðstæður, þar sem notað var geld-
bygg með opin blóm, eru þess vegna alls
ekki sambærilegar við akuryrkju ORF hér
á landi.
Líffræðilega og vistfræðilega einangrað
kerfi
Tíðni víxlfrjóvgunar byggs á Íslandi
reyndist vera í kring um 0,0003% í rann-
sóknum þar sem reynt var að hámarka
líkur á víxlfrjóvgun milli tveggja bygg-
yrkja með því að rækta þau þétt saman
á akri. Vitað er að tíðni víxlfrjóvgun-
ar fellur mjög hratt með aukinni fjar-
lægð (4). Í niðurstöðum ráðgjafanefndar
danska matvælaráðuneytisins, sem byggt
var á við setningu laga og reglugerða um
ræktun á erfðabreyttum plöntum í Dan-
mörku, er þess vegna mælt með því að
einn metri sé á milli ræktunar á erfða-
breyttu og óerfðabreyttu byggi (5). Á
Íslandi hefur verið miðað við 300 metra
með tilliti til varúðarreglunnar (6). Með
þeim skilyrðum sem ORF fylgir í rækt-
un á erfðabreyttu byggi (6), m.a. hvað
varðar fjarlægð frá annarri byggrækt-
un, er framleiðslukerfi fyrirtækisins líf-
fræðilega og vistfræðilega einangrað
hér á landi. Þar sem próteinin sem fram-
leidd eru í erfðabreyttu byggplöntunum
eru ekki mynduð fyrr en löngu eftir að
frjóvgun hefur átt sér stað og eru ekki líf-
fræðilega virk í plöntum, hafa þau ekki
áhrif á æxlun plantnanna. Því þarf ekki
að kanna æxlun byggyrkisins fyrir hvert
gen fyrir sig. Próteinin sem erfðabreyttu
byggplönturnar framleiða eru hættulaus
enda er þau að finna í kjöti og mjólk, þau
eru aðeins mynduð í fræjum byggsins og
brotna hratt niður við spírun. Engin vís-
indaleg rök hníga að því að kanna þurfi
sérstaklega áhrif mögulegrar neyslu
slíkra próteina á dýr og menn enda eru
þau ekki ætluð til manneldis. Éti dýr þau
eru þau einfaldlega melt í meltingarvegi
eins og önnur prótein.
Fremstu sérfræðingar landsins hafa
komið að rannsóknum, vali og vottun
á byggi sem öruggri plöntutegund sem
hentar sérlega vel til sameindaræktun-
ar við íslenskar aðstæður. ORF Líftækni
hefur byggt sína starfsemi á vísindaleg-
um rannsóknum og vinnubrögðum undan-
farin tíu ár og mun halda því áfram.
Heimildir:
1. Jónatan Hermannsson, Ingvar Björnsson, Þórdís Anna
Kristjánsdóttir og Guðni Þorvaldsson (2005). Ný tækni
við erfðakynbætur, áfangaskýrsla til Tækniþróunarsjóðs,
rannsóknir 2001-2004. Rit LBHÍ nr. 1
2. Jónatan Hermannsson, Þórdís A. Kristjánsdóttir, Tryggvi
S. Stefánsson og Jón Hallsteinn Hallsson. Measuring
gene flow in barley fields under Icelandic sub-arctic
conditions using closed-flowering varieties. Icelandic
Agricultural Sciences, í prentun.
3. Keith T. Gatford, Zainuddin Basri, Jane Ellington, Julia
Lloyd, Javed A. Qureshi, Richard Brettell, Geoffrey B.
Fincher (2006). Gene flow from transgenic wheat and
barley under field conditions. Euphytica 151: 383-391.
4. A. Ritala, A.M. Nuutila, R. Aikasalo, V. Kauppinen, J.
Tammisola (2002). Measuring gene flow in the cultivat-
ion of transgenic barley. Crop Science 42:278-285
5. Supplerende rapport fra Udredningsgruppen vedrør-
ende Sameksistens mellem genetisk modificerede,
konventionelle og økologiske afgrøder. Opdatering af
Udredningen fra 2003. 27. april 2007. http://pdir.fvm.
dk
6. Umhverfisstofnun. Leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu
byggi. Veitt 22. júní 2010
Örugg ræktun á erfðabreyttu byggi
Erfðabreytingar
Björn Örvar og
Einar Mäntylä
stofnendur ORF Líftækni og
sérfræðingar í sameindaerfðafræði
plantna
Í 600.000 afkomendaplöntum sem skoðaðar voru í
Gunnarsholti á Rangárvöllum fannst ekkert dæmi
um víxlfrjóvgun.