Fréttablaðið - 24.08.2010, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 24. ágúst 2010 3
„Það er engin stofnun sem er að
bjóða svona meðferð hér á landi,“
segir Magna Fríður Birnir, hjúkr-
unarforstjóri á Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði. Stofnunin fer
af stað með streituklíník í októb-
er þegar fyrsti tilraunahópurinn
fer í gegnum streitumeðferð sem
þróuð hefur verið á stofnuninni.
Meðferðin er sett upp að erlendri
fyrirmynd og er reynsla Heilsu-
stofnunarinnar nýtt í bland.
Ákveðið var að setja upp streitu-
klíník í Hveragerði vegna þess að
eftir hrun skapaðist markaður
fyrir það. „Við fórum að fá meira
af beiðnum frá fólki sem vildi
koma inn í styttri tíma og hafði
ýmis streitueinkenni. Fólk finnur
fyrir auknum kröfum frá atvinnu-
rekendum, til dæmis að sjúkraf-
rí eru ekki vinsæl. Það kemur
ekki bara frá fólkinu sjálfu að því
finnist það ekki geta verið lengi í
burtu heldur er líka pressa í þjóð-
félaginu,“ segir Magna og bætir
við að meðferðin hafi verið í þróun
og vinnslu innan faghópa frá síð-
asta vetri og í sumar.
Streitumeðferðin tekur tvær
vikur. Markmið hennar er fyrst
og fremst að kenna fólki að takast
á við og þola streitu betur að sögn
Mögnu. „Það eru til ýmiss konar
módel sem kenna fólki að meta sig
sjálft. Hver er staða þín í dag, af
hverju er þessi streita til staðar og
hvaðan kemur hún?“ Eftir að upp-
spretta streitunnar hefur verið
fundin er fólki kennt að forgangs-
raða. „Og síðan að finna einhver
meðul við þessum þáttum.“
Magna nefnir dæmi um streitu-
valda sem fólki er kennt að tak-
ast á við. „Segjum sem svo að fólk
sé í mjög lélegu líkamsástandi og
svo er hræðsla við að missa vinn-
una undirliggjandi. Þá getum við
opnað dyr fyrir fólki að eigin með-
ferð,“ segir Magna en fólk getur
prófað mismunandi líkamsrækt-
arleiðir og stuðningsviðtöl hjá sál-
fræðingum, hjúkrunarfræðingum
og næringarráðgjöfum á Heilsu-
stofnuninni.
„Sálfræðingar eru kannski að
bjóða ýmiss konar streitumeð-
ferð en þeir hafa ekki möguleika
á að bjóða fólki að prófa og reyna
sjálft til dæmis dáleiðslu, tai chi,
jóga, vatnsleikfimi, hollan mat,
gönguferðir, hjólreiðar og nudd.
Við getum boðið upp á þetta allt
saman hér á staðnum,“ upplýsir
Magna. martaf@frettabladid.is
Fyrsta streituklíníkin á
Íslandi opnar í október
Streitueinkenni hafa aukist eftir hrun að sögn Mögnu Fríðar Birnir, hjúkrunarforstjóra á Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði. Því var ákveðið að ráðast í að stofna streituklíník sem hefur göngu sína í október.
Ákveðið var að setja upp streituklínik í Hveragerði vegna þess að eftir hrun skapaðist
markaður fyrir slíka þjónustu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Magna Fríður Birnir segir markmið streitumeðferðarinnar fyrst og fremst að kenna
fólki að takast á við og þola streitu betur. MYND/ÚR EINKASAFNI