Fréttablaðið - 24.08.2010, Qupperneq 42
26 24. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Hljómsveitin Nýdönsk
leyfir aðdáendum sínum
og tónlistarunnendum að
fá nýja upplifun af sveit-
inni í sýningunni Nýdönsk í
nánd sem sett verður á svið
í Borgarleikhúsinu eftir
áramót. Þar ætlar meðlim-
ir Nýdanskrar að afhjúpa
leyndarmál, spila lögin sín
og kjafta um hvað gerðist
bak við tjöldin á 24 ára ferli
sveitarinnar.
„Við vildum prófa eitthvað nýtt
og fara út úr hinu venjulega tón-
leikaformi,“ segir Stefán Hjörleifs-
son, gítarleikari hljómsveitarinnar
Nýdönsk, en sveitin er um þessar
mundir að undirbúa sýningu sem
nefnist Nýdönsk í nánd og verður
sett upp á svið í Borgarleikhúsinu
eftir áramót. „Við erum ennþá að
setja prógrammið saman og vinna
úr okkar hugmyndum en við vilj-
um að fólk fái öðruvísi upplifun á
tónlistinni,“ segir Stefán en sveit-
in hefur verið til í 24 ár og á því
aragrúa af efni sem aldrei hefur
komið fyrir sjónir almennings.
„Við ætlum okkur að segja sög-
urnar á bak við lögin, hvernig
lögin urðu til, og svona almennt
hvað gerðist bak við tjöldin hjá
sveitinni,“ segir Stefán en Nýd-
önsk hefur verið ein vinsælasta
ballsveitin í mörg ár og er til að
mynda enn þann dag í dag að spila
á menntaskólaböllum.
„Það er í raun ótrúlegt hvað lögin
okkar virðast lifa lengi en það er
frábært,“ segir Stefán en í sýning-
unni verður meðal annars farið út
í það af hverju Daníel Ágúst hætti
og hvað varð um útrásarævintýri
hljómsveitarinnar. „Við vorum
eins og flestar aðrar hljómsveit-
ir með drauminn um heimsfrægð
í vasanum og ætluðum að fara út
og „meika það“. Það eru margar
skemmtilegar sögur frá því tíma-
bili,“ segir Stefán og bendir á að
Jón Ólafs og Björn Jörundur séu
einstaklega skemmtilegir sögu-
menn.
Stefán segir að allir í sveitinni
hafi verið viðloðandi leikhús en
Björn Jörundur er til að mynda
menntaður leikari frá Bretlandi.
„Við erum miklir leikhúsmenn
og leikhús hefur verið eins konar
áhugamál okkar allra. Það má því
kannski segja að við séum að sam-
eina þetta tvennt í þessari sýn-
ingu,“ segir Stefán en hann fór
meðal annars með hlutverk í kvik-
myndinni Nýtt líf. Aðrir meðlim-
ir sveitarinnar hafa einnig látið
til sín taka á sviði leiklistinnar
en Daníel Ágúst lék í Jesus Christ
Superstar og Stone Free, Björn
Jörundur fékk meðal annars Edd-
una fyrir hlutverk sitt í bíómynd-
inni Englar alheimsins, Jón Ólafs-
son lék hlutverk í bíómyndinni
um Sveppa og í Leitinni að Villa
og Ólafur Hólm lék lítið hlutverk í
Punktur punktur komma strik.
„Við ætlum okkur að nýta allt
sem leikhúsið hefur upp á að bjóða
í sýningunni. Vera með flotta lýs-
ingu og sýna tónlistarmyndbönd á
skjá,“ segir Stefán og lofar að sýn-
ingin verði fyrir skemmtileg fyrir
tónlistarunnendur. Sýningin fer af
stað í janúar 2011.
alfrun@frettabladid.is
Tónlistarsaga Nýdanskrar
sett upp í Borgarleikhúsinu
Það andar köldu þessa dagana
milli bestu vinkvennanna fyrr-
verandi, Paris Hilton og Kim Kar-
dashian. Stúlkurnar voru báðar
viðstaddar viðburð sem haldinn
var á skemmtistað í Las Vegas og
að sögn gesta var Hilton augljós-
lega mjög ósátt við Kard ashian.
„Skemmtistaðurinn sendi
einkaflugvél eftir Kim og Paris
varð öskuill þegar hún heyrði af
því. Hún trúði ekki eigin eyrum,
eitt sinn hafði hún fengið einka-
flugvél til að ferja sig á milli
staða en nú er það Kim,“ var haft
eftir innanbúðarmanni sem segir
Hilton öfundsjúka út í æskuvin-
konuna. „Paris er reið Kim, en
þetta er allt öfundsýki. Kim var
eitt sinn varaskeifan en nú er
hún bæði frægari og vinsælli en
Paris.“
Paris öfundsjúk út í Kim
ÞEGAR ALLT LÉK Í LYNDI Paris Hilton og
Kim Kardashian voru eitt sinn mestu
mátar, en nú talast þær ekki við.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Kvikmyndafélag Íslands leitar
að tónlist fyrir íslensku mynd-
ina Óróa sem frumsýnd verður í
október næstkomandi. Leitað er
að öllum tegundum tónlistar en
myndin fjallar um unglinga sem
eru að taka sín fyrstu skref í heimi
fullorðinna.
Handrit myndarinnar er byggt
á bókunum Strákarnir með stríp-
urnar og Rótleysi, rokk og rómant-
ík eftir Ingibjörgu Reynisdóttur
en hún skrifaði einnig handritið
ásamt Baldvini Z, leikstjóra mynd-
arinnar. Bækurnar hafa notið vin-
sælda hér á landi en þetta er ekki
í fyrsta sinn sem kvikmyndagerð-
arfók leitar til almennings eftir
tónlist í bíómynd. Það sama var
gert fyrir kvikmyndina Astrópíu
á sínum tíma og sendi fólk inn lög
eftir sig og freistaði þess að þau
mundu hljóma í myndinni.
Með helstu hlutverk fara Atli
Óskar Fjalarsson, Hreindís Ylva
Garðarsdóttir Holm, Haraldur Ari
Stefánsson, Elías Helgi Kofoed-
Hansen, Birna Rún Eiríksdóttir,
María Birta Bjarnadóttir, Kristín
Pétursdóttir og Vilhelm Þór Neto.
Framleiðendur Óróa eru Júlíus
Kemp og Ingvar Þórðarson. Hægt
er að senda inn tónlistina á http://
dropbox.yousendit.com/Oroi
Leita að tónlist fyrir Óróa
LEITAR AÐ TÓNLIST Baldvin Z, leikstjóri Óróa, leitar að tónlist í
myndina en frumsýna á hana í október. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
> VONBRIGÐI FYRIR ANISTON
Nýjasta mynd Jennifer Aniston,
The Switch, er sögð vera skelfi-
legt flopp. Leikkonan reyndi allt
hvað hún gat til að vekja athygli
á myndinni en allt kom fyrir ekki.
Myndin náði ekki að velta vöðva-
búntasýningunni í The Expend-
ables úr sessi á toppnum.
SAMEINA ÁHUGAMÁL OG STARF Stefán Hjörleifsson og liðsmenn hans í sveitinni
Nýdönsk ætla að segja sögu sína á fjölum Borgarleikhússins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn 2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101
Erna, stílisti
Ég hef unnið við förðun á
Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal
við förðun keppenda í Idol
og annarra sjónvarpsþátta
hjá 365. Einnig vinn ég við
auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er
óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér
mikið í starfi mínu í förðun og stíliseringu.
Skjöldur Mio,
tískuráðgjafi
Ég taldi mig vita flest
allt um tísku og útlit
áður en ég fór í skólann.
En annað kom á daginn.
Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu,
textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um
útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég
er að gera.
Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I
w w w . u t l i t . i s
VILTU VERÐA STÍLISTI?
The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og
textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og
atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu.
Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning