Fréttablaðið - 24.08.2010, Side 50
34 24. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Sparisjóðsv., áhorf.: 970
Keflavík Stjarnan
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–11 (7-3)
Varin skot Jörgensen 0 – Bjarni Þórður 5
Horn 10–2
Aukaspyrnur fengnar 11–7
Rangstöður 2–2
STJARNAN 4–5–1
Bjarni Þórður Halld. 6
Bjarki Páll Eysteinss. 5
Tryggvi Bjarnason 7
Daníel Laxdal 6
Jóhann Laxdal 6
Atli Jóhannsson 5
Björn Pálsson 6
Arnar Már Björgvinss. 6
(77, Hilmar Þór Hilm. -)
Halldór Orri Björnss. 7
Þorvaldur Árnason 4
(70. Garðar Jóh. 6)
Ólafur Karl Finsen 5
*Maður leiksins
KEFLAVÍK 4–5–1
Lasse Jörgensen 4
Guðjón Árni Ant. 5
Haraldur Freyr Guðm. 6
Bjarni Hólm Aðalst. 6
Alen Sutej 5
Magnús Sverrir Þorst. 6
(85. Jóhann Guðm. -)
Hólmar Örn Rúnarss. 6
Einar Orri Einarsson 7
Guðm. Steinarsson 5
Magnúr Þórir Matt. 5
(85. Haukur Ingi G. -)
*Hörður Sveinsson 7
1-0 Hörður Sveinsson (2.)
1-1 Arnar Már Björgvinsson (9.)
2-1 Hörður Sveinsson (52.)
2-2 Halldór Orri Björnsson (80.)
2-2
Guðm. Ársæll Guðm. (6)
BREIÐABLIK 0 -2 HAUKAR
0-1 Daníel Einarsson (16.)
0-2 Kári Ársælsson, sjálfsmark (34.)
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.233
Dómari: Þóroddur Hjaltalín (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–10 (4–6)
Varin skot Ingvar Þór 4 – Daði 4
Horn 5–8
Aukaspyrnur fengnar 11–17
Rangstöður 4–2
Breiðablik 4–3–3 Ingvar Þór Kale 4 – Arnór Sv.
Aðalsteinsson 4 (79. Árni K. Gunnarsson -), Kári
Ársælsson 2 (37. Olgeir Sigurgeirsson 3), Elfar Fr.
Helgason 3, Kristinn Jónsson 4 – Finnur O. Marg-
eirsson 4, Guðm. Kristjánsson 4, Jökull Elísabetar-
son 5, Haukur Baldvinsson 4, Kristinn Steindórss. 3,
(59. Guðm. Pétursson 3), Alfreð Finnbogason 4.
Haukar 4–5–1 Daði Lárusson 7, Grétar Atli Grét-
arsson 7, Daníel Einarsson 8, Jamie McCunnie 7,
Gunnar Ásgeirsson 7 (90. Aron Jóhannss. -), Hilmar
Rafn Emilsson 7, Guðjón Pétur Lýðssno 6, Ásgeir
Ingólfsson 8, *Arnar Gunnlaugsson 8, (73. Garðar
Geirss. -), Hilmar G. Eiðsson 7 (71. Magn. Björgv. -)
STAÐAN
ÍBV 17 10 3 4 27-17 33
Breiðablik 17 9 4 4 36-20 31
FH 17 8 5 4 33-26 29
KR 16 8 4 4 30-21 28
Stjarnan 17 6 6 5 34-28 24
Keflavík 17 6 6 5 19-21 24
Fram 17 6 5 6 26-26 23
Valur 17 5 7 5 23-30 22
Grindavík 17 5 4 8 20-24 19
Fylkir 16 5 3 8 29-31 18
Selfoss 17 4 2 11 24-39 14
Haukar 17 1 7 9 22-39 10
NÆSTI LEIKUR
Fylkir - KR fimmtudag kl. 18.00
PEPSI-DEILDIN
Vodafone-völlur, áhorf.: Óuppg.
Valur KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–10 (4–6)
Varin skot Kjartan 3 – Lars 2
Horn 5–4
Aukaspyrnur fengnar 11–9
Rangstöður 0–1
KR 4–3–3
Lars Ivar Moldsked 5
Skúli Jón Friðgeirss. 6
Grétar Sigurðarson 7
Mark Rutgers 7
Jordao Diogo 8
(74. Dofri Snorrason -)
Bjarni Guðjónsson 7
Viktor Bjarki Arnarss. 6
(77. Egill Jónsson -)
Baldur Sigurðsson 6
Kjartan H. Finnbogas. 6
(66. Gunnar Örn J. 6)
*Óskar Örn Haukss. 8
Björgólfur Takefusa 5
*Maður leiksins
VALUR 4–5–1
Kjartan Sturluson 4
Stefán Eggertsson 3
Atli Sveinn Þórarinss. 5
Martin Pedersen 6
Rúnar Már Sigurjónss. 3
Þórir Guðjónsson 5
(51. Baldur Aðalst. 4)
Haukur Páll Sigurðss. 5
Ian Jeffs 4
Jón Vilhelm Ákason 6
Arnar Sveinn Geirss. 6
Diarmuid O’Carrol 4
(66. Guðm. Steinn 4)
0-1 Kjartan Henry Finnbogason (55.)
0-2 Mark Rutgers (57.)
0-3 Óskar Örn Hauksson (63.)
0-4 Óskar Örn Hauksson (65.)
1-4 Jón Vilhelm Ákason (77.)
1-4
Jóhannes Valg. (6)
FÓTBOLTI Úrslit Pepsi-deildarinnar
þessa dagana eru öll eftir handriti
KR-inga sem skyndilega eru mætt-
ir af krafti í titilbaráttuna. Þeim
leiddist ekki að heimsækja Vals-
menn í gær og tóku sér tíu mínútur
til að ganga frá leiknum.
Eftir jafnan fyrri hálfleik þar
sem Valsmenn fengu opnari færi þá
voru KR-ingar með öll völd í þeim
síðari. Björgólfur Takefusa fór illa
með dauðafæri áður en Kjartan
Henry Finnbogason opnaði flóð-
gáttir, Valsmenn brotnuðu og eftir
fylgdu þrjú önnur mörk.
Óskar Örn Hauksson lét ekki
mikið fara fyrir sér í fyrri hálf-
leiknum en lék á als oddi í þeim
síðari, skoraði tvö mörk með hörku-
skotum og átti svo stoðsendingarn-
ar í hinum mörkum KR-inga.
„Ég er virkilega ánægður með
hvernig menn komu stemmdir inn
í síðari hálfleikinn. Mér fannst
Valsmenn gefast upp eftir að við
komumst í 2-0. Það losnaði um
menn eftir að við komumst yfir
og við náðum frábærum sóknum,“
sagði Rúnar Kristinsson, þjálf-
ari KR, sem var að fagna sigri í
fimmta deildarleiknum í röð.
„Við þokumst nær toppsætinu
og eigum vissulega möguleika á
að taka þátt í þessari baráttu. En
það eiga örugglega eftir að verða
margir snúningar á þessari deild
áður en Íslandsmeistarar verða
krýndir. Næsti leikur er gegn
Fylki á fimmtudag og hann skipt-
ir mestu máli fyrir mig núna.“
Gunnlaugur Jónsson, þjálf-
ari Vals, var ekki sáttur við sína
menn í seinni hálfleik. „Hvernig
við byrjuðum seinni hálfleikinn
er bara grín. Við mætum ekki til
leiks og ég veit ekki hvað gerist,“
sagði Gunnlaugur.
„Mér fannst við eiga betri færi
í fyrri hálfleik en í þeim seinni
náum ekki þessari liðsframmi-
stöðu sem við höfum sýnt í síðustu
leikjum.“
Valsmenn horfa til fjórða sætis
deildarinnar sem gefur þátttöku-
rétt í Evrópukeppni. „Þetta mót
er alls ekki búið hjá okkur. Það er
hellingur um að keppa. Mótið hefur
verið svo ótrúlega jafnt í sumar og
þessi lið sem hafa verið um miðbik
deildarinnar eru að fara að mætast
í næstu umferðum. Það er ýmislegt
hægt að gera ef við náum sigrum,“
sagði Gunnlaugur. - egm
Óskar Örn Hauksson var í fluggír þegar KR fór illa með Val á Vodafone-vellinum í gær:
KR búið að stimpla sig inn í titilbaráttuna
SJÓÐHEITIR KR-INGAR Kjartan Henry
Finnbogason í baráttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Haukar unnu ÍA 2-1 þann
12. júní 1979 á gamla Hvaleyrar-
vellinum í Hafnarfirði. Það var
síðasti sigur Hauka í efstu deild
þar til í gær. Loksins, loksins segja
Hafnfirðingar, þeir rauðklæddu.
Haukar lögðu Blika 2-0 í Kópavog-
inum í skemmtilegum leik en sitja
enn neðstir í töflunni.
Blikar höfðu skorað í öllum leikj-
um sínum í sumar nema einum,
þeim fyrsta sem var gegn Kefla-
vík. Liðið hafði skorað 36 mörk í
fimmtán leikjum og eru heitasta
sóknarlið landsins. Það mátti sín
lítils gegn öguðu og baráttuglöðu
Haukaliði sem lagði allt í sölurnar
fyrir fyrsta sigurinn.
Haukarnir lokuðu miðjunni
sinni vel og Alfreð Finnbogason
var í strangri gæslu. Vonandi eiga
útsendarar Nordsjælland og hinna
félaganna sem horfðu á hann í gær
upptökur af frammistöðum hans í
sumar. Hann verður ekki dæmdur
af þessum leik.
Haukar voru gríðarlega þéttir
og leyfðu Blikum ekki að ná sínu
spili. Haukar fengu öll bestu færin
og þeir komust yfir með frábæru
skallamarki Daníels Einarssonar.
Kári Ársælsson skoraði svo ótrú-
lega klaufalegt sjálfsmark.
Undir lok hálfleiksins fékk Elfar
Freyr Helgason svo rautt spjald
sem var rangur dómur. Einum
færri áttu Blikar litla von enda
voru Haukarnir betri í seinni hálf-
leiknum.
Ingvar Kale varði frábærlega
frá Hilmari Geir og Arnar Gunn-
laugsson skallaði í stöng. Arnar
var frábær í leiknum, hann stýrði
spili Hauka frá A til Ö. Hann held-
ur boltanum ótrúlega vel og velur
alltaf rétta kostinn. Sjálfstraust-
ið var Haukamegin, þeir voru að
leika sér í Kópavoginum. Ásgeir
Þór var frábær líka sem og Dan-
íel í vörninni.
„Spilamennskan var skelfi-
lega döpur, varnarleikurinn var
óákveðinn og of linur, dekkningar
slakar líkt og sendingarnar, árás-
argirnin lítil og þegar við kom-
umst í færi lyppuðumst við bara
niður. Þetta var virkilega dapurt
og lélegasti leikur okkar í sumar.
Vonandi verður þetta sá lélegasti
áfram,“ sagði Ólafur Kristjánsson,
þjálfari Blika sem fannst rauða
spjaldið harður dómur.
„Það er leiðinlegt Haukanna
vegna að tala um hvað við vorum
slakir en þeir börðust bara fyrir
þessu. Það var erfitt að vera tíu á
móti þeim í seinni en við töpuðum
þessu í fyrri hálfleik,“ sagði þjálf-
arinn.
Arnar Gunnlaugsson segir að
líkami hans sé eins og vel smurð
vél. „Ég hef ekki spilað í þrjár
vikur en prófaði mig í gær. Það
gekk fínt og þetta var ansi ljúft
og sætur sigur. Heimir Guðjóns-
son peppaði ungu strákana upp
með því að spá Blikum 6-0 sigri
en ég veit alveg hvað hann var að
gera. Hann er klókur. Þetta var
dagurinn okkar og ég hafði það
á tilfinningunni að Blikar hefðu
getað spilað í allt kvöld án þess
að skora. Rauða spjaldið hjálp-
aði okkur mikið, mér fannst þetta
ekki vera rautt og einu mistök-
in sem dómarinn gerði í dag. Ég
hefði eflaust lagt skóna bara á
hilluna ef við hefðum tapað þessu
niður,“ sagði Arnar.
hjalti@frettabladid.is
31 árs bið Hauka loksins á enda
Haukar unnu sinn fyrsta leik í sumar og þann fyrsta í efstu deild í 31 ár í gær. Þeir voru einfaldlega betri
en Blikar sem virkuðu stressaðir. Vanmat var greinilegt en Arnar Gunnlaugsson var magnaður í leiknum.
LANGÞRÁÐUR SIGUR Haukar fögnuðu sínum fyrsta sigri í efstu deild í 31 ár í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Leikmenn Keflvíkinga
náðu tvisvar forystunni gegn
Stjörnunni í gærkvöldi en náðu
aldrei að hrista þá af sér sem skil-
aði sér í jafntefli eftir skrautlegt
jöfnunarmark frá Halldóri Orra
Björnsson. Keflvíkingar voru
betri í leiknum og náðu vel að loka
á skemmtilegt spil Stjörnumanna
en náðu ekki að nýta góð færi til
að klára leikinn.
„Niðurstaðan er ekki alveg eftir
gangi leiksins, mér finnst erfitt að
koma af velli með eitt stig í húsi
eftir góðan leik þar sem allir lögðu
sig virkilega fram. Við sköpuð-
um fullt af færum, vorum þéttir
og leystum vel þröngt spil á miðj-
unni og áttum bara fínan leik,“
sagði Willum Þór Þórsson, þjálf-
ari Keflavíkur, eftir leikinn.
„Við unnum hins vegar illa úr
þeirri leikstöðu að komast yfir í
tvígang, hins vegar gerum við tvö
mistök sem kosta okkur tvö mörk.
Það má hins vegar ekki gleymast
að við vorum að spila við ferskt
Stjörnulið sem hefur verið á flugi“
sagði Willum.
„Við lendum strax undir í byrj-
un og vorum í raun alltaf á eftir
í þessum leik þrátt fyrir að við
höfum jafnað fljótlega. Við vorum
ekkert að spila illa en við höfum
spilað betur og því þiggjum við
stigið,“ sagði Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Stjörnunnar.
„Miðjan þeirra lokaði vel spilinu
okkar, þeir voru særðir eftir síð-
asta leik og náðu sér á strik í þess-
um leik. Núna erum við að sigla um
miðja deild og það er ágætis spölur
í toppinn en við ætlum okkur að ná
fram fleiri stigum úr næstu leikj-
um“ sagði Bjarni. - kpt
Keflvíkingar náðu ekki að hrista af sér Stjörnumenn í jafnteflisleik suður með sjó í gærkvöldi:
Tvenn mistök kostuðu okkur tvö mörk
JAFNTEFLISBARÁTTA Þorvaldur Árnason
og Hólmar Örn Rúnarsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Carlos Tevez skoraði tví-
vegis er Manchester City vann
sannfærandi 3-0 sigur á Liver-
pool í lokaleik 2. umferðar ensku
úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi.
Gareth Barry kom City yfir
en Tevez skoraði tvívegis í síðari
hálfleik en síðara mark hans kom
úr vítaspyrnu.
Steven Gerrard átti skot í stöng
fyrir Liverpool og í sömu sókn
varði Joe Hart, markvörður City,
glæsilega í tvígang.
Liverpool er aðeins með eitt
stig eftir fyrstu tvær umferðirn-
ar en City er með fjögur. - esá
City vann Liverpool í gær:
Sannfærandi
sigur hjá City