Fréttablaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 28
20 25. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Einmitt það, Mæra. Þú getur hætt að reyna plata fólk . Dúfur sem hverfa, kanína sem kemur upp úr hattin- um og núna þyngdar- lögmálsbrellur? Þú ert ekkert gamall hundur, er það nokkuð? Heill sértu, Zlatan! Heill sértu, Myrkra- fursti! Kannski ættum við að sleppa þessu síðasta? Var að spá í það líka. Gerið það! Palli, þú átt að setja ruslatunn- una út við veginn áður en það verður dimmt.. Já, já, geri það rétt strax. Þegar þú segir „rétt strax“? Meina ég „ekki rétt strax“. Já, það er örugglega alveg rétt hjá þér að svangir flóð- hestar ýti undir steríótýpur. En það er allt í lagi að leika sér með þá. Sauðölvaður maður keyrir bíl sinn inn í banka og heilsustofnun býður aukin úrræði fyrir útúrstressað fólk. Það var greinilegt á fréttum gærdagsins að haust- lægðin er að skella á með öllum sínum þunga eftir sólarsömbu sumarsins. ÉG ER ekki ein af þeim sem gleðjast þegar dregur úr birtunni. Ég gnísti tönnum þegar ég heyri Pollýönnurnar í kringum mig segja: „O, vei, það er svo huggulegt að geta loksins kveikt á kertum!“. Hver vill skipta sólinni út fyrir kertaloga? Vegna birtufíkn- ar minnar og tregans sem fyllir hjarta mitt þegar dregur úr henni verð ég að hafa mig alla við til að halda örinni upp, eins og amma mín kallar brosið svo fallega. Besta leiðin til þess er að fara í sund. Það geri ég helst nokkrum sinnum í viku, árið um kring. Í MÍNU fyrra lífi var ég alveg ábyggi- lega hafmeyja, eða alla vega einhvers konar vatnakrabbi. Mér líður hvergi betur en marandi í hálfu kafi ofan í heitum potti. Það er ekki bara afslöpp- unin sem færist yfir sem dregur mig þangað, heldur hressa þau mig við, öll litlu augnablikin sem ég verð vitni að. Það þó ég sé alla jafna með hálflokuð augun og forðist samskipti við aðra. Í SUNDLAUGUNUM hef ég séð ást- ina kvikna, orðið hugfangin af sund- laugarverðinum, flúið undan kúknum í laug- inni, séð afbrýðina blossa upp og hlustað á marga slúðurberana kjamsa á sjóðheitum kjaftasögum. OG HLUTIRNIR gerast ekki síður í sturt- unni. Þó maður reyni að halda sér á mott- unni þar og einbeita sér að sínum eigin kroppi festast augu manns alveg óvart á skapaháraskúlptúrum, klúrum húðflúrum á áttræðum ömmum, svo ég tali ekki um skelfingu lostna og spéhrædda útlendinga sem blóðroðna þegar þeir eru reknir úr sundbolnum af baðkonunni sem gerir engan kvennamun. ÞAÐ eina sem skyggir á laugarferðir mínar eru stöku skarfar sem koma blaðskellandi ofan í pottinn og blása eins og hvalir. Hefja rifrildi við aðra gesti sem eiga sér einskis ills von og láta í það skína að þeir viti betur en allir hinir um … allt! Af skörfum með mikilmennskubrjálæði heyri ég nóg í frétt- unum. Ég vil helst ekki þurfa að svamla með þeim líka og leyfa þeim að sjúga frá mér orkuna. KUNNINGJAKONA mín, ágætis mann- eskja sem er haldin þeim lesti að vera mein- illa við börn, hefur viðrað þá hugmynd við borgaryfirvöld að opna barnalausar laug- ar. Ég velti því fyrir mér hvort skarfalaus- ar laugar væru ekki frekar málið. Í þágu almannaheilla. Skarfalausar sundlaugar Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 90 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.