Fréttablaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 32
24 25. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
SÍMI 564 0000
12
16
16
12
14
10
L
L
L
SÍMI 462 3500
12
16
12
14
10
SCOTT PILGRIM VS THE WORLD kl. 8 - 10.10
THE EXPENDABLES kl. 8 - 10
VAMPIRES SUCK kl. 6
SALT kl. 6
SÍMI 530 1919
16
14
L
L
THE EXPENDABLES kl. 5.40 - 8 - 10.20
SALT kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE KARATE KID kl. 6 - 9
BABIES kl. 6 - 8 - 10 Síðustu sýningar
.com/smarabio
NÝTT Í BÍÓ!
SCOTT PILGRIM VS THE WORLD kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE EXPENDABLES kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE EXPENDABLES LÚXUS kl. 5.40 - 8 - 10.20
VAMPIRES SUCK kl. 4 - 6 - 8 - 10
SALT kl. 8 - 10.10
THE LAST AIRBENDER 3D kl. 3.20
LJÓTI ANDARUNGINN OG ÉG kl. 3.30 (650 kr.)
KARATE KID kl. 5.10
SHREK 4 2D ÍSL TAL kl. 3.30
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
7
7
7
7
16
L L
L
L
L L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
12
12
12
12
HUNDAR OG KETTIR 2-3D M/ ísl. Tali kl. 4 - 6
HUNDAR OG KETTIR 2 M/ ísl. Tali kl. 4 - 6
LETTERS TO JULIET kl. 5:50 - 8 - 10:20
SALT kl. 8 - 10:10 - 10:50
THE SORCERER´S APPRENTICE kl. 8 - 10:20
INCEPTION kl. 7 - 8 - 10
INCEPTION kl. 5 - 8
SHREK SÆLL ALLA DAGA M/ ísl. Tali kl. 4 - 6
LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 4:20
LEIKFANGASAGA 3-3D M/ ísl. Tali kl. 3:40
LETTERS TO JULIET kl. 8:10 - 10:30
HUNDAR OG KETTIR 2-3D M/ ísl. Tali kl. 4 - 6
THE LAST AIRBENDER-3D kl. 5:50 - 8
THE SORCERER´S APPRENTICE kl. 5:40 - 10:50
INCEPTION kl. 8 - 10:10
SHREK SÆLL ALLA DAGA-3DM/ ísl. Tali kl. 3:40
LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 3:40
HUNDAR OG KETTIR 2 M/ ísl. Tali kl. 8
KNIGHT AND DAY kl. 10
KARATE KID kl. 8
22 BULLETS kl. 10:50
CATS & DOGS-3D ísl tal kl. 6
LETTERS TO JULIET kl. 8 - 10
SHREK SÆLL ALLA DAGA M/ ísl. Tali kl. 6
THE SORCERER’S APPRENTICE kl. 8
INCEPTION kl. 10:20
14
I T ’ S T H E C O O L E S T J O B E V E R .
Frábær ástarsaga með Amöndu
Siefried úr Mamma Mia
roger ebert e.t. weekly
ÁSTIN BLÓMSTRAR Á VÍNEKRUM ÍTALÍU Í
ÞESSARI HJARTNÆMU MYND
ÆÐISLEG FJÖLSKYLDUMYND
MEÐ FRÁBÆRUM HÚMOR
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
- bara lúxus
Sími: 553 2075
SCOTT PILGRIM 3.50, 5.45, 8 og 10.15 16
EXPENDABLES 3.50, 5.45, 8 og 10.15(P) 12
SALT 6 og 10.10 16
LAST AIRBENDER 3D 3.50 10
LAST AIRBENDER 2D 8 10
POWERSÝNING
KL. 10.15
Þ.Þ. -FBLE.Þ.E - DVT.V. - kvikmyndir.isS.V. - MBL
TOPP MYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG USA!
Tiger Woods og Elin Norde-
gren er formlega skilin eftir
sex ára hjónaband. Ekki
liggur fyrir hversu háa fjár-
hæð Elin fær frá Tiger en
þau munu hafa sameigin-
legt forræði yfir börnunum
tveimur.
Tiger og Elin komu fyrir dómara í
Panama City á Flórida til að hlýða
á úrskurð dómara í skilnaðarmáli
þeirra. Í kjölfarið sendu þau út
sameiginlega fréttatilkynningu
þar sem kom fram að velferð barn-
anna þeirra tveggja, hinnar fjög-
urra ára gömlu Sam og hins átján
mánaða gamla Charlie, hefði verið
höfð að leiðarljósi við skilnaðinn.
„Þegar það lá fyrir að hjóna-
bandinu væri lokið var það okkar
meginatriði að tryggja börnunum
okkar góða framtíð. Næstu vikur
og mánuðir verða þeim erfiðir þar
sem þau þurfa að aðlagast nýjum
aðstæðum. Þess vegna er það
okkur mikilvægt að tryggja frið-
helgi einkalífsins,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Fram kom á vefmiðlum
að bæði Tiger og Elin hefðu farið
á sameiginlegt foreldranámskeið
til að geta undirbúið börnin sem
best fyrir skilnaðinn og þau létu
það koma skýrt fram í yfirlýsing-
unni að þau hygðust halda góðu
sambandi, barnanna sinna vegna.
Þær fréttir eru þó misvísandi,
bandarískir fjölmiðlar héldu því
fram að þau hefðu ferðast saman
til Panama í einkaþotu en sænski
vefurinn Expressen sagði að þau
hefðu reynt að forðast hvort annað
í lengstu lög þegar þau komu í rétt-
arsalinn.
Annars vita bandarískir fjöl-
miðlar lítið um smáatriði skiln-
aðarsamningsins. Flestir hallast
að því að Elin fái heimili þeirra
hjóna í Orlando og húseign sem
hún keypti á sænskri eyju. Hins
vegar er á reiki hversu háa fjár-
hæð Elin fær frá Woods sem er
einn ríkasti íþróttamaður heims,
tölur frá tólf milljörðum og upp í
sextíu milljarða hafa verið nefnd-
ar en flestir fjölmiðlar hallast
að því að Elin hafi verið gert að
þegja um hjónabandið á opinber-
um vettvangi. Elin skrifaði undir
kaupmála þegar hún gekk að eiga
Woods enda var hann þá þegar
hæstlaunaði íþróttamaður heims.
Blaðamaður Wall Street Journal
skrifaði á vef blaðsins að sú saga
gengi á gjaldeyrismarkaðinum að
fréttir af skilnaðinum hefðu haft
áhrif á gengi sænsku krónunnar
gagnvart dollaranum í skamma
stund. Bandarískir fjölmiðlar hafa
jafnframt komist á snoðir um að
Elin hafi sett það sem skilyrði að
Tiger mætti ekki kynna nokkra
konu fyrir börnunum sínum nema
hann hefði ákveðið að ganga í
hjónaband með henni.
Níu mánuðir eru liðnir síðan
tilkynnt var að Tiger hefði klesst
glæsibifreið sína fyrir utan heim-
ili sitt í Orlando. Talsmenn Tig-
ers reyndu í fyrstu allt hvað þeir
gátu til að kveða niður fréttir af
árekstrinum en skömmu síðar kom
í ljós kom að hann hafði átt fjölda
hjákvenna sem flestar staðfestu
samband sitt við kylfinginn.
Framhjáhaldið varð Tiger mikill
álitshnekkir, hann hefur ekki náð
sér á strik á golfvellinum og ímynd
hans þykir svo löskuð að flestir
eru þess fullvissir að hann nái ekki
aftur þeim vinsældum sem hann
hafði umfram aðra íþróttamenn.
Milljarðaskilnaður Tigers
SKILIN Tiger, Elin og Sam Alexis Woods á meðan allt lék í lyndi. Nú eru þau hins
vegar skilin eftir að upp komst um framhjáhald kylfingsins.
HJÓNABANDIÐ Í HNOTSKURN
Júlí 2001: Elin kemur með sænska kylfingnum Jesper
Parnevik og eiginkonu hans, Miu, á Opna breska golf-
mótið sem þá fór fram á Royal Lytham og
St. Annes-golfvellinum á Englandi. Mia
kynnir Elin fyrir Tiger en hann hafði fallið
fyrir henni ári fyrr.
Nóvember 2003: Elin og Tiger sjást
í fyrsta skipti opinberlega saman í
móttökuathöfn Forsetabikarins í
Suður-Afríku og það sama ár
var það gert opinbert að þau
væru trúlofuð eftir að Tiger
skellti sér á skeljarnar í
Shamwari-garðinum.
Október 2004: Elin
og Tiger ganga í það
heilaga á hótelinu
Sandy Lane á Barbados.
150 gestum er boðið, þar á
meðal Opruh Winfrey, Michael
Jordan og Charles Barkley. Brúð-
kaupið er sagt hafa kostað 250 milljónir íslenskra króna
enda leigði Tiger hótelið og golfvöll í grennd í heila viku.
Júní 2007: Fyrsta barn þeirra hjóna, Sam
Alexis Woods, kemur í heiminn aðeins
degi eftir að Tiger lenti í öðru sæti á
US Open, einu af stóru mótunum
fjórum á PGA-mótaröðinni í golfi.
Febrúar 2009: Charlie Axel Woods
kemur í heiminn.
Desember 2009: Mikið fjöl-
miðlafár hefst eftir að Tiger ekur
glæsibifreið sinni á brunahana
fyrir utan heimili þeirra. Í ljós
kemur að Hr. Fullkominn, eins og
Woods var stundum kallaður,
hafði átt fjölda ástkvenna og
var ekki allur þar sem hann
var séður.
Ágúst 2010: Skilnaður
Tigers Woods og Elin Norde-
gren gengur í gegn.
„Þetta verður svona manneskjuvænt kaffihús fyrir
alla,“ segir Edgar Smári Atlason, söngvari og einn
af aðstandendum Kaffi Flóka, sem er kaffihús/mat-
stofa rekið af og fyrir unga geðfatlaða einstaklinga.
Styrktartónleikar fyrir kaffihúsið verða haldnir á
morgun þar sem valinkunnir tónlistarmenn koma
fram. Allur ágóðinn mun renna til Kaffi Flóka en
það er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en sams
konar rekstur fyrir geðfatlaða einstaklinga tíðkast
mikið í nágrannalöndunum. Kaffihúsið er á horni
Hverfisgötu og Snorrabrautar. „Þetta var í raun upp-
haflega hugmynd fólkins á Flókagötuheimilinu en
þau vildu fá að spreyta sig við að vinna í þjónustu-
störfum. Þar sem það er ekki mikið í boði kom þessi
hugmynd upp, að opna kaffihús sem er fyrir alla en
er rekið af þeim með okkar aðstoð,“ segir Edgar og
bætir við að það geti verið mjög erfitt fyrir fólk sem
þjáist af geðsjúkdómum að koma inn á kaffihús eða
gera hluti sem eru flestum hverdagslegir.
„Hugmyndin um tónleikana kom í sumar þegar
við byrjuðum að vinna að opnun kaffihússins en ég
þekki það af eigin raun að það kostar ýmislegt að
reka kaffihús,“ segir Edgar Smári sem hefur áður
unnið á kaffihúsi föður síns. „Ég ákvað bara að
hringja í alla þá sem ég hef verið að vinna með und-
anfarið eins og til að mynda Stebba Hilmars, Guð-
rúnu Gunnars, Ellen Kristjánsdóttur og Pétur Hall-
gríms, og svo Gospelkórinn. Það voru allir tilbúnir
til að leggja hönd á plóg til að styrkja málefnið og
krakkana,“ segir Edgar en hann lofar flottum tón-
leikum og vonast til að sem flestir sjái sér fært um
að mæta. Miðaverð er 2.000 kr. og fást þeir í Fíla-
delfíu. - áp
Styrktartónleikar fyrir Kaffi Flóka
MANNESKJUVÆNT Það eru allir velkomnir á Kaffi Flóka sem
verður opnað í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON