Fréttablaðið - 31.08.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ATVINNUREKSTUR Rekstur, stjórnun og markaðssetn-
ing smáfyrirtækja – markviss leið er heiti á nýrri námsbraut
sem kennd verður hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í
vetur, ætluð meðal annars þeim sem eru í eða ætla út í
atvinnurekstur. Nánari upplýsingar á endurmenntun.is.
New York-maraþonið víðfræga
verður hlaupið 7. nóvember næst-
komandi og Kristján Ingi Gunn-
arsson útvarpsmaður skráði sig
til leiks fyrir tæplega ári, þá rúm
120 kíló. Hann setti sér það mark-
mið að ná jafnmörgum kílóum af
sér og maraþonið er langt, eða 42,2
kílóum og miðaði Kristján þá við
sína mestu þyngd, 130 kíló.
„Þegar ég skráði mig til leiks
var ástand mitt skráð hættulegt
offituástand, þar sem BMI-stuð-
ullinn minn var 33 og ég þá 120
kíló. Besti vinur minn er læknir
og mikill hlaupari og skráði sig í
maraþonið og ég ákvað að slá til
og gera um leið eitthvað drastískt
í mínum málum,“ segir Kristján
Ingi sem hleypur ekki bara með
besta vini sínum heldur einnig 67
ára gömlum föður, sem er fyrr-
verandi íþróttamaður og hleyp-
ur mikið. Undirbúningurinn fyrir
hlaupið hefur staðið yfir í tæpt ár,
síðan Kristján Ingi skráði sig til
leiks, og hefur allt er viðkemur
undirbúningnum og lífi Kristjáns
verið fest á filmu.
„Vinnuheitið á kvikmyndaverk-
efninu er 42,2 kílómetrar/kíló og
við erum ekki búnir að ákveða
hvort þetta endi sem heimildar-
mynd eða heimildarþættir. 42,2
mun fjalla um týpískan, allt of
þungan, tveggja barna fjölskyldu-
föður í V-hálsmálspeysu sem fer
úr því að vera allt of þungur og í
það að hlaupa maraþon. Það gerir
hann með pabba sínum og besta
vini, sem gerir myndina mun per-
sónulegri. Inn í myndina fléttast
svo ýmsir stórviðburðir þar sem
við vildum sýna lífið eins og það
raunverulega er og slepptum því
engu. Þannig eignaðist ég barn í
apríl og myndaði þá daga og til-
finningarnar í kringum það en
konan mín endaði í bráðakeisara.
Faðir minn fékk fyrir hjartað í
febrúar, endaði uppi á hjartadeild
og það var líka allt myndað, þannig
að það er engu sleppt.“
Kristján Ingi er orðinn 98 kíló
og nálgast því takmarkið. „Ég er
10 kílóum frá takmarkinu en ég
hef enn þá tíu vikur til stefnu og
tek þetta föstum tökum þar til
að því kemur, æfi í crossfit fimm
sinnum í viku, hleyp sjálfur, syndi
og hjóla til og frá vinnu. Ég er með
fullt af góðu fólki í kringum mig í
þessu, næringarráðgjafa, þjálfara
og fleiri og passa að borða hollt,
án neinna öfga. Hermann Hann-
es Hermannsson og Úlfur Teitur
Traustason hafa svo séð um kvik-
myndatökuhliðina.“
Tilvonandi maraþonhlaupar-
inn segir myndina eiga að virkja
hvetjandi og fræðandi fyrir fólk og
vekja upp heilsufarslegar spurn-
ingar. „Offita er eitt algengasta
heilsufarsvandamálið sem fólk er
að glíma við í dag. Ég sjálfur hef
verið í rússíbana á því sviði und-
anfarin ár, tekið KFC og Herbalife
til skiptis og ég hef lært mikið um
hvernig ég get fundið stöðugleika í
sjálfum mér. Ég hlakka mikið til að
sjá útkomuna.“ juliam@frettabladid.is
Gerir heimildarmynd
um lífsstílsbreytingu
Kristján Ingi Gunnarsson útvarpsmaður mun hlaupa maraþon í New York hinn 7. nóvember, samtals 42,2
kílómetra. Kristján setti sér það markmið að missa jafnmörg kíló og maraþonið er langt.
Rúm 30 kíló eru farin hjá Kristjáni Inga Gunnarssyni, en takmarkið er að ná 42, 2 í heild. Kristján æfir meðal annars crossfit til að
ná markmiði sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
www.vilji.is • Sími 856 3451
STUÐNINGS
STÖNGIN
HVAÐ ER STUÐNINGSSTÖNGIN?
Hjálpartæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig á aðra.
Auðveld í uppsetningu
Engar skrúfur eða boltar
Tjakkast milli lofts og gólfs
Hægt að nota við hallandi loft, timburloft og mikla lofthæð
Margir aukahlutir í boði
Falleg og nútímaleg hönnun
Passar allsstaðar og tekur lítið pláss
Viðurkennd af Tryggingastofnun ríkisins
10 ÁR Á ÍSLANDI
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 - Laugard. frá 11 til 16
299.9
00 krChes
terfie
ld 3+
1+1
Verð
nú
12.90
0 kr
Borðs
tofus
tólar
í úrva
li
Verð
frá
*takmarkað magn
5 ÁRA
AFMÆLI
5 ÁRA GÖMUL VERÐ
DAGANA 1. - 8.SEPT
bailine vaxtarmótun
bailine · Hlíðarsmári 11, 201 Kópavogur · Sími 568 0510 · www.bailine.is
Tímapantanir í síma 568 0510
www.bailine.is